Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Side 40
Helgarblað 15. desember 2017KYNNINGARBLAÐMúlinn
Falleg ljós sem lýsa upp skammdegið
Veggljós svart eða hvítt
kr. 7.990,-
Bankalampi
kr. 16.990,-
Lofljós grind m.peru
kr. 18.900,-
Veggljós
kr. 7.450,-
Frostrós
kr. 1.590,-
Lofljós gler m.peru
kr. 19.900,-
Skrifborðