Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 12
12 Helgarblað 15. desember 2017fréttir
U
ng kona kom til bjargar á
Austurvelli þegar piltur
um tvítugt frá Albaníu var
stunginn í hjartað. Konan
var á ferð á Austurvelli um klukkan
hálf sex aðfaranótt sunnudagsins
3. desember þegar hún kom auga
á þrjá menn í jörðinni fyrir fram-
an styttuna af Jóni Sigurðssyni. Í
fjarlægð í fyrstu taldi hún að tveir
menn væru að lúskra á einum. Hún
hrópaði til þeirra og tók þá einn
þremenninganna á rás með vopn-
aðan mann á eftir sér. Í jörðinni lá
Klevis Sula í blóði sínu. Hann var
aðeins tvítugur að aldri, fæddur 31.
mars árið 1997. Hann var stunginn
í hjartað og lést fyrir viku síðan af
sárum sínum. Maðurinn sem stakk
Klevis og lagði með hnífnum til
vinar hans heitir Dagur Sigurjóns-
son og varð 25 ára í gær. Hann situr
enn í varðhaldi. Vinur Klevis hefur
verið útskrifaður af Landspítalan-
um. Hann birti sorgarborða á Face-
book-síðu sinni.
Deilt um atburðarás
Ekki kemur öllum saman um
arburðarás kvöldið örlagaríka. Að-
standendur Dags tjáðu sig við DV
á fimmtudag. Vildu þau meina
að Dagur ætti sér ekki sögu um
ofbeldi. Þá sögðu þau Dag hafa
orðið fyrir alvarlegri líkamsárás
nokkrum vikum áður og eftir það
byrjað að ganga með hníf á sér öll-
um stundum. Á ættingjum Dags
mátti skilja að þeir teldu að málin
tengdust án þess að þeir gætu full-
yrt um það.
Á hinn bóginn segja aðstand-
endur Klevis að hann hafi verið
dásamlegur ungur maður. Hann
hafi verið kærleiksríkur og vilj-
að hjálpa grátandi manni. Þegar
Klevis hafi síðan ætlað að bjóða
Degi aðstoð sína hafi Dagur stung-
ið hann í hjartað.
„Hann var að reykja sígarettu
fyrir utan bar og maður rétt hjá
honum var grátandi. Hann bauð
manninum hjálp sína en fékk í sig
hníf með hvössu blaði. Svona er
auðvelt að deyja í öruggasta landi
í heimi!,“ sagði vinur Klevis, Andr-
ea Zisaj, í pistli sem DV fjallaði um
á dögunum.
Samkvæmt heimildum DV átti
árásin sér stað fyrir framan stytt-
una af Jóni Sigurðssyni. Er ungri
konu hrósað fyrir að hafa skorist í
leikinn. Einn heimildarmanna DV
segir: „Ef hún hefði ekki skorist í
leikinn hefðu fórnarlömbin getað
orðið fleiri en styggð kom á mann-
inn þegar hún hrópaði.“
Ber fyrir sig sjálfsvörn
Málið hefur haft mikil og djúpstæð
áhrif á báðar fjölskyldurnar og
sorgin er mikil. Önnur fjölskyldan
sér á eftir ungum manni í gröfina.
Hin horfir á brostna framtíð ungs
manns sem mun líklega dvelja á
bak við lás og slá næstu árin.
Dagur var handtekinn á heimili
ömmu sinnar og afa í Garðabæ, en
þar hefur hann búið undanfarið.
Samkvæmt heimildum DV var sér-
sveitin einnig send á heimili föður
hans. Varð heimilisfólk þar mjög
óttaslegið. Aðstandendur halda
því fram að þetta sé í fyrsta sinn
sem Dagur hafi komist í kast við
lögin en svo virðist sem hann hafi
leiðst út í fíkniefnaneyslu síðustu
misseri. Fram hefur komið að lög-
regla gat ekki yfirheyrt hann þegar
hann var handtekinn sömu nótt
og árásin átti sér stað sökum þess
að Dagur var undir miklum áhrif-
um fíkniefna og óviðræðuhæfur.
„Þetta er góður drengur. Fjöl-
skyldan er í áfalli, þetta er algjör
harmleikur,“ sagði aðstandandi
Dagur er
grunaður
um að hafa
stungið
Klevis í
hjartað
n Ung kona kom til bjargar á
Austurvelli n Minningarathöfn á
sunnudaginn n Deilt um atburðarás
Kristjón Kormákur
Hjálmar Friðriksson
kristjon@dv.is / hjalmar@dv.is „Þakklát
íslensku
þjóðinni fyrir
hjálpina