Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 6
6 Helgarblað 15. desember 2017fréttir Þ etta er svo grátleg staða, að þurfa að neita börnunum sínum um allt. Ég er sjálf al- gjört jólabarn og mér finnst skelfilega erfitt að þurfa að fela það fyrir þeim hvað ég kvíði jólun- um mikið.“ Þetta segir einstæð móðir á landsbyggðinni en hún á erfitt með að sjá fram á að geta haldið jól með börnunum sínum. Hún þarf að reiða sig á samfélags- miðla til að geta sett mat á borðið á aðfangadagskvöld og hefur aldrei keypt flugelda fyrir gamlárskvöld. Önnur kona sem DV ræddi við hefur þurft að selja innbúið sitt og safna dósum í von um að geta haldið jólin. Hún kveðst vera orðin uppgefin á aðstæðunum. Fjöldi íslenskra fjölskyldna hef- ur ekki efni á að halda heilög jól nú í ár. Stór hluti hópsins eru mæður á örorkubótum sem sjá ekki aðra lausn en að leita á náðir hjálpar- stofnana eða Facebook fyrir há- tíðarnar. Þær lýsa skömm og niður- lægingu vegna aðstæðna sinna en einnig þakklæti fyrir gjafmildi og náungakærleika Íslendinga sem virðist vera allsráðandi í desem- ber. DV ræddi við nokkrar þessara kvenna en allar eiga þær það sam- eiginlegt að vilja gera hvað sem er til þess að börn þeirra þurfi ekki að líða skort á jólunum. „Algjörlega búin á því“ „Ég er að reyna að gera allt sem ég get til að lifa af út mánuðinn. Ég er til dæmis búin að selja meirihlutann af búslóðinni. Við höfum líka reynt að tína dósir til að fá smá aukapening. Ég veit ekki hvernig ég á annars að fara að þessu. Maður bara reynir eins og maður getur að redda sér fyrir börnin þannig að þau þurfi ekki að finna fyrir þessu.“ Halldóra Sævarsdóttir er fjögurra barna móðir og öryrki vegna slyss sem hún varð fyr- ir sem barn. Eiginmaður henn- ar er sömuleiðis öryrki eftir slys. Börn þeirra fjögur eru á aldrin- um tveggja til tólf ára og dvelja um þessar mundir á fósturheimili en þau dvelja hjá foreldrum sínum á jólum og páskum. Halldóra flutti ung að heiman. Móðir hennar lést árið 2003 og hún er ekki í sam- skiptum við föður sinn í dag. Hún hefur því lítið sem ekkert bakland. Hjónin þiggja bæði örorku- bætur sem eru rúmlega 190 þús- und krónur á mánuði og þá bætist við jólauppbót í desember sem er tæpar 25 þúsund krónur. Eftir að húsaleiga og reikningar hafa ver- ið greiddir er lítið eftir til að lifa af mánuðinn. Halldóra hefur reynt að hífa tekjur heimilisins með því að bjóða fram þjónustu inni á Facebook-hópnum Skutlarar. Á dögunum keypti hún notaðan bíl á 150 þúsund krónur og setti það fjárhag heimilisins á hliðina. „Oftast er þetta þannig að við þurfum að leita aðstoðar um miðjan mánuðinn. Ég á svona 30 til 40 þús- und til að lifa af núna í desember.“ Undanfarin jól hefur fjölskyld- an þurft að reiða sig á matargjaf- ir frá hjálparstofnunum og þannig verður það einnig nú í ár. Þá er eft- ir að kaupa jólagjafir, jólaskraut og ýmislegt annað sem telst nauðsyn- legt til þess að halda heilög jól. „Eins og staðan er í dag þá bara vona ég að við náum að redda þessu einhvern veginn. Ég hef sagt við börnin: „Pabbi og mamma eru að gera allt sem þau geta til að geta gefið ykkur það sem þið viljið, af því að þið eigið bara það besta skilið.“ „Ég vildi að ég gæti bara sleppt jólunum“ n Þúsundir Íslendinga hafa ekki efni á að halda jól n Álag, kvíði og niðurlæging Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Skynjar mikla neyð hjá fólki Áslaug Guðný Jónsdóttir heldur úti síðunni Matarhjálp Neyðar- kall Jólaaðstoð á Facebook þar sem einstaklingar og hópar geta óskað eftir og veitt öðrum að- stoð. Áslaug hefur reynt að að- stoða fólk eftir fremsta megni en hún segir jólin og páskana erfið- ustu mánuðina. 80 manns eru á lista hennar núna fyrir jólin og enn bætist í hópinn. „Neyðin er orðin svo mikil. Það eru margir sem skrifa mörg- um sinnum á dag og spyrja hvort einhver hjálp sé komin. Ég skynja ofboðslega mikla fátækt í þjóðfé- laginu. Einu sinni kom kona til mín með börnin með sér. Ég bauð þeim inn og bauð börnunum og móðurinni kex og brauð. Ég hef aldrei á minni lífsleið séð svona svöng börn. Þau skulfu á meðan þau fengu sér og spurðu alltaf: „Megum við fá meira?“ Ég mun aldrei gleyma þessu. Ég man líka eftir gömlum manni sem átti ekki mjólkurdropa. Við fórum og fylltum allt hjá honum. Það þarf að hækka bætur hjá fólki svo það geti lifað mannsæm- andi lífi. Við erum ekki þróunarríki.“ „Ég hef sagt við börnin: „Pabbi og mamma eru að gera allt sem þau geta til að geta gefið ykkur það sem þið viljið, af því að þið eigið bara það besta skilið. „Afskaplega niðrandi að þurfa að reiða sig á náðir annarra til að geta veitt börnunum sínum það sem þau eiga skilið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.