Fréttablaðið - 09.12.2017, Síða 46
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
Við höfum öll heyrt að til að ná árangri í lífinu sé um að gera að fara snemma á fætur.
Morgunstund gefi jú gull í mund.
En þó margir sem hafa náð mikilli
velgengni fari snemma á fætur
er það langt frá því að vera algilt
og rannsóknir gefa í skyn að það
sé lítið hægt að gera í því hvernig
líkamsklukkan og svefnmynstrið
virkar.
Ólíkir eiginleikar
Um helmingur fólks er hvorki sér-
stakir nátthrafnar né morgunhanar,
svo þetta skiptir það litlu máli. En
um fjórðungur fólks er nátthrafnar
og fjórðungur árrisulir morgun-
hanar.
Rannsóknir gefa til kynna að
þessir tveir ólíku hópar hafi ólíka
eiginleika. Þeir sem vakna snemma
eru samvinnuþýðari og meira
greinandi í hugsun á meðan þeir
sem vaka fram eftir eru oftar hug-
myndaríkari og sjálfstæðari.
Fjöldi rannsókna bendir til að
morgunhanar séu ákveðnari, hafi
meiri sjálfsstjórn og séu viðkunnan-
legri. Þeir setja sér hærri markmið,
skipuleggja framtíðina meira og
finna til meiri vellíðanar. Þeir eru
líka ólíklegri til að vera þunglyndir
og drekka áfengi og reykja.
Á móti kemur að nátthrafnar
ná yfirleitt betri árangri á prófum
sem reyna á minni, hraða í hugsun
og skilning, jafnvel þó þeir séu
prófaðir á morgnana. Þeir eru líka
opnari fyrir nýjum upplifunum og
leita þær meira uppi. Þeir geta líka
verið meira skapandi í hugsun og
ein rannsókn sýndi að nátthrafnar
væri jafn heilbrigðir og klárir en
aðeins ríkari en morgunhanar.
Breyting á svefnmynstrinu
virðist ekki gera mikið til að breyta
þessum eiginleikum.
Erfitt að endurstilla líkams-
klukkuna
„Ef fólk fær að halda sig við þær
tímasetningar sem þeim henta
líður því miklu betur, það er
virkara og getur hugsað skýrar,“
segir Kath arina Wulff, sem rann-
sakar svefnmynstur við Oxford-
háskóla. „Aftur á móti hefur það
slæm áhrif ef fólki er ýtt út fyrir
sínar náttúrulegu tímasetningar.
Þegar nátthrafnar vakna snemma
á morgnana er líkaminn enn að
framleiða melatónín (hormón sem
hefur mikil áhrif á svefn). Þessi
framleiðsla er trufluð og líkaminn
neyddur er til að fara í dagsástand.
Það getur haft ýmis neikvæð áhrif á
líkamann.“
Þetta rímar við niðurstöður
annarra rannsókna, sem sýna að
líkamsklukkan er líffræðileg. Stór
hluti hennar, jafnvel helmingur,
kemur frá erfðum.
Tímasetningarnar sem henta ein-
staklingum breytast yfirleitt með
aldrinum. Börn eru meiri morgun-
hanar, um tvítugt er fólk yfirleitt
mestu nátthrafnarnir og svo um
fimmtugt verður fólk aftur árrisulla.
En þar sem þessar sveiflur eru
svipaðar hjá öllum er fólk yfirleitt á
sama stað á rófinu í samanburði við
jafnaldra sína.
Hænan eða eggið
Þegar við reynum að átta okkur á
leyndardómum velgengni gleymist
stundum að ekki allir sem ná langt
eru árrisulir og að ekki njóta allir
morgunhanar velgengni.
Það er ekkert víst að það sé í
sjálfu sér betra að vakna snemma á
morgnana. En við mætum flest til
vinnu eða skóla snemma á morgn-
ana, sem hentar morgunhönum
vel og því eru þeir líklegri til að ná
árangri í þessu mynstri. Líkamar
nátthrafna sem vakna snemma eru
enn í svefnástandi, sem þýðir að
viðkomandi er miklu lengur í gang
en morgunhani.
Vísindamenn hafa líka bent á
að þar sem nátthrafnar neyðast
oft til að vera virkir þegar líkamar
þeirra eru ekki tilbúnir til þess sé
ekki skrítið að þeir séu verri í skapi
og njóti lífsins minna. En það gæti
líka valdið því að þeir þurfi að vera
nýjungagjarnir og finna leiðir til að
gera sér lífið auðveldara, sem ýtir
undir sköpun og hugsun. Þannig
að þegar einstaklingur annaðhvort
þrífst í eða þarf að laga sig að ytri
aðstæðum gæti það ýtt undir ólíka
eiginleika hjá viðkomandi.
Niðurstöður úr nýlegri rannsókn
sýndu að þegar fólk reyndi að gerast
árrisulla leiddi það ekki til betra
skapferlis eða meiri lífshamingju.
Aðrar rannsóknir gefa vís-
bendingar um að svefnmynstur
kunni að vera hluti af pakka með
öðrum eiginleikum. Þannig að það
gæti verið að ákveðnir eiginleikar
fylgi ákveðnum svefnmynstrum
og allt sé þetta byggt á erfðum. En
fylgni er ekki það sama og orsaka-
samband og enn um sinn vitum við
ekki alveg hvernig þetta vinnur allt
saman.
