Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Qupperneq 16
16 Helgarblað 15. desember 2017fréttir
H
ildur Gestsdóttir, forn-
leifafræðingur hjá Forn-
leifastofnun Íslands, stund-
ar nú rannsóknir á beinum
barna sem grafin voru upp í mið-
aldakirkjugarði á Hofstöðum í
Mývatnssveit. Hún er sérmennt-
uð í mannabeinafræði og beitir
ýmsum aðferðum við rannsókn-
irnar, þar á meðal aðferðum rétt-
armeinafræðinnar. Hún segir lífs-
skilyrði fólksins almennt hafa verið
góð en einstaka sinnum komi upp
bein sem benda til þess að voveif-
legir atburðir hafi gerst. Nú rann-
sakar hún beinagrind barns sem
hefur að öllum líkindum verið
beitt grófu ofbeldi.
Lífið skrifað í beinin
Fornleifauppgröfturinn á Hofstöð-
um hófst árið 1992 en kirkjugarð-
urinn þar var í notkun frá því seint
á tíundu öld fram á þá þrettándu.
Rannsókn á kirkjugarðinum sjálf-
um er lokið og voru 170 beina-
grindur þar grafnar upp. Rann-
sóknir á öðrum minjum á svæðinu
standa þó enn yfir.
Hvað er hægt að sjá í beinun-
um? „Það er ýmislegt. Ég er að
vinna í stórsæjum rannsóknum.
Að greina kyn, lífaldur, sjúkdóma,
áverka og fleira. Einnig eru gerðar
ísótópagreiningar þar sem matar-
æði fólks er skoðað. Með því getum
við séð hversu stór hluti af fæðunni
var sjávarfæði, fersksvatnsfæði og
landfæði. Við skoðum breytingar í
mataræði yfir tíma, hvort sjúkdóm-
ar hafi áhrif á mataræðið. Ef við sjá-
um að mataræði einstaklings hafi
breyst frá mikilli sjávarfæðu yfir í
landfæðu hefur hann væntanlega
flutt búferlum þar sem Mývatns-
sveit er langt inni í landi.“
Sum beinin eru brákuð eða
brotin og getur það verið merki
um ofbeldisverk. Er starf fornleifa-
fræðingsins að einhverju leyti svip-
að rannsóknarlögreglumanns-
ins? „Nei, en við beitum í raun
sömu aðferðum og réttarmeina-
fræðingar. Stundum sjáum við ein-
hverja áverka, gróna eða ekki. Erfitt
getur þó verið að átta sig á því hvort
um viljaverk eða slys hafi verið að
ræða. Ef fólk hefur orðið fyrir áverk-
um sem sjást á beinum og hefur
leitt til dauða þá sjáum við það.“
Höfuðkúpan brotin á hnakkanum
Nú rannsakar Hildur bein tveggja
ára gamals barns sem hefur að öll-
um líkindum orðið fyrir miklu of-
beldi. „Ég er enn þá að vinna með
þessi bein. Það eru áverkar á höfði.
Ég get ekki útilokað slys, eins og til
dæmis fall. En ég nota réttarmeina-
fræðina og horfi á hvernig áverkar
eru algengir þegar börn detta og
hvernig þeir eru þegar um viljaverk
er að ræða.“
Hversu miklir eru þess-
ir áverkar? „Ég sé að höfuðkúpan
er brotin á hnakkanum.“ Hildur
treystir sér þó ekki til þess að segja
til um hvort eða hvaða áhald hafi
verið notað til verknaðarins. Var
þetta drengur eða stúlka? „Það er
eiginlega ómögulegt að greina kyn
hjá börnum því að þeir þættir sem
við notum til að greina koma ekki
fram fyrr en við kynþroska.“ Hún
segir að barnið, sem hefur fæðst í
kringum árið 1000, hafi örugglega
látist vegna þessara áverka.
Sérðu oft beinagrindur sem
bera merki ofbeldis? „Það er ekki
algengt. Maður sér beinbrot og svo-
leiðis en yfirleitt af slysförum. Ég
hef séð einstaklinga sem eru marg-
brotnir og hafa greinilega oft lent í
slysum.“ Hildur segir að sjaldnast
sjáist bein dánarorsök í beinun-
um. „Mín fræði snýr aðallega að því
að segja frá lífi fólks en ekki dauða.
