Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 15
Helgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ Kynning
Spennandi bækur
frá Óðinsauga
Fjölmargar bækur, innlendar og erlend-ar, koma árlega út
hjá bókaútgáfunni Óð-
insauga. Áherslan var í
upphafi á barnabækur en
með auknum vexti hefur
Óðinsauga lagt kapp á að
gefa út sem fjölbreyttastar
bókmenntir. Hér gefur að líta
fjögur ólík og vönduð verk frá
Óðinsauga, fræðibókina Færeyjar út
úr þokunni eftir Þorgrím Gestsson,
spennusöguna Vefurinn eftir Magn-
ús Þór Helgason, matreiðslubókina
Pabbi, áttu fleiri uppskriftir? eftir
Smára Hrafn Jónsson og barnabók-
ina Etna og Enok fara í sveitina eftir
Sigríði Etnu.
„Í sextán ár hafa þessar forn-
sagnaferðabækur verið stór partur
af lífi mínu, fyrst ferð um konunga-
sagnaslóðir í Noregi, svo slóðir
Orkneyjajarla, og nú Færeyinga sögu.
Segja má að Færeyjar hafi tekið hug
minn allan eftir að ég fór að leggja
leið mína þangað, ekki aðeins forn-
sagnaslóðirnar heldur ekki síður land
og þjóð. Því fór svo að drjúgur hluti
bókarinnar Færeyjar út úr þokunni
fjallar um sögu Færeyja, tengsl þeirra
við konungsríkin í Skandinavíu, fær-
eyska menningu og baráttu þeirra
við endurreisn ritmálsins og að verða
nútímaþjóð meðal nútímaþjóða. Um
baráttuna fyrir sjálfstæði frá Dön-
um – og skiptar skoðanir Færeyinga
um það, um hvað nútímastjórnmál í
Færeyjum snúast,“ segir Þorgrímur
Gestsson um hið merka rit, Færeyjar
út úr þokunni.
Magnús Þór Helgason gefur út
spennusöguna Vefurinn. Hann hefur
þetta að segja um söguþráð bókar-
innar og hvernig hugmyndin að henni
kviknaði:
„Ég lá í baði og þurfti að rjúka í
símann til að athuga hvenær börnin
mín ættu að mæta á íþróttaæf-
ingu. Þá sló það mig hversu samofið
venjulegt fólk er orðið þeirri tækni
sem við notum í dag, netið er ómis-
sandi hluti af okkar daglega lífi. En
hvað með glæpamenn? Er ekki ár-
angursríkara fyrir hóp glæpamanna
að skipuleggja sig yfir netið þvert á
öll landamæri í nafni dulkóðunar og
nafnleysis en að hittast í gömlum
vöruskemmum í skjóli nætur? Mér
datt því í hug að flétta hversdagslíf
fólks saman við glæpi sem stjórnað
er í þessari aukavídd sem netið er.
Við fylgjumst með Kormáki, fertugum
eðlisfræðilektor, sem vegna ofbeldis
frá eiginkonunni byrjar að halda fram
hjá henni. Hann kynnist Kolbrúnu,
stúdent og hakkara, og dregst inn í
mjög óvenjulega atburðarás. Á sama
tíma er dularfull bylgja sjálfsmorða til
rannsóknar þar sem lögreglan telur
að um morð sé að ræða í einhverjum
tilfellum.“
Smári Hrafn Jónsson matreiðslu-
maður gaf sjálfur út bókina Pabbi,
áttu uppskrift? En bókin seldist upp
og honum var ljóst að eftirspurn
væri eftir handhægri bók með þeim
uppskriftum og ráðum sem þar voru.
Hann bætti verulega í og úr varð veg-
leg ný bók, Pabbi, áttu fleiri uppskrift-
ir?, sem kemur út í ár hjá Óðinsauga.
Smári Hrafn lýsir bók sinni svo:
„Pabbi, áttu fleiri uppskriftir? er mat-
reiðslubók fyrir byrjendur og lengra
komna heimiliskokka sem byggir fyrst
og fremst á einfaldleika. Hugmynda-
fræði bókarinnar er að einfalda heim-
ilismatargerð fyrir byrjendum og sýna
fram á hversu einföld heimilismatar-
gerð er í raun og veru. Bókin byggist
á grunnuppskriftum og einföldum
útskýringum sem síðan geta gagnast
fólki til að þróa sig áfram í matargerð.
Ég legg áherslu á að nýta allt það
hráefni sem keypt er inn til heimilisins
og ekki síst hvernig hægt er að nýta
afganga af mat. Einnig fer ég talsvert
inn á matreiðsluaðferðir, hversu mikið
magn þarf af hráefni á mann og ýmis
hugtök matreiðslunnar, t.d. hvað þýðir
að láta malla eða krauma. Í raun má
segja að ég sé að leiðbeina fólki með
að elda allt frá því að sjóða kartöflur
til þess að matreiða dýrindissteikur.
Með þessa bók í höndunum er hver
sem er fær í flestan sjó í matreiðsl-
unni.“
Frænkurnar Sigríður Etna og Frey-
dís Kristjánsdóttir unnu saman að
barnabók sem byggir á sveit foreldra
Sigríðar í Tálknafirði. Oft er talað um
að það vanti íslenskan veruleika í
barnabækur, en hér er svo sannar-
lega brugðist við þeim kröfum, enda
verður efni varla mikið íslenskara.
En hvernig kom það til að Sigríður
Etna skrifaði barnabók?
„Það var ekki fyrr en ég fór að
fara með stelpuna mína í sveitina til
foreldra minna, ömmu hennar og afa,
að ég áttaði mig á því hve heppin
hún væri. Það er alls ekki sjálfsagt að
börn fái að upplifa íslenskt sveitalíf.
Ég hugsaði með mér hvað ég gæti
gert til að leyfa öðrum börnum að
njóta þess ævintýris og þá spratt upp
sú hugmynd að gefa út barnabók.
Bókin er um systkinin Etnu og Enok
sem fara í sveit til ömmu sinnar og
afa á Tálknafirði. Etna og Enok bralla
ýmislegt í sveitinni, fara á hestbak,
tína aðalbláber, reka kindur, mjólka
kýrnar og njóta náttúrunnar. Lestur
bókarinnar gefur börnum tækifæri á
að kynnast ævintýrum íslensku sveit-
arinnar.“
Magnús Þór HelgasonSigríður Etna
Þorgrímur
GestssonSmári Hrafn
Jónsson