Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2003, Page 17

Víkurfréttir - 22.12.2003, Page 17
VÍKURFRÉTTIR I 52. TÖLUBLAÐ I MÁNUDAGURINN 22. DESEMBER 2003 VÍKURFRÉTTIR - JÓLABLAÐ II 17 ára og hann svona 15 eða 16, þannig að við höfum ekki þessar djúpu rætur. En ég veit ekki hvernig þetta atvikaðist. Hann fór bara í Njarðvík og ég í Kefla- vík. Það var bara ekkert verið að spá í þetta.“ Sigurður jánkar því að Njarðvík- Keflavík leikirnir hafi verið skrítnir fyrir þá bræður á þessum tíma , en segir að það hafi bara aukið á gamanið. Hann lítur til baka til þess tíma og ekki er laust við að örli á fortíðarþrá. „Þá var gaman að spila. Rígurinn var miklu meira áberandi og allt fullt út úr dyrum og þvílíkt fjör og læti. Sá rígur hefur nú minnk- að eðlilega en þá var meira fjör í kringum þessa leiki og alltaf hús- fyllir.“ Að lokum spyrjum við Sigurð hvort að honum finnist mikil munur á hlutverkum kennara, annars vegar og þjálfara hins vegar. Þar sem hann hefur mikla reynslu af hvoru tveggja. „Það er náttúrulega hellingsmunur á því að þjálfa og kenna, en vissir hlut- ir eru mjög líkir. Þetta er náttúru- lega tengt en það er ekki verið eins mikið að hvetja nemendur við kennslu eins og gert er í íþróttum sem er svolítið merki- legt. Þar má peppa fólk upp og segja mönnum að þeir séu góðir og þeim gangi vel, en það er ekki litið eins vel á það í skólanum, en það mætti vera meira um það. Það bara tíðkast að það sé allt í lagi í íþróttum en ekki í skólan- um. Það er kannski eðlilegt en svolítið merkileg staðreynd.“ Að samtalinu loknu kveður Sig- urður með virktum en hann þarf að snúa sér að öðrum störfum enda að mörgu að hyggja í Myllubakkaskóla sem endranær. „Þá var gaman að spila. Rígurinn var miklu meira áberandi og allt fullt út úr dyrum og þvílíkt fjör og læti. Sá rígur hefur nú minnk- að eðlilega en þá var meira fjör í kringum þessa leiki og alltaf húsfyllir.“ Jolablad II - 64 sidur pdf2 20.12.2003 3:18 Page 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.