Það sem gerist yfir lífsleiðina skrá-
ist í beinin.“
Hættulegast að
fæðast og hætta á brjósti
Annað tilfelli sem Hildur rannsak-
ar nú er fimm eða sex ára gamalt
barn sem hefur þjáðst af skyrbjúg.
Hvernig sérðu það? „Skyrbjúgur
veikir alla vefi líkamans og því verða
blæðingar í mjúkvef. Þegar það ger-
ist nálægt beinunum myndast nýtt
bein. Þetta er oft í kringum munn-
inn og hjá börnum víðs vegar í höf-
uðkúpunni.“
Hún segir mikið af beinagrind-
um barna hafa fundist í Hofstaða-
kirkjugarði. „Ungbarnadauði hef-
ur verið afskaplega hár á þessum
tíma. Þetta er ekki merki um neitt
óvenjulegt, þetta er nákvæmlega
það sem maður býst við að sjá. Ég
er ekki búin að greina börnin og
get ekki sagt nákvæmlega til um
aldursdreifinguna á þessu stigi en
langflest þeirra voru nýburar undir
eins árs aldri.“
Var líf barna erfitt eða hættu-
legt á miðöldum? „Það hættuleg-
asta sem börn gerðu var að fæðast
og hætta á brjósti. Það voru erfið-
ustu tímarnir og mestu líkurnar
á að deyja.“ Hildur bendir þó á að
börnin sem hún skoðar nú eru ekki
einkennandi dæmi fyrir öll börnin
á svæðinu. „Þetta eru börnin sem
dóu en hin ólust upp.“
Langt gengin með
illkynja krabbamein
Hildur segir að almenn lífsskilyrði
fólks á svæðinu í kringum Hofstaði
hafi verið mjög góð. Stórar vöðva-
festingar í beinunum gefa til kynna
að fólk hafi þurft að vinna mikið.
En fólkið var hávaxið og lifði lengi.
„Fólk hefur ekki upplifað mikla
eymd þarna þó það hafi þurft að
vinna fyrir sínu. Ef fólk náði að lifa
af fyrsta árið gat það orðið gamalt,
jafnvel á okkar mælikvarða. Erfitt
er að greina nákvæman aldur fólks
yfir fimmtugu en á Hofstöðum ná
því langflestir. Sumt fólkið hefur
augljóslega verið á áttræðisaldri.“
Eitt mesta hraustleikamerki
staðarins segir Hildur vera hversu
mörg beinin sýna alvarlega og
langt gengna sjúkdóma. „Ef fólk lif-
ir lengi með slíka sjúkdóma bendir
það til þess að það hafi verið nokk-
uð hraust. Aðgengi að góðu matar-
æði og samfélagið hefur getað séð
um veikt fólk. Mývatnssveitin er
auðvitað mikil matarkista.“
Nefnir hún sérstaklega óvana-
legt dæmi af konu með mergæxli,
illkynja langt gengið krabbamein.
„Guðmundur Eyjólfsson lækn-
ir skoðaði þetta með mér og hann
hafði ekki trúað því að hægt væri að
lifa svona lengi með sjúkdóminn
án nútímalækninga. Það eru að-
eins um tuttugu birt tilfelli í heim-
inum sem sjást í beinum og Hof-
staðabeinagrindin er með þeim
best varðveittu. Ég er nokkuð viss
um að ég á ekki eftir að finna ann-
að slíkt dæmi á mínum ferli. En
þetta segir einmitt til um lífsgæði
samfélagsins. Konan hefur verið
orðin mjög veik undir það síðasta
en fengið góðan mat og hjúkrun.“ n
n Lífsgæði í Mývatnssveit góð n Lifði lengi með illvígt krabbamein
Tveggja ára barn líklega
drepið í Mývatnssveit
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Hildur Gestsdóttir „Hættulegasta sem
börn gerðu var að fæðast og hætta á brjósti.“
Okkar kjarnastarfsemi er
greiðslumiðlun og innheimta.
Hver er þín?
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Uppgröftur á Hofstöðum
„Ef fólk náði að lifa af fyrsta
árið gat það orðið gamalt,
jafnvel á okkar mælikvarða.“