Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Page 10
10 Helgarblað 15. desember 2017fréttir
B
irgir Þórarinsson er ekki
landsþekktur maður, að
minnsta kosti ekki ennþá.
Birgir er oddviti Miðflokks-
ins í Suðurkjördæmi og var kjör-
inn á þing í haust. Miðflokkurinn er
enn að stórum hluta óskrifað blað
í íslenskum stjórnmálum, flokk-
urinn var stofnaður af Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni nokkrum
vikum fyrir kosningar eftir að Sig-
mundur yfirgaf Framsóknarflokk-
inn. Flokkurinn gaf sig út fyrir að
vera eins konar framhald af Fram-
sóknarflokknum þegar hann var
undir stjórn Sigmundar á árunum
2009 til 2016. Birgir var úti í kirkju
sem hann er að byggja í túninu
heima af Minna-Knarraðarnesi
á Vatnsleysuströnd þegar blaða-
mann DV bar að garði. Kirkjan er
gamaldags sveitakirkja í íslensk-
um 19.aldar stíl og virðist vera full-
kláruð að utan en innandyra sést
að það á mikið eftir að gera. „Ég
stefni á að vígja hana sumarið 2019.
Það á margt eftir að gera, ég á eftir
að klára loftið, þar ætla ég að koma
fyrir skrifborði til að skrifa þing-
ræður,“ segir Birgir stoltur. „Það var
aldrei kirkja hérna, það má segja að
ég sé að þessu í stað þess að gera
upp fornbíl. Þetta sameinar líka tvö
áhugamál hjá mér, guðfræðina og
arkitektúr í gamla stílnum.“
Sigmundur Davíð er enginn
einræðisherra
Birgi er margt til lista lagt, hann er
guðfræðingur, sérfræðingur í al-
þjóðasamskiptum og hefur síð-
ustu ár unnið að því að stækka hús
fjölskyldunnar við sjávarsíðuna.
Hvernig kom það til að þú tókst
sæti á lista Miðflokksins?
„Ég þekki Sigmund síðan hann
tók við Framsóknarflokknum og
við urðum góðir vinir, hann tók til
dæmis fyrstu skóflustunguna að
kirkjunni þegar hann var forsætis-
ráðherra. Við ferðuðumst saman
norður í aðdraganda kosninganna
og ég skynjaði það að margir vildu
losna við hann úr flokknum. Þegar
Sigmundur fékk mótframboð í
oddvitasætið í haust þá vissi ég að
hann ætti ekki lengur samleið með
þessu fólki og ég hvatti hann til að
hætta í flokknum,“ segir Birgir. Það
kom því ekki á óvart að Sigmund-
ur tæki skrefið og stofnaði nýjan
flokk. „Ég treysti Sigmundi Davíð,
ég veit að hann er að berjast fyrir
hag landsmanna.“
Er Miðflokkurinn aðeins flokk-
ur Sigmundar Davíðs?
„Nei, alls ekki, ég finn það á
þingflokksfundum okkar. Hann
situr oft bara og hlustar á okkur
hin. Hann er alls enginn einræðis-
herra, hann vill hjálpa og hef-
ur hjálpað okkur sem erum ný á
þingi að læra hvernig þetta virkar.
Sama með Gunnar Braga og Þor-
stein, sem hafa setið á þingi áður,
þeir eru bara hluti af hópnum.“
Vekja ótta hjá gömlu
valdaflokkunum
Birgir lítur inn um rúðuna
á kirkjunni, gluggalistinn
er vel skreyttur með krossi
efst fyrir miðju, það eina
sem bendir til nútímans er ný
galvanhúðuð skrúfa sem heldur
glugganum saman.
„Ég hef fengið góð ráð frá Ár-
bæjarsafni um hvernig þetta á að
líta út,“ segir Birgir. Aðspurður
hvort Miðflokksmenn verða harð-
ir í horn að taka í stjórnarandstöðu
segir Birgir að málefnin verði í for-
gangi. „Við erum skynsemisflokk-
ur og ætlum alls ekki að standa í
vegi fyrir góðum hugmyndum. En
ákveðin að sama skapi. Sigmundur
er þekktur fyrir að vera mjög harð-
ur í stjórnarandstöðu og ég er sann-
færður um að hann verði það núna.
Þessi ríkisstjórn er tilraun og ann-
aðhvort tekst hún eða mistekst. Fólk
bindur miklar vonir við Katrínu og
hún hefur staðið sig vel í þessum
stjórnarmyndunarviðræðum, en
hún er þarna með meðreiðarsveina
af gamla skólanum sem vilja vera í
hennar sæti. Þetta verður áhuga-
vert,“ segir Birgir og glottir.
Það var aldrei leitað til ykk-
ar í stjórnarmyndunarviðræðun-
um, hvernig mun ykkur takast að
starfa með hinum stjórnarand-
stöðuflokkunum?
„Við slógum Íslandsmet sem
nýr flokkur, við teljum okkur vera
sigurvegara kosninganna. En það
er greinilegt að það eru einhverj-
ir hræddir við okkur, sérstaklega
gömlu valdaflokkarnir, Sjálfstæð-
isflokkur og Framsóknarflokkur.
Það eru margir ekki sáttir við okk-
ar stefnu, að stokka upp í fjármála-
kerfinu, það eru öfl í þessu samfé-
lagi sem vilja koma í veg fyrir það.
