Víkurfréttir - 22.12.2003, Blaðsíða 20
Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712sportið
VÍKURFRÉTTIR - JÓLABLAÐ II VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!20
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
Keflavík tapaði fyrir CAB
Madeira í Bikarkeppni Evrópu
á fimmtudaginn. Lokastaðan
var 108-107 heimamönnum í
vil.
Eftir að hafa saxað á forystuna
sem Madeira náði í byrjun leiks,
missti Keflavík þá of langt fram
úr sér undir lok fyrri hálfleiks þar
sem þeir voru ekki nógu einbeitt-
ir í sókninni og voru að missa
boltann óþarflega oft og staðan í
hálfleik var 58-46.
Í seinni hálfleik komu Keflvík-
ingar firna öflugir til leiks og
komust yfir, 67-68 eftir 9-22
kafla. eftir það var leikurinn hníf-
jafn og einkenndist af mikilli bar-
áttu. Í lok 3. leikhluta höfðu
Keflvíkingar nauma forystu, 77-
78.
Síðasti leikhluti var í járnum all-
an tímann og spennan var raf-
mögnuð allt fram á síðustu sek-
úndu. Magnús Þór fór af velli
með f imm villur um miðjan
fjórðunginn og skömmu síðar
fylgdi Jón Nordal í kjölfarið og
kom ekki meira við sögu. Allt
var á suðupunkti og Madeiringar
fimm stigum yfir, 99-94, þegar
rúmar þrjár mínútur voru til leik-
sloka. Þá tóku Keflvíkingar al-
deilis við sér og komust yfir á ný,
99-101, þegar tvær mínútur voru
til leiksloka. Nick Bradford og
Derrick Allen fóru hamförum á
þessum kafla, og þegar 30 sek-
úndur voru eftir var staðan 106-
106 og spennan í algleymingi. Á
síðustu andartökum leiksins var
brotið á Allen í skoti en ekkert
var dæmt og Madeira vann 108-
107.
Falur Harðarson sagði sína menn
vera mjög svekkta með að hafa
ekki fengið víti undir lokin.
„Dómararnir guggnuðu bara!
Þetta var ekkert annað en villa!
Annars get ég ekki verið annað
en ánægður með spilið hjá strák-
unum, sérstaklega í seinni hálf-
leik.“ Aðspurður sagði Falur að
Nick Bradford hafi leikið sérlega
vel í kvöld þrátt fyrir að hafa
spilað í annarri stöðu en venju-
lega.
Bradford var stigahæstur Kefl-
víkinga með 38 stig, Derrick
Allen var með 28 stig og Jón
Nordal með 17.
Marcos var stigahæstur Madeira
með 23 stig. Næstir voru Leeks
með 21 stig, Termens með 19
stig og Johnston með 17 stig og
11 fráköst.
Leikur Ovarense og Toulon fór
77-80 fyrir Frakkana sem ýttu
Keflavík niður í 3. sæti riðilsins
og munu þeir því mæta Dijon í 8-
liða úrslitum. Dijon mun hafa
heimavallarréttinn, en það lið
sem fyrr vinnur tvo leiki kemst
áfram í undanúrslit Vesturdeild-
arinnar.
KARLALIÐIÐ
Sigurður Ingimundarson til-
kynnti sinn fyrsta landsliðshóp á
fimmtudaginn var. Landsliðinu,
sem skipað er 20 leikmönnum, er
skipt í tvo hópa sem munu leika
tvo leiki gegn bandaríska háskól-
anum Catawba College á milli
jóla og nýárs. Ekki er um eigin-
lega landsleiki að ræða, enda
verður lið Íslendinga samansett
af leikmönnum sem leika hér
heima. Lið 1 mun leika fyrri leik-
inn sunnudaginn 28. desember
kl. 19:15 í íþróttamiðstöðinni
Dalhúsum í Grafarvogi og lið 2
hinn seinni, mánudaginn 29. des-
ember kl. 19:15 í íþróttahúsinu í
Þorlákshöfn.
Í hópnum eru sjö leikmenn sem
aldrei hafa leikið landsleik, En af
þeim sem hann velur er Friðrik
Stefánsson, fyrirliði Njarðvíkur
reyndastur með 57 leiki að baki.
