Fréttablaðið - 09.12.2017, Page 48
Þegar amma og afi
féllu frá var ég
frekar einn á jólunum. Ég
fékk því bara vin minn til
að halda jólin með mér.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Mörgum finnst
gaman að bjóða
gestum upp á jólasnafns á
aðventunni.
Jólin geta verið erfið hjá mörgum. Ég var til dæmis ekki með neina fjölskyldu til að
halda venjuleg jól með. Ólst upp hjá
afa og ömmu og kynntist systkinum
mínum og foreldrum mínum ekki
mikið, ekki fyrr en á fullorðinsárum.
Þegar amma og afi féllu frá var ég
frekar einn á jólunum. Ég fékk því
bara vin minn til að halda jólin
með mér og við bjuggum til rétta
stemmingu, keyptum gjafir handa
hvor öðrum, jólatré og fleira. Svo
eignaðist hann fjölskyldu og þá var
ég aðeins með þeim en svo fann ég
mér annan vin til að búa til jól með.
Nú á ég fjölskyldu sjálfur,“ segir
Spessi Hallbjörnsson, ljósmyndari
og matgæðingur. Hann hafnar alveg
öllu jólastressi, jólin snúist um frið
og kærleika milli fólks.
Heilun að skrifa jólakort
„Jólunum fylgir það að gefa ein
hverjum jólagjöf og því fylgir
ákveðið hugarfar. Maður hugsar
fallega til viðkomandi og langar
að gleðja hann. Ég tala nú ekki um
stemminguna við að skrifa jólakort.
Maður sest yfir lista af nöfnum og
Var oft einn á jólunum
Spessi Hallbjörnsson, ljósmyndari og matgæðingur, drífur upp sína árlegu Friðarmáltíð í dag. Hann
segir jólin snúast um frið og hafnar öllu stressi. Lengi vel hafi hann ekki átt hefðbundin jól.
Spessi ljósmyndari drífur upp sína árlegu Friðarmáltíð í dag. mynd/Eyþór
hugsar vandlega hvað maður vill
skrifa til hvers og eins. Manni líður
svo vel að fara með allar þessar
fallegu kveðjur í póst. Það er heilun
að skrifa jólakort. Ef maður hugsaði
allt árið hvað maður geti gert til að
gleðja einhvern eða láta honum líða
betur væri heimurinn betri. Maður
þarf ekkert að vera stressaður á
jólunum. Þetta er stemmingin sem
ríkir á Friðarmáltíðinni,“ segir hann
en Friðarmáltíðin er matarveisla
sem hann hefur drifið upp fyrir hver
jól árum saman.
Ekki venjulegt hlaðborð
„Fyrsta Friðarmáltíðin var haldin
1995. Þá var ég að vinna á Næstu
grösum, hjá Gunnhildi, og hún stakk
upp á því að ég eldaði minn jólamat
sem matseðil einn laugardaginn.
Við kölluðum það Friðarmáltíð. Nú
hef ég gert þetta í mörg ár og varla
misst úr eitt skipti. Eitt árið var ég
staddur í Kansas í Bandaríkjunum
og hélt Friðarmáltíðina þar í 500
manna þorpi! Vinur minn átti bar
og veitingastað og við drifum þetta
upp. Allur bærinn mætti í matinn
og það skapaðist frábær stemm
ing. Ég hef alltaf verið með flottar
hljómsveitir og svo er alltaf sungið
War is over með Lennon. Það er
stemmingin þarna, fólk mætir ekki
þarna á venjulegt jólahlaðborð til
að éta, heldur fyrir stemminguna og
samveruna. Jólamáltíð er náttúrlega
friðarmáltíð.“
Hvað verður í matinn? „Ég ætla að
elda cannelloni, steikt í salvíu smjöri,
borið fram með ofnbökuðum
tómötum með chili og hvítlauk og
ferskum basil. Ekta ítalskt. Í forrétt
eru belgbaunir vafðar í eggaldin og
svo steiktar. Tiramisu í eftirrétt. Það
verður líka hægt að fá vegan cann
elloni,“ segir Spessi en hann hefur
verið grænmetisæta í 36 ár.
„Grænmetisfæði er miklu einfald
ara, maður sleppir einum hlekk úr
keðjunni og þarf ekki drepa neinn.
Það finnst mér mikill léttir. Mér
finnst mega taka það inn í umræðu
um ósonlagið að ef við minnkum
kjötát mengum við minna.“
Friðarmáltíðin verður á Bergsson RE
á Grandagarði klukkan 11 í dag.
það er einfalt að gera snafs fyrir jólin og þarf ekki að taka langan tíma.
Í Danmörku og Þýskalandi er það til siðs að bjóða upp á jólasnafs á aðventu. Margir kaupa
snafsinn tilbúinn en skemmtilegra
er að bjóða upp á heimagerðan.
Það þarf ekki að taka langan tíma,
sumir verða tilbúnir á sólarhring
á meðan aðrir þurfa viku. Hér eru
nokkur dæmi um einfalda snafsa.
Kryddaður snafs
75 cl brennivín
1 kanilstöng
5 rúsínur
1 negulnagli
Lítill biti af engifer
Smávegis börkur af appelsínu
3 hakkaðar möndlur
5 kardimommufræ
Setjið allt í flösku og látið standa
við stofuhita í tíu daga. Hristið
flöskuna á hverjum degi. Sigtið
vökvann og berið fram.
Sítrónu- og
rósmarínsnafs
35 cl brennivín
1 sítróna
2 kvistir ferskt rósmarín
Takið börkinn af sítrónunni.
Setjið brennivín í flösku og bætið
sítrónuberki og rósmaríni út í.
Geymið við stofuhita í einn sólar
hring. Kælið snafsinn og berið
fram eftir tvo daga.
Appelsínu- og
vanillusnafs
50 cl brennivín
½ appelsína
⅓ vanillustöng
2 tsk. ljóst síróp
Hellið brennivíninu í skál og
setjið rifinn appelsínubörn saman
við ásamt safanum. Takið fræin
úr vanillustönginni og setjið út
í vínið. Því næst er sírópi bætt
saman við. Hrærið. Setjið plast yfir
skálina og látið standa í tvo daga í
ísskáp áður en snafsinn er sigtaður
og borinn fram.
Heimagerður jólasnafs
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
15.990
KARLAjAKKi
6 KynnInGArBLAÐ FóLK 9 . d E S E m B E r 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-6
B
D
C
1
E
7
0
-6
A
A
0
1
E
7
0
-6
9
6
4
1
E
7
0
-6
8
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K