Fréttablaðið - 09.12.2017, Qupperneq 63
WOW FRÁ UPPHAFI
WOW ÞÚ!
VERTU MEMM
Spennandi störf í boði hjá WOW air
STARFSMAÐUR Í MÓTTÖKU / MANNAUÐSFULLTRÚI
GETUR ÞÚ WOW-AÐ OKKUR?
WOW air leitar nú að ofurskipulögðum og skemmtilegum einstaklingi
með blússandi WOW faktor til að starfa í móttöku á skrifstofu
fyrirtækisins í Reykjavík. Starfið krefst mjög góðrar íslensku- og
enskukunnáttu, skipulagsfærni og framúrskarandi samskiptahæfni.
Auk móttökustarfa mun starfsmaðurinn sinna ýmsum tilfallandi
verkefnum fyrir mannauðssvið.
SÉRFRÆÐINGUR Í MANNAUÐSMÁLUM
KANNTU GOTT AÐ META?
WOW air leitar að þjónustuliprum og félagslyndum sérfræðingi sem
finnst fólk frábært, til að starfa að ölbreyttum og skemmtilegum
verkefnum á sviði mannauðsmála fyrirtækisins. Viðkomandi mun
meðal annars koma að ráðningum og fræðslumálum ásamt því að
hafa umsjón með starfsmannaupplýsingum og fleiru.
SAMRÆMINGARSTJÓRI NEYÐARÁÆTLANA
AÐDÁANDI BJÖRGUNARSVEITA ÓSKAST
WOW air óskar eftir að ráða skipulagðan samræmingarstjóra
neyðaráætlana í Flugverndardeild. Æskilegt er að viðkomandi hafi
brennandi áhuga á björgunarmálum, viðbragðsáætlunum og fræðslu.
Um ölbreytt verkefni er að ræða, m.a. skipulagning á þjálfun,
æfingum og fræðslu ásamt verkefnum í flugvernd.
DEILDARSTJÓRI ÞJÓNUSTUVERS
SPAKT FORYSTUFÉ ÓSKAST
WOW air leitar að þjónustuliprum og reynslumiklum einstaklingi til
að sjá um daglega stjórnun þjónustuvers félagsins á Íslandi og
samþættingu með þjónustuveri WOW air erlendis. Ef þú hefur reynslu
af stjórnun, ert lipur í samskiptum, hefur náttúrulega leiðtogahæfileika
og þrífst vel í lifandi umhverfi þá gæti þetta verið draumastarfið þitt.
VERKEFNASTJÓRI Í FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTU
FÍLAR ÞÚ STÓR SEM SMÁ FYRIRTÆKI?
WOW air leitar að drífandi starfsmanni á sölu- og markaðssvið WOW air
til að sjá um fyrirtækjaþjónustu flugfélagsins. Viltu veita frábæra
þjónustu? Býrðu yfir framúrskarandi sölu- og samskiptahæfileikum?
Ef þú vilt hafa nóg að gera í vinnunni og ert til í kreandi verkefni á
skemmtilegum vinnustað þá viljum við heyra frá þér.
VAKTSTJÓRI DAGLEGRAR STARFSEMI Í IOCC
ERTU LAUSNAMIÐAÐUR WOWARI?
WOW air leitar að jákvæðum vaktstjóra til að taka þátt í að stýra daglegri
starfsemi í IOCC í höfuðstöðvum WOW air. Rík þjónustulund með bros
og festu að leiðarljósi ásamt færni í mannlegum samskiptum eru góðir
eiginleikar WOW vaktstjóra. Um er ræða tímabundið starf til eins árs og
unnið er á dag- og næturvöktum.
SVÆÐISSTJÓRI Í SÖLU- OG MARKAÐSDEILD WOW AIR
VILTU SIGRA HEIMINN MEÐ OKKUR?
WOW air leitar að öflugum einstaklingi með ríka skipulagshæfileika
í fullt starf svæðisstjóra á sölu- og markaðsdeild WOW air. Tilvonandi
svæðisstjóri þarf að hafa framúrskarandi söluhæfileika, brennandi
áhuga á sölu- og markaðsstörfum og ekki skemmir fyrir skemmtileg
sýn á tilveruna, góð tungumálakunnátta og gott keppnisskap.
VERKEFNASTJÓRI Í ÞJÓNUSTUMÁLUM
ERTU ÞJÓNUSTUSÉNÍ?
WOW air leitar að öflugum einstaklingi til að vinna að þjónustumálum
félagsins og þjálfun starfsfólks. Ertu sérlega þjónustulipur? Hefur þú
áhuga á öllu sem viðkemur gæðaeftirliti, þjónustuferlum og fræðsluefni?
Blundar kennari í þér sem elskar að vera í kringum annað fólk?
Þá er þetta mögulega framtíðarstarfið þitt.
HUGBÚNAÐARSÉRFRÆÐINGUR FARÞEGA- OG
FLUGREKSTRARKERFA
ERTU FLUGÞENKJANDI OFURNOTANDI?
Leitað er að jákvæðum og skipulögðum ofurnotendum (e. super users) í
tölvukerfum sem snúa að gestum og flugrekstri WOW air. Starfsmennirnir
skipuleggja og sjá um kennslu í notkun kerfanna ásamt því að sjá um
rekstur þeirra frá degi til dags, veita ráðgjöf varðandi notkun og vera í
samskiptum við birgja. Þeir fá einnig að öllum líkindum viðurnefnið
Ofur á kaªstofunni.
WOW air er brosmilt lággjaldaflugfélag með það að markmiði
að bjóða ávallt upp á lægstu fargjöldin til og frá Íslandi.
Flugfélagið hefur vaxið mjög ört á skömmum tíma og við
hlökkum til að efla samkeppni í flugi enn frekar á komandi
árum með nýjum og spennandi áfangastöðum. Við leggjum
mikið upp úr því að hafa gaman af því sem við erum að gera,
bæði á skrifstofunni og gagnvart gestum okkar.
Hjá okkur starfa nú um 1100 hörkuduglegir starfsmenn.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Ítarlegri upplýsingar um störfin er að finna á vefnum okkar
wowair.is/starf. Þar er jafnframt tekið á móti umsóknum.
Frekari fyrirspurnir um störfin má senda á starf@wow.is.
Umsóknarfrestur til og með 18. desember 2017
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
0
-7
A
A
C
1
E
7
0
-7
9
7
0
1
E
7
0
-7
8
3
4
1
E
7
0
-7
6
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K