Helmingur hópsins eru leikmenn
Suðurnesjastórveldanna. Gunnar
Einarsson, Jón Nordal Hafsteins-
son, Halldór Örn Halldórsson og
Magnús Þór Gunnarsson leika
með Keflavík. Brenton Birming-
ham, Friðrik Stefánsson, Guð-
mundur Jónsson, Páll Kristinsson
og Egill Jónasson eru úr Njarð-
vík og síðastur en alls ekki sístur
er Páll Axel Vilbergsson úr
Grindavík.
KVENNALIÐIÐ
Ívar Ásgrímsson, nýráðinn lands-
liðsþjálfari kvenna, hefur valið
sinn fyrsta landsliðshóp. Hópur-
inn, sem skipaður er 22 leik-
mönnum, mun æfa á milli jóla og
nýárs, en næsta sumar mun liðið
taka þátt í Promotion Cup í And-
orra í júlí og Norðurlandamótinu
sem haldið verður í Svíðþjóð í
ágúst. Einnig er stefnt er æfinga-
leikjum fyrir þessi verkefni.
Níu stúlknanna eru frá Keflavík,
en þær eru Erla Reynisdóttir,
Marín Karlsdóttir, Rannveig
Randversdóttir, Birna Valgarðs-
dóttir, Svava Stefánsdóttir, Kefla-
vík
Bryndís Guðmundsdóttir, Anna
María Sveinsdóttir, Erla Þor-
steinsdóttir og María Erlingsdótt-
ir. Auður Jónsdóttir og Ingibjörg
Vilbergsdóttir koma frá Njarðvík
og Petrúnella Skúladóttir og Sól-
veig Gunnlaugsdóttir frá Grinda-
vík.
NJARÐVÍK-TINDASTÓLL
Njarðvík tapaði óvænt fyrir
Tindastóli í Ljónagryfjunni á
fimmtudagskvöld, 87-91. Njarð-
víkingar byrjuðu ágætlega og
voru með 10 stiga forystu eftir
en í öðrum leikhluta var farið að
bera á andleysi og einbeitingar-
leysi sem leiddi til þess að gest-
irnir sóttu í sig veðrið og í hálf-
leik var staðan 48-44. Leikur
Njarðvíkinga batnaði ekkert í
seinni hálfleik og fyrir síðasta
leikhluta höfðu gestirnir eins
stigs forystu, 67-68. Ekki stóð
steinn yfir steini í leik heima-
manna undir lokin og unnu Stól-
arnir loks sanngjarnan fjögurra
stiga sigur.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Njarðvíkur, var öskuillur í leiks-
lok og vandaði sínum mönnum
ekki tóninn. „Þetta var bara öm-
urlegt. Maður uppsker eins og
maður sáir í þessu, og þeir lögðu
lítið í þennan leik og uppskáru
ekkert. Friðrik Stefánsson var sá
eini sem kom til að spila í kvöld
en hinir voru ekki að spila sem
lið. Svona gerist þegar menn
halda að þeir séu betri en þeir eru
í raun. Við getum unnið hvaða lið
sem er, en við höfum sýnt það í
kvöld að við getum líka tapað
fyrir hverjum sem er.“
Brandon Woudstra var stigahæst-
ur Njarðvíkinga með 28 stig,
Brenton skoraði 19, Páll Krist-
insson setti 13 stig og tók jafn-
mörg fráköst. Friðrik skoraði 12
stig og tók 10 fráköst.
Clifton Cook skoraði 29 stig fyrir
Stólana, Nick Boyd skoraði 22
og tók 13 fráköst.
L A N D S L I Ð S H Ó P A R T I L N E F N D I R Í K Ö R F U N N I
Suðurnesjaúrval í landsliðum
Intersport-deildin:
Bikarkeppni Evrópu:
„Þetta var bara ömurlegt“
„Dómararnir guggnuðu“
- segir Falur Harðarson, sem segir sína menn svekkta!
Sjö ný aldursflokkamet litu dagsins ljós á metamóti ÍRB sem
fram fór í sundmiðstöðinni í Keflavík þann 17. des. Metin sem
vaskir liðsmenn ÍRB bættu voru í 4 x100m flugsundi, sveina,
meyja, drengja, telpna og stúlkna. Einnig bættu þau metin í 4
x 100m fjórsundi meyja og 10 x 50m skriðsundi sveina. Gríð-
arlegur gangur er nú í öllu starfi ÍRB sem er orðið algengt
nafn í metaskrám SSÍ.
Góður árangur á metamóti ÍRB
Jolablad II - 64 sidur pdf 20.12.2003 1:44 Page 20