Fréttablaðið - 09.12.2017, Side 99
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Baldur Ragnarsson
rafvirkjameistari,
Vættagili 17, Akureyri,
lést mánudaginn 5. desember. Útförin fer
fram í Glerárkirkju 18. desember kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorgerður Fossdal
Thelma Baldursdóttir Friðbjörn Benediktsson
Berglind Baldursdóttir Eiður Magnússon
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hjördís Hjörleifsdóttir
Stafnaseli 4, Reykjavík,
sem lést 29. nóvember sl. verður
jarðsungin frá Seljakirkju þriðjudaginn
12. desember kl. 13.
Ástþóra Kristinsdóttir Magnús Eiríksson
Anton Á. Kristinsson Helga Sveinsdóttir
Hjörleifur Kristinsson Bára Hafsteinsdóttir
Kristinn Á. Kristinsson Hrund Grétarsdóttir
Hulda S. Kristinsdóttir Jón Ólafur Jóhannesson
ömmu- og langömmubörn.
Okkar ástkæri bróðir og frændi,
Árni Guðbrandsson
frá Jörfa í Haukadal í Dalasýslu,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, að morgni
5. desember sl. Útförin fer fram frá
kirkjunni á Stóra-Vatnshorni í Haukadal
þann 16. desember kl. 14. Aðstandendur þakka starfsfólki
á Höfða fyrir einstaka umhyggju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Eyþór H. Ólafsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir, mágkona og amma,
Jóna Fjalldal
hjúkrunarfræðingur,
lést á líknardeild Landspítalans
7. desember. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju 29. desember klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir
krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.
Halldór Arnarson Ingibjörg Bjarnadóttir
Birgir Örn Arnarson Kristjana Baldursdóttir
Þorvaldur Örn Arnarson Hólmfríður Björk Pétursdóttir
Oddur Fjalldal Katrín M. Bragadóttir
Guðrún Fjalldal Héðinn Eyjólfsson
og barnabörn.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Sólveig Ástvaldsdóttir
Lolley,
Hjallabraut 33,
lést á hjartadeild Landspítalans
2. desember.
Drífa Heiðarsdóttir Jón Helgi Jónsson
Ásthildur Heiðarsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún Matthildur
Sigurbergsdóttir
Skólavegi 22, Keflavík,
sem lést fimmtudaginn 23. nóvember,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
mánudaginn 11. desember klukkan 13.
Jón Björgvin Stefánsson
Sigurberg Jónsson Dagbjört Nanna Jónsdóttir
Stefán Jónsson María Sigurðardóttir
Jóhanna Jónsdóttir
Ásbjörn Jónsson Auður Vilhelmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Já, það er rétt, ég var nú bara búinn að gleyma því, stundum er það svona þegar mikið er að
gera,“ sagði Björgvin Franz Gísla-
son þegar hann var minntur á
fertugsafmælið sem er í dag. Sam-
talið átti sér reyndar stað fyrripart
vikunnar og þá var hann á fullu að
æfa fyrir tónleikana Hnallþórujól
ásamt Esther Jökulsdóttur en nú
eru þeir tónleikar yfirstaðnir þetta
árið. Óður til hinna amerísku jóla,
að sögn Björgvins.
„En ég er búinn að halda upp á
fertugsafmælið,“ tekur hann fram.
„Við héldum sameiginlega upp á
fertugsafmælin, ég og konan mín
Berglind Ólafsdóttir, því hennar
var 28. nóvember og mitt núna
9. desember. Það var svaka veisla.
Þetta var náttúrlega áttræðisafmæli
og okkur fannst alveg tilvalið að
halda það í félagsheimili aldraðra
uppi í Hraunbæ 105. Það var æðis-
lega gaman,“ segir hann og lýsir
partíinu nánar. „Það kom hópur úr
Ellyjarsýningunni og tók lagið. Svo
gáfu pabbi og mamma okkur uppi-
stand með Ara Eldjárn í afmælis-
gjöf. Honum fannst það sniðugt
að gefa afmælisgjöf sem ekki væri
hægt að skila. Ari sló alveg í gegn.
Var alveg hápunkturinn. Svo er ein
kona í bænum sem gerir snittur og
brauðtertur upp á danska móðinn,
hún Guðrún Karólína hjá Smur-
brauðsstofu Silju. Hvort tveggja var
sko algert listaverk og okkur fannst
það líka vel við hæfi að vera með
svona mikið af brauðtertum í átt-
ræðisafmælinu!“
Þó svo stórafmælið beri nú upp á
laugardag segir Björgvin Franz það
bara verða aukaglaðning. „Ég verð
náttúrulega að vinna eins og alltaf
en ég mun hitta vini mína og borða
með þeim einhvers konar þakkar-
gjörðarmáltíð. Það verður fínt.“
Björgvin Franz hefur nóg að gera
í leikhúsinu. Hann slær í gegn í
ýmsum hlutverkum í sýningunni
Elly, meðal annars sem Raggi
Bjarna. Það er ekkert lát á vin-
sældum þeirrar sýningar og eflaust
fá einhverjir miða á hana í jólagjöf.
„Svo er alltaf eitthvað af litlum verk-
efnum inn á milli hjá mér, fyrir utan
að vera fjölskyldufaðir,“ segir hann
og er í framhaldinu spurður um
barnafjölda á heimilinu. „Við eigum
eina dóttur sem er að verða níu ára
og svo er önnur sextán. Byrjuðum
svolítið snemma í barneignunum
og erum glöð með það núna.“
gun@frettabladid.is
Þetta var náttúrulega áttræðisafmæli
Æringinn Björgvin Franz Gíslason leikari er fertugur í dag og hefur þegar fagnað því ásamt eiginkonu sinni, Berglindi Ólafsdóttur, sem
varð fertug þann 28. nóvember síðastliðinn. Björgvin fannst við hæfi að halda upp á tímamótin í félagsheimili aldraðra í Hraunbænum.
„Ég verð náttúrlega að vinna eins og alltaf en ég mun hitta vini mína og borða með þeim einhvers konar þakkargjörðarmáltíð. Það verður fínt,“ segir Björgvin Franz. FrÉttaBlaðið/anton Brink
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 47L a U G a R D a G U R 9 . D e s e m B e R 2 0 1 7
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-3
A
7
C
1
E
7
0
-3
9
4
0
1
E
7
0
-3
8
0
4
1
E
7
0
-3
6
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K