Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2003, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 22.12.2003, Blaðsíða 18
Verslunareigendur viðHafnargötuna í Reykja-nesbæ eru ánægðir með verslun nú fyrir jólin. Þeir aðil- ar sem Víkurfréttir hafa rætt við segja að verslun sé nokkuð betri en fyrir jólin í fyrra. Þeg- ar blaðamaður leit við hjá nokkrum verslunum á föstu- dag var mikið af fólki í versl- unum og var það mestu vand- kvæðum bundið að ná tali af afgreiðslufólki. Þeir aðilar sem Víkurfréttir ræddu við voru sammála um að Jólalukkuleik- ur Víkurfrétta og verslana í Reykjanesbæ hefði tekist mjög vel. Það er greinilegt að við- skiptavinir og verslunareigend- ur eru komnir í mikið jólaskap og er sannkölluð jólastemmn- ing á Hafnargötunni fyrir þessi jól. Reynir Ólafsson hjá Rafbúð RÓ sagðist vera nokkuð ánægður með jólaverslunina. „Það er búið að vera svipuð verslun og í fyrra og við erum bara nokkuð ánægð,“ sagði Reynir. Aðspurð- ur um það hvort það væri ekki mikið stress hjá verslunareig- endum þegar líður að aðfanga- degi sagði Reynir ekki svo vera. „Við erum búin að vera í þessu svo lengi að við erum orðin vön. Þegar maður var yngri var maður hinsvegar miklu stressaðri,“ sagði Reynir með bros á vör og fór að sinna viðskiptavinum sem voru þó nokkrir í versluninni. Hjá Stapafelli var mikið af fólki þegar blaðamaður leit við. Hildur Gunnarsdóttir afgreiðslustúlka var ánægð með verslunina. „Við erum bara ánægð og það hefur verið fínt að gera,“ sagði Hildur, en í Stapafelli er opið til 22 öll kvöld fram að jólum. Hildur sagði að Jólalukka Víkurfrétta og verslana væri mjög vinsæl hjá viðskiptavinum. „Heyrðu ég verð að rjúka,“ sagði Hildur og rauk til að aðstoða viðskiptavin. Ágústa Jónsdóttir hjá versluninni Per- sóna var glöð í bragði þegar blaðamann bar að garði. „Það er búið að vera svo fínt að gera og við erum bara mjög ánægð,“ sagði Hildur, en í Persónu er opið til 22 öll kvöld fram að jólum. „Það er mjög gaman að sjá hvernig Suðurnesjamenn taka kvöldopnun verslana því það er búið að vera nóg að gera á kvöld- in og mikið af fólki sem nýtir sér það að versla eftir vinnu.“ Jólalukkumiðarnir hafa rokið út hjá Ágústu og sagði hún að við- skiptavinir kynnu greinilega að meta jólalukkuleikinn. S t e l p - urnar í Kóda voru hressar,enda búið að vera nóg að gera. Hildur Kristjánsdóttir sagði að jólaverslunin hefði gengið vel. „Við erum mjög ánægðar og verslun fyrir þessi jól hefur verið betri en í fyrra. Jólalukkumiðarn- ir hafa rokið út og kúnninn gleymir ekki að taka miða. Jólalukkuleikurinn er bara rosa- lega jákvæður fyrir verslun í Reykjanesbæ og þetta er örugg- lega komið til að vera,“ sagði Hildur og afgreiðslustelpurnar tóku undir með henni. Það var mikið fjör á þeim og búið að vera mikið að gera þegar blaðamaður leit í heimsókn. En er ekkert mikið stress hjá verslunareigend- um á aðfangadag? „Maður er orðinn svo hrikalega sjóaður í þessu og það er ekki til stress. Maður skipuleggur þetta bara vel og þá reddast þetta,“ sagði Hildur og Víðir Jónsson starfsmaður Hitaveitu Suðurnesja sem stadd- ur var í Kóda bætti við: „Já og þær láta karlmennina um allan undirbúninginn fyrir jólin.“ Hjá Fjólu gullsmið var full versl- un af viðskiptavinum. Þarna voru eiginmenn að skoða gjafir fyrir eiginkonurnar. Eigin- konur að skoða gjafir fyr- ir eiginmennina og pör að skoða saman. Fjóla gaf sér þó tíma til að spjalla örlítið við blaðamann og er hún ánægð með jóla- verslunina. „Það er búið að vera fínt að gera síð- ustu daga og eykst frá degi til dags,“ sagði Fjóla og bætir við að viðskiptavinir hennar séu ánægðir með Jóla lukkule ik inn . „Jólalukkuleikurinn er að gera mikla lukku og viðskiptavinirnir eru meðvitaðir um leikinn sem er mjög ánægjulegt. Þessi leikur er að gera m i k i ð fyrir verslun í Reykjanesbæ.“ Fjóla segir stress verslunareig- enda vera mikið fyrir jólin. „Það er í raun stress allan desember mánuð. Á síðustu jólum fórum við að borða klukkan 9 um kvöldið, en ég fór í að keyra út pökkum til viðskiptavina klukk- an 6 á aðfangadag,“ sagði Fjóla og hafði ekki tíma fyrir frekara spjall, enda full búð af viðskipta- vinum. Hjá Fjólu er opið frá klukkan 10 til 22 alla daga fram að jólum. Óskar Færseth í Sportbúð Óskars var í óða önn að afgreiða við- skiptavini þegar blaðamaður leit við. Óskar var staddur í veiði- horninu í versluninni og hann er ánægður með jólaverslunina. „Þetta er búið að vera fínt og verslunin byrjaði snemma. Við vonum að það haldist fram að jólum. Jólalukkan hefur líka gengið mjög vel og leikurinn er greinilega kominn til að vera,“ sagði Óskar og tók til við að af- greiða feðga sem voru að kaupa jólagjöf. VÍKURFRÉTTIR - JÓLABLAÐ II VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!18 G le ð il e g a h á tí ð ! ➤ J Ó L A V E R S L U N I N Á S U Ð U R N E S J U M Verslunareigendur ánægðir með jólaverslun Flugmiðarnir fljúga út Tveir heppnir viðskipta-vinir verslana í Reykja-nesbæ hafa fengið Evr- ópufarmiða í Jólalukkuleik Víkurfrétta og verslana.Við- skiptavinirnir fengu Jóla- lukkumiðana í Stapafelli og Lyf og heilsu. Í Jólalukku- leiknum eru 16 ferðavinning- ar frá Icelandair, auk fjölda annarra vinninga. Þeir sem fá kóka kóla vinning eða eng- an vinning í Jólalukkuleikn- um geta sett miðana í kassa í Samkaupum, en dregið verð- ur úr þeim miðum í Sam- kaup á Þorláksmessu. Einn ferðavinningur verður dreg- inn út, auk 20 annarra vinn- inga. Ágústa Jónsdóttir í Persónu. Reynir Ólafsson í Rafbúð RÓ Óskar Færseth í sportbúð sinni. Skvísurnar í Kóda voru kátar. Fjóla gullsmiður hafði í nógu að snúastþegar blaðið kíkti í heimsókn. Jolablad II - 64 sidur pdf2 20.12.2003 3:19 Page 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.