Þetta spilar allt inn í og þess vegna
var okkur markvisst haldið fyr-
ir utan. Við erum ekkert sár, það
er hollt fyrir nýjan flokk að vera í
stjórnarandstöðu og byggja sig
upp.“ Varðandi hina stjórnarand-
stöðuflokkana segir Birgir það já-
kvætt að ríkisstjórn fái aðhald úr
mörgum áttum. „Við höfum átt í
ágætis samræðum fram til þessa,
en við höfum ekki ákveðið hvort
við myndum eina heild.“
Dreymdi fylgi Miðflokksins
Bak við kirkjuna er fornt leiði. „Það
er talað um þetta leiði í ævisögu
Benjamíns H.J. Eiríkssonar, leiðið
var gamalt þegar hann var í sveit
hér 1906. Það er einnig á dagskrá
að hlaða hringlaga grjótvegg utan
um kirkjuna, ég hef fengið smá
ráðgjöf frá Minjastofnun um það.“
Þú nefndir það við mig að þú
værir berdreyminn. „Já, frá því ég
var unglingur hefur mig dreymt
drauma sem hafa ræst. Ég fór
hins vegar ekki að veita þessu
nógu mikla athygli fyrr en á síðari
árum þegar ég fór að læra að ráða í
draumana. Ég missti mág minn úr
krabbameini fyrir rúmu ári síðan,
aðeins 51 árs að aldri. Fljótlega
eftir að hann greindist deymdi
mig að hann myndi tapa þessari
baráttu. Það var erfitt því ég bjó
þá erlendis og hefði viljað styðja
meira við bakið á honum.“
Dreymir þig pólitíkina?
„Já, mig dreymdi að
Sigmundur Davíð myndi lenda í
hremmingum og segja af sér sem
forsætisráðherra. Í vor dreymdi mig
síðan að hann ætti eftir að komast
aftur til áhrifa í stjórnmálum. Mig
hefur einnig dreymt fleiri en ein
kosningaúrslit. Þannig dreymdi
mig að Miðflokkurinn fengi 11
prósent atkvæða, hann fékk 10,8
prósent. Sá draumur var á þá leið
að ég var staddur í lyftu sem fór
hratt upp og staðnæmdist á 11.
hæð. Ég vissi um leið og ég vaknaði
að þetta yrði fylgi Miðflokksins.
Það sem er þó mikilvægast er að
kunna að fara með þessa náðargjöf
sem draumar geta verið.“ n
Ákvörðun Donald Trump
setur friðarferlið í uppnám
Birgir starfaði í Mið-Austurlöndum fyrir Sameinuðu þjóðirnar og
bjó hann með fjölskyldunni í Austur-Jerúsalem. Hann starfaði
hjá UNRWA sem rekur heilsugæslu, menntakerfi og félagslegt
kerfi fyrir 5 milljónir palestínskra flóttamanna. Birgir segir
dapurlegt að fylgjast með nýjustu fréttum frá þessu svæði.
„Ákvörðun Donalds Trump að viðurkenna Jerúsalem sem
höfuðborg Ísraels setur allt friðarferlið í uppnám. Fólk á þessum
slóðum hefur þurft að þjást nóg fyrir misvitrar ákvarðanir pólitík-
usa, bæði ísraelskra, palestínskra og erlendra þjóðarleiðtoga.
Ég ræddi oft við unga Palestínumenn um hvað væri þeim mik-
ilvægast í lífinu almennt. Þeir vilja búa við öryggi, hafa vinnu,
eiga sitt eigið heimili og hafa ferðafrelsi, rétt eins og ungt fólk
í Ísrael og um heim allan. Þetta á að vera útgangspunkturinn í
friðarviðræðunum; öryggi fyrir Ísraelsmenn og Palestínumenn,
jafnrétti og atvinna fyrir alla, líf án múra og aðskilnaðar.“
Ferillinn byrjaði með
ferðalagi með Guðna
„Ferill minn í stjórnmálum
byrjaði með ferðalagi
með Guðna Ágústssyni
um Suðurkjördæmi
fyrir kosningarnar 2003.
Guðni hefur einstaka
hæfileika við að ná
tengslum við fólk. Ég
man þegar við fórum að
Núpsstöðum í Skaftár-
hreppi, þar bjuggu tveir bræður
á tíræðisaldri, þeir Eyjólfur og Filippus.
Guðni sagði mér að spyrja þá að ein-
hverju gáfulegu. Ég tók þessi orð Guðna
mjög alvarlega og um leið og ég var
búinn að heilsa þeim bræðrum spurði ég
Filippus: „… og hvað eruð þið bræðurnir
svo með margar skepnur?“ Hann svaraði
um hæl: „Skepnur, væni minn? Þær eru
nú bara tvær… ég og Eyjólfur.“ Ég sagði
ekki meira á þeim bænum.“
Segist berdreyminn og
reisir sína eigin kirkju
Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, segir að Sigmundur Davíð sé enginn einræðisherra
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
„Fljótlega eftir að
hann greindist
deymdi mig að hann myndi
tapa þessari baráttu.
Birgir Þórarinsson
Birgir er guðfræðingur
með mikinn áhuga á þjóð-
legum arkitektúr. MynD Ari
Kirkja í hlaðinu á Vatnsleysuströnd
Kirkjan er smækkuð eftirmynd Búðakirkju á
Snæfellsnesi. Birgir segir að nokkrar
fyrirspurnir hafi borist hvort kirkjan
sé laus til giftinga. MynD Ari