Ekkert betra að vera árrisull
Það er ekki endilega rétt að morgunstund gefi gull í mund. Rannsóknir benda til að hver og einn
hafi sína líkamsklukku sem mótast út frá erfðum og því henti ólík mynstur ólíku fólki.
Rannsóknir gefa til kynna að við séum öll háð líkamsklukkunni okkar og að
hún byggi á erfðum. NORDICPHOTOS/GETTY
Sannar gjafir eru hjálpargögn fyrir börn í neyð og eru seld í verslunum Lindex sem
falleg jólakort. Kortin eru skreytt
með myndum af íslensku jóla-
sveinunum sem Brian Pilkington
teiknaði. Hvert jólakort inniheldur
hjálpargögn sem UNICEF sendir til
barna í neyð. Dæmi um þær gjafir
sem eru í boði er til dæmis nær-
ingarmjólk Askasleikis fyrir van-
nærð börn, en í hverri 1.500 króna
gjöf eru 10 skammtar af orkuríkri
þurrmjólk sem notuð er til að
meðhöndla allra veikustu börnin á
næringarmiðstöðvum og sjúkra-
húsum sem UNICEF starfar með.
Kertasníkir sendir barni í neyð
hlýtt teppi, Stekkjastaur útvegar
20 skammta af jarðhnetumauki
og Pottaskefill tryggir 7.500 lítra af
hreinu vatni með vatnshreinsitöfl-
um. Þessar gjafir eru allar til sölu
í verslunum Lindex um allt land.
Einnig er hægt að kaupa Sannar
gjafir á lindex.is og sannargjafir.is.
Viðskiptavinir Lindex hafa stutt
dyggilega við UNICEF eða um 20
milljónir frá upphafi. Nú þegar
hafa viðskiptavinir Lindex verið
duglegir í baráttunni fyrir bættum
hag barna og hafa um 4.000 Sannar
gjafir selst hjá Lindex frá upphafi.
Jafngildir það að 40.000 skömmt-
um af næringarmjólk eða 80.000
skömmtum af jarðhnetumauki
sem UNICEF hefur getað notað í
þágu barna þar sem þörfin er mest
vegna þessa einstaka samstarfs.
Lindex og UNICEF fagna
samstarfi um Sannar gjafir
Þriðja árið í röð taka Lindex og UNICEF höndum saman og bjóða viðskiptavinum upp á Sannar
gjafir sem bæta hag barna um heim allan. UNICEF verður með kynningu í dag í Lindex, Smáralind.
UNICEF dreifði námsgögnum og fleiru til barna eftir að fellibylurinn Irma reið
yfir Karíbahafið.
Vítamínbætt
jarðhnetumauk
gegnir lykilhlut-
verki í að lækna
börn sem eru
lífshættulega
veik sökum van-
næringar.
Þakklát aðstoð
„Okkur þykir rosalega vænt
um þetta samstarf og erum
viðskiptavinum og starfsfólki
Lindex ævinlega þakklát fyrir að
hjálpa okkur að útvega hjálpargögn
fyrir börn sem búa nú við erfiðar
aðstæður,“ segir Vala Karen
Viðarsdóttir hjá UNICEF á Íslandi.
„Strax eftir jólin sér UNICEF síðan til
þess að koma hjálpargögnunum til
þeirra barna sem á þurfa að halda,“
segir Vala enn fremur.
Stolt og ánægð
„Samstarf okkar við UNICEF hefur
verið mikilvægur þáttur í sam-
félagsverkefnum sem við látum
okkur varða hér hjá Lindex og við
erum sérlega stolt og ánægð með
að þessi jól munum við fara kyrfi-
lega yfir 20 milljóna króna markið í
baráttunni fyrir bættum hag barna
í heiminum,“ segir Lóa Dagbjört
Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex
á Íslandi.
Að auki hefur Lindex á Íslandi og
UNICEF starfað saman að öðrum
verkefnum í gegnum tíðina eins
og uppbyggingu menntastarfs í
sumum af fátækustu löndum heims,
stuðning við dag rauða nefsins,
neyðarviðbrögð við náttúruham-
förum og sérstakar barnafatalínur
tileinkaðar baráttu UNICEF fyrir
bættum hag barna í heiminum.
UNICEF dagur Lindex
Til að undirstrika samstarfið fagna
UNICEF og Lindex saman í Smára-
lind kl. 13-16 í dag. Í boði verður
kynning frá UNICEF þar sem
gestum og gangandi gerist kleift
að setja á sig sýndarveruleikagler-
augu þar sem skyggnst er í veru-
leika barna í flóttamannabúðum.
Tónlistarkonan Hildur mun taka
nokkur vel valin lög í anda jólanna
auk þess sem jólasveinninn verður
á staðnum og börnum og fjöl-
skyldum þeirra boðið að taka mynd
með sveinka.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . D E S E m B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-7
F
9
C
1
E
7
0
-7
E
6
0
1
E
7
0
-7
D
2
4
1
E
7
0
-7
B
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K