Fréttablaðið - 09.12.2017, Blaðsíða 120
Ég hef ekki mikinn tíma til að hafa mig til á daginn, það tekur tíma að koma fjórum börnum út á morgnana. Ég er í mesta lagi tíu mínútur með
andlitið, það lærist með tímanum, ég
nenni sjaldnast að blása á mér hárið
svona hversdags, þá tekur rútínan 40
mínútur og ég hef ekki alltaf tíma til
þess.“
Íris Björk hefur í miklu að snúast
því að auk þess að vera með stórt
heimili starfar hún fyrir Securitas en
hún sér um að þjónusta þá sem eru
með öryggishnapp frá fyrirtækinu
og í sumar vann hún sem flugfreyja
á vegum Icelandair. Íris Björk gat
sér gott orð í fegurðarsamkeppnum
hér og erlendis á sínum tíma og var
meðal annars kjörin ungfrú Norður
lönd árið 2001.
„Það eru margir sem halda að ég
hafi mikið fyrir því að hafa mig til og
noti dýr merki, en hjá
mér er þetta tiltölulega
einfalt. Ég hef aldrei
notað sérstök krem, er
með góða húð og hef
alltaf verið. Ég á fjögur
börn og er ekki með
eitt slit og það er ekki
neinum kremum að
þakka, bara erfðum.
Ég hef oft verið spurð
hvað ég noti á húðina,
þegar ég var yngri þá
notaði ég Johnson’s baby lotion,
mér fannst svo góð lykt af því, og svo
makaði ég á mig vaselíni. Ég fór ekki
að nota neitt sérstakt krem fyrr en í
sumar í fluginu. Ég nota Æskugaldur
frá Villimey, ég tók eftir því að það
rokseldist í Saga Shop og Asíubúarnir
sem ferðuðust með okkur voru
alveg vitlausir í þetta. Ég ákvað að
kynna mér málið og sá að þetta er
alveg hrein vara. Nú get ég ekki
án þess verið. Ég setti það undir
farðann þegar að ég var að fljúga í
sumar, þá varð ég ekki eins þurr.
Ég þvæ farðann ekki af mér á
kvöldin, tek þetta bara í morg
unsturtunni, ég set Æskugaldur
inn á fyrir svefninn og dagsdag
lega nota ég litað dagkrem því
ég vil ekki þekja of mikið og enga
sérstaka týpu, bara það sem ég fíla
hverju sinni. En ég nota bara meik
þegar ég fer í flug, mér
finnst gott að spreyja
yfir með NYX spreyi,
þannig helst farðinn
betur yfir daginn.“
Laxerolía á auga
brúnirnar
„Mér finnst skipta máli
hvað ég set á mig, maður
á helst að geta borðað
það sem fer á húðina. Ég
spái töluvert í innihaldið
og vil helst hafa allt sem
náttúrulegast. Í sumar
þegar ég var stödd í verslun
CVS í Boston og var eitthvað að
skoða þá kemur afgreiðslukonan
alveg upp að mér, og segir að ég
líti út fyrir að vera heilbrigð og
að ég sé með svo góða húð.
Hún var mjög fyndin, minnti
á norn úr teiknimyndum og
meira að segja með vörtu á
hökunni. Alla vega benti
hún mér á heimasíðu, Skin
deep, en þar er að finna
innhaldslýsingar á næstum
því öllum snyrtivörum sem
eru framleiddar í heiminum. Henni
fannst að ég ætti endilega að kynna
mér hana. Núna bendi ég öllum á
þessa síðu.“
En skyldi Íris eiga eitthvert fegr-
unarráð sem er óvenjulegt? „Ég set
laxerolíu á augabrúnirnar. Það vant
aði heilmikið inn í þær, ég er með
Addisson’s og þetta er fylgifiskur
þess og lyfjanna sem ég þarf að taka.
Ég get sko vel mælt með þessu, þetta
virkar hjá mér. En helsta förðunar
trixið mitt er Max Factor stifti sem er
í rauninni hyljari, ég set hann undir
augun og á andlitið og það er oft það
eina sem að ég þarf, og svo maskari.
Íris segist vera útsjónarsöm og
eyða ekki miklu fé í snyrtivörukaup,
hún nýtir sér Tax Free dagana í Hag
kaupum og kaupir erlendis þegar
færi gefst. „Ég eltist ekki við merkja
vöru, ef ég sé eitthvað sem mér finnst
flott, augnskugga og annað, þá kaupi
ég það. Ég nýtti tækifærið í sumar
þegar ég komst í verslanir í stopp
unum, það er bara himinn og haf á
milli þess sem snyrtivörur kosta hér
og erlendis. Svo hverfur þetta ansi
hratt á heimilinu, ég á tvær unglings
dætur sem komast stundum í dótið
mitt“, segir Íris Björk og skellihlær.
Fellur fyrir
Íris er útsjónarsöm og eyðir ekki miklu fé í snyrtivörur. FréttabLaðið/Ernir
„Það eru margir sem halda að ég hafi mikið fyrir því að hafa mig til og noti dýr merki,“ segir Íris. FréttabLaðið/Ernir
náttúrulegum vörum
Íris Björk Árnadóttir flugfreyja, öryggis-
vörður og fjögurra barna móðir, er fljót að
taka sig til á morgnana enda nóg að gera hjá
henni. Rútínan er í mesta lagi 40 mínútur.
Fu l l búð af ný jum
vörum fyr ir jó l in
Toppur
7590
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r68 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
0
-5
D
0
C
1
E
7
0
-5
B
D
0
1
E
7
0
-5
A
9
4
1
E
7
0
-5
9
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K