Víkurfréttir - 22.12.2003, Blaðsíða 56
VÍKURFRÉTTIR - JÓLABLAÐ II VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!56
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
➤ 1 0 - 1 1 M Ó T K E F L A V Í K U R O G N J A R Ð V Í K U R Í K N AT T S P Y R N U
Helgina 22.-23. nóvemberfór 10-11 mótið í knatt-spyrnu fram í Reykja-
neshöllinni. Um var að ræða
mót sem Keflavík og Njarðvík
héldu í sameiningu og var
yngri flokkum Fjölnis, FH og
ÍA boðið auk sameinaðs liðs
Reynis og Víðis og svo kepptu
gestgjafarnir að sjálfsögðu líka.
Þátttakendur voru um 250 frá lið-
unum sex og voru alls konar
uppákomur um helgina til að sjá
til þess að krakkarnir skemmtu
sér sem best. Eftir að keppni lauk
á laugardag var haldið með
krakkana í sýnisferð upp á flug-
völl þar sem starfsemi slökkvi-
liðsins var skoðuð og þar á eftir
gengu krakkarnir fylktu liði nið-
ur í Nýja Bíó þar sem þau fengu
að sjá nýju Disney-myndina
„Finding Nemo“. Að sýningu
lokinni fóru krakkarnir upp í
Holtaskóla þar sem þau gistu um
nóttina. Eftir að keppni lauk um
kl. 15.00 á sunnudag var krökk-
unum boðið til pizzuveislu til að
fagna mótslokum.
Liðunum var getuskipt í A-B-C-
og D-lið og kepptu þau innan
þeirra. Í úrslitum A liða unnu
FH-ingar, Njarðvík lenti í öðru
sæti og Keflvíkingar voru í því
þriðja. Í keppni B-liða hafði
Fjölnir sigur, ÍA og FH fylgdu í
kjölfarið. Í flokki C-liða vann
Fjölnir og C1- og C3-lið FH voru
í 2. og 3. sæti. Þá var FH í fyrsta
sæti D-liða en D1- og D2-lið
Fjölnis voru í næstu sætum. Þá
var keppt í X-riðli þar sem lið úr
B- C- og D-deildunum sem
komust ekki í úrslit áttust við í
sama riðli. Þar hafði B2-lið
Fjölnis sigur eftir úrslitaleik við
sameinað lið Reynis og Víðis.
Mótið fór afskaplega vel fram í
alla staði en Ungmennaráð
Keflavíkur vildi koma á framfæri
miklum þökkum til allra sem
lögðu hönd á plóginn til að gera
mótið eins glæsilegt og raun bar
vitni. Sérstaklega vildu þau
þakka 10-11, styrktaraðila móts-
ins, og foreldrafélögum Keflavík-
ur og Njarðvíkur sem unnu mik-
ið og gott starf.
Jolablad II - 64 sidur pdf 20.12.2003 2:07 Page 56