Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Page 37
Helgarblað 15. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ Múlinn
Félagið var stofnað 26. mars árið 2003 þannig að við verðum 15 ára í mars á næsta ári. Þetta
er grasrótarfélag sem stofnað var
upp úr gömlu félagi frá 1994 sem
hét Dyslexíu-félag Íslands. Skortur á
fjármagni hamlaði starfseminni svo
hún fjaraði út. Ég kom að stofnun
félagsins 2003 og þá var uppi nokkur
ágreiningur um heiti félagsins. Sjálfur
vildi ég þá að félagið héti áfram
Dyslexíu-félagið en í dag er ég mjög
sáttur við nafnið Félag lesblindra því
lesblinda er afar gegnsætt orð sem
fólk skilur undir eins,“ segir Snævar
Ívarsson, framkvæmdastjóri Félags
lesblindra, sem er til húsa að Ármúla
7b.
Á stofnfundinum var einnig ákveðið
að gerast aðili að Öryrkjabandalagi
Íslands. Sú aðild hefur haldið lífi í
félaginu og tryggt því nokkurn tekju-
stofn. Ákveðin tímamót urðu í starf-
seminni árið 2008 er Snævar ákvað
að helga því alla starfskrafta sína.
Eitt af mörgum verkefnum hans er að
sækja styrki til félagsins úr tiltækum
sjóðum og standa fyrir skólaheim-
sóknum:
„Meðal annars heimsækjum við 8.
bekk grunnskóla þar sem við fræðum
öll börnin um lesblindu. Það stuðlar
að því að börn með lesblindu fá auk-
inn skilning hjá jafnöldrum sínum sem
ekki eru lesblindir,“ segir Snævar.
„Við komum að lesblindu á allan
mögulegan hátt. Við gætum hlut-
leysis og veljum ekki eina aðferð sem
á að gilda fyrir allan fjöldann heldur
kynnum við hlutlaust þær aðferðir
gegn vandanum sem eru til, útskýrum
hvernig þær ganga fyrir sig, hvers
megi vænta og svo framvegis. Sem
félag erum við að benda á lausnir
sem við teljum að virki fyrir fjöld-
ann í gegnum tæki eins og tölvur og
síma. Við höfum árum saman verið
með námskeið fyrir fullorðið fólk með
lesblindu í gegnum endurmenntunar-
stöðvar víða um land. Einnig leið-
beinum við kennurum til þess að nýta
sér ýmsa námstækni og tæki. Svo
höfum við hitt lesblinda nemendur
sem eru að undirbúa sig fyrir fram-
haldsskóla. Auk þess höfum við haldið
erindi í ýmsum framhaldsskólum,“
segir Snævar um víðtæka starfsemi
félagsins.
Félagið veitir lesblindum einstak-
lingsbundna þjónustu: „Félagsmenn
geta komið með tækin sín til okkar og
fengið uppsetningu á lestrarbúnaði
í tækjunum. Allt sem þú getur valið
með músarbendlinum er hægt að
hlusta á. Android-símar eru síðan
þannig að hægt er að tala við tækið
og það skrifar fyrir þig, en það gildir
ekki fyrir Iphone-síma. Hægt er að
taka mynd af blaðsíðunni og hlusta
á hana. Við erum með önnur tæki,
litla handhæga skanna, sem hægt er
að draga inn í nokkrar blaðsíður og
tengja við tölvu.“
Enn fremur beitir félagið sér fyrir
því að námsbækur séu annaðhvort til
á stafrænu formi eða sem hljóðbæk-
ur. Snævar kveðst telja að almennt
séu skólar í dag betur vakandi fyrir
mögulegum tilfellum lesblindu en
áður enda hafi ákvæði um slíkt verið
bundin í lög. „Hins vegar tökum við
ekki að okkur greiningar en bendum
á sérfræðinga sem annast þær – við
erum einfaldlega reiðubúin til að-
stoðar við þá sem þurfa hjálp með
textann sinn,“ segir Snævar.
Það kostar ekkert að vera félagi
í Félagi lesblindra en öllum félög-
um yfir 23 ára eru sendir valkvæðir
greiðsluseðlar, 2.500 kr. á ári, til að
auðvelda fólki að styðja félagið. „Við
miðum við þennan aldur vegna þess
að þá eru flestir orðnir virkir á vinnu-
markaðnum,“ segir Snævar.
Að sjálfsögðu er félagið alltaf opið
fyrir stuðningi þeirra sem vilja styðja
við starfsemi þess og til dæmis er
núna í gangi jólahappdrætti félagsins
sem getur orðið því drjúg tekjulind.
Nánari upplýsingar um það má fá
inni á síðunni lesblindir.is en auk þess
er þar að finna mikinn fróðleik um
lesblindu.
Félag lesblindra og
merkileg starfsemi þess