Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Blaðsíða 20
20 Helgarblað 15. desember 2017fréttir
A
ð setja veikan einstakling í
ónýtt hús er sama og leggja
á hann dauðadóm. Fíkni-
sjúkdómur er sjúkdómur,“
segir Vala Sólrún.
Faðir Völu býr í hrörlegu og
niðurníddu húsnæði á vegum
Reykjavíkurborgar. Vala hefur
beðið velferðarsvið um að skoða
hvort húsið hafi átt einhvern þátt
í því að heilsu hans hafi hrak-
að verulega síðustu mánuði. Vala
fékk engin viðbrögð þrátt fyrir að
ítreka erindi sitt. Hún tók málin í
eigin hendur og fékk Heilbrigð-
iseftirlit Reykjavíkur til að skoða
húsið. Húsið var metið óíbúðar-
hæft og heilsuspillandi. Fað-
ir hennar dvelur þó enn í húsinu.
Velferðarsvið hefur ekki gripið til
aðgerða.
„Mér finnst velferðarsvið ekki
vinna vinnuna sína. Fólkið þar er
löngu búið að gefast upp á hon-
um, það er ljóst. Þetta er dauð-
ans alvara, við erum að tala um
mannslíf. Við erum að tala um
pabba minn.“
DV fjallaði um málið fyrst í
október
DV fjallaði um Völu og föður
hennar, 68 ára, í október síðast-
liðnum. „Heilsu hans hefur hrak-
að verulega eftir að hann flutti [í
húsið sem honum var úthlutað af
velferðarsviði]. Þar að auki getur
hann ekki búið einn, er of veikur
til að reka heimili og sjá um sig,“
sagði Vala við DV.
DV fór með Völu að skoða hús-
ið, sem var byggt 1884, en þá var
faðir hennar á Landspítalan-
um. Eins og má sjá á meðfylgj-
andi myndum sem voru teknar í
október þá er húsið óíbúðarhæft.
Tók málin í eigin hendur
Vala hafði ítrekað samband
við velferðarsvið og benti á að
nauðsynlega þyrfti að kanna
ástand hússins. Eftir að hafa kom-
ið að lokuðum dyrum í hvert skipti
ákvað hún að taka málin í eigin
hendur. Vala hafði sjálf samband
við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
sem skoðaði húsið í nóvember.
„Ástæðan fyrir því að ég lét
skoða húsið var sú að pabbi hafði
talað um hvað heilsu hans hefði
hrakað verulega síðan hann flutti
þar inn. Honum var farið að líða
verr í lungunum og byrjaður að
hósta upp blóði. Pabbi hrundi
einnig niður tröppurnar og braut
einn af efstu hryggjarliðunum.“
Samkvæmt Völu hafði faðir
hennar ítrekað lagt inn kvartan-
ir varðandi húsið til velferðarsviðs
síðasta sumar. Hún segir að vel-
ferðarsvið hafi ekki brugðist við
kvörtunum hans.
„Pabbi leitaði að eigin frum-
kvæði til heilbrigðiseftirlitsins og
fékk mat þeirra á húsinu. Þá komst
heilbrigðiseftirlit að því að mik-
ið væri að húsinu og það þyrfti að
gera mjög mikið við það svo það
yrði íbúðarhæft. Velferðarsvið fékk
að vita af því en ekkert var gert. Ég
hafði samband við velferðarsvið og
bað um að húsið yrði skoðað. Mér
var tjáð að ekkert yrði gert fyrr en
„það væri búið að ákveða hvernig
nýta ætti húsið í framhaldinu“. Ég
var reið. Þvílíkt ábyrgðarleysi.“
Óíbúðarhæft og heilsuspillandi
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
skoðaði húsið þann 22. nóvember
síðastliðinn. Heilbrigðiseftirlitið
mat húsnæðið óíbúðarhæft og
heilsuspillandi. Vala hafði sam-
band við velferðarsvið og tilkynnti
þeim niðurstöðu heilbrigðis-
eftirlits.
„Ég hringdi og lét vita af niður-
stöðu mats heilbrigðiseftirlits. Ég
fann að viðmælanda mínum var
brugðið. En sá hinn sami óskaði
eftir að fá skýrsluna senda. Engin
samskipti hafa verið á milli mín og
velferðarsviðs síðan þá. Fyrir utan
eitt símtal þar sem ég grét í símann
og sagðist buguð af baráttunni. Ég
bað um að pabba yrði hjálpað.
Tveimur vikum síðar hefur ekk-
ert verið gert. Pabbi hefur í engin
önnur hús að venda. Hann neyðist
því til að leita skjóls í þessu húsi,
kannski skömminni skárra en að
vera úti í þessum kulda.“
Vala segir að undanfarna daga
hafi faðir hennar leitað til vel-
ferðarsviðs og óskað eftir herbergi,
eða í raun hverju sem er, til leigu.
„Hann er ekki með neinar kröf-
ur aðrar en þær að þurfa ekki að
dvelja í sama húsi og hann er í nú.
Pabbi fær alltaf sömu svör um að
ekkert sé í boði og að engar
„Að vera skrifstofu-
blók gerir það ef-
laust auðvelt að setja
erfiðustu málin neðst í
bunkann.“
Salernisaðstaða Gat er á gólfi í dyra-
gætt inni á salerni.
Of veikur til að sjá um sig sjálfur „Pabbi var settur í ónýtt
heilsuspillandi hús því hann var fyrir þeim og til leiðinda í gistiskýlinu.“
Harður heimur Vala var úrræðalaus og örvæntingarfull þegar faðir
hennar kláraði meðferð á Vogi.
Vala Sólrún Vill berjast fyrir réttindum föður
síns og fólks í svipaðri stöðu.
Brattur stigi Faðir Völu braut efsta hryggjarlið þegar hann
hrundi niður stigann.
Svefnherbergi Vala segir engar hugmyndir koma frá vel-
ferðarsviði að úrræðum fyrir föður sinn.
Eldhús „Ástand hússins er þannig að erfitt er að þrífa það og jafnvel
ómögulegt sums staðar,“ segir í skýrslu heilbrigðiseftirlits.
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
„Fólk er löngu búið að
gefast upp á pabba.
„Hreinlega eins og
tilraun til manndráps“
n Faðir Völu býr í heilsuspillandi húsi á vegum velferðarsviðs
n Vill snúa lífi sínu við en kemur að lokuðum dyrum