Fréttablaðið - 09.12.2017, Qupperneq 122
Árið 2017 var tvímælalaust árið
hans Eds Sheeran samkvæmt tölum
frá Spoti fy en plötu hans Divide var
streymt 3,1 milljarðs sinnum á árinu
og lagið Shape of You var sömuleiðis
streymt um 1,4 milljarða sinnum.
Þetta eru ótrúlegar tölur – líklega er
samanlagður tími þriggja milljarða
streyma á plötunni Divide eitthvað
í kringum aldur alheimsins (þetta er
ekki vísindalegur útreikningur).
Þessi árangur hjartaknúsarans Eds
Sheeran var þó engan veginn nægjan
legur til að hrinda hipphopptónlist
inni af vagninum sem hún ferðast með
á ógnarhraða um þessar mundir – en
ansi margir hafa spáð dauða tónlistar
stefnunnar ítrekað síðustu misserin,
án árangurs. Samkvæmt tölum frá
Spotify jókst hlustun á þessa tiltölu
lega ungu tónlistarstefnu um 74% í
heiminum frá því á síðasta ári, en þá
var tónlistarstefnan einnig gríðarlega
vinsæl.
Það þarf ekki annað en að skoða
íslenska vinsældarlistann á Spotify til
að sjá birtingarmynd þessarar stefnu
í heiminum, en fyrir utan Ed Sheeran
eru fimm vinsælustu tónlistarmenn
irnir á Íslandi allir rapparar – Aron
Can, Jói Pé og Króli, Drake og Emmsjé
Gauti.
Vorkennir öllum rokkbörnunum
Tekur þú eftir þessum auknu vinsæld-
um? „Já, þetta breyttist helling eftir að
Vagg og velta kom út og ég náði inn
hitturum. Strákarnir er fyrsti hittarinn
minn. Um leið og þú nærð inn einum
hittara þá er auðveldara fyrir þig að fá
athygli á tónlistina sem kemur eftir
það,“ segir Emmsjé Gauti, sem sam
kvæmt tölum frá Spotify er fimmti vin
sælasti tónlistarmaður landsins – rétt
á eftir Drake. Gauti útskýrir að þegar
hann fylgist með Spotify Analytics, töl
fræðilegum upplýsingum um hlustun
sem listamenn hafa aðgang að, þá sjái
hann að eitt vinsælt lag hækkar tölur á
öllu öðru sem birtist eftir hann og eftir
að hlustunum taki að fækka, fari þær
samt aldrei niður í sömu hlustunar
tölur eða niður fyrir þær aftur. Þann
ig veldur algóritminn á Spotify því að
vinsælir listamenn birtast mun oftar í
lagalistum streymisveitunnar og fá því
alltaf mikla spilun.
„Það er líka meira að gera í spila
mennsku. Ég vorkenni til dæmis mjög
mikið rokkbörnum í grunnskóla og
menntaskóla því að Emmsjé Gauti
er að spila á öllum böllunum,“ bætir
Gauti við.
„Ég var skeptískur í fyrstu og hélt að
þetta væri að fara að hafa slæm áhrif.
En Spotify er í raun einu tekjurnar
sem ég hef af tónlistarsölu í dag – það
er í raun og veru bara streymi. Það er
margfalt meira en plötusala er í dag.
Þetta er 100 prósent framtíðin. Spoti
fy á reyndar markaðinn og það væri
gaman að fá einhvern annan inn svo
listamennirnir fái meira greitt því
að þeir mættu fá betur borgað, en ég
held að það eigi eftir að lagast með
tímanum.“
Áfram gakk, Spotify!
„Ég hef tekið eftir miklum mun á
þessu ári sem er að líða og 2016. Bæði
með minni eigin notkun á Spotify og
þeirra sem í kringum mig eru. Veitan
er að verða viðurkenndari og leiðandi
aðferð við tónlistardreifingu. Um leið
erum við að fylgjast með henni þróast
á ógnarhraða. Hlakka til að sjá hvaða
viðbætur munu koma á næstkomandi
ári og vonandi verða þær í rétta átt. Ég
tel að íslenskir listamenn eigi eftir að
geta nýtt sér veituna enn þá meira sér
til hagsbóta á næstu misserum. Áfram
gakk, Spotify,“ segir Geoffrey Þór
HuntingtonWilliams hjá plötufyrir
tækinu Sticky Records, en það hefur
gefið út efni með Gauta og Aroni Can.
stefanthor@frettabladid.is
Hipphoppvagninn heldur áfram að rúlla
Samkvæmt tölum frá Spotify er hipphopptónlistarstefnan hvergi nærri hætt að vera vinsæl. Í fyrra var tónlistar-
stefnan gríðarlega vinsæl en í ár aukast vinsældir hennar um heil 74% og það þó að Ed Sheeran slái öll met.
Emmsjé Gauti spilar meira og þénar
meira í gegnum streymi en áður.
Geoffrey hjá Sticky Records er spenntur fyrir framtíð Spotify.
Ég vorkenni til
dæmis mjög mikið
rokkbörnum í grunnskóla
og menntaskóla því að
emmsjÉ gauti er að spila á
öllum böllunum.
Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall
sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í
ferðaþjónustu. Tíu sérvalin sprotafyrirtæki fá
ár hvert tækifæri til að þróa áfram viðskipta-
hugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra
frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga
þeim að kostnaðarlausu.
Við leitum að verkefnum sem stuðla að
dreifingu ferðamanna víðs vegar um landið,
allan ársins hring og nýjum lausnum sem
styðja innviði ferðaþjónustunnar.
Hraðallinn hefst 15. janúar 2018
og fer fram í Reykjavík.
Nýsköpun í
ferðaþjónustu
Umsóknarfrestur
til 11.desember
Taktu næsta skref
með Startup Tourism
Startuptourism.is
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r70 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
0
-5
8
1
C
1
E
7
0
-5
6
E
0
1
E
7
0
-5
5
A
4
1
E
7
0
-5
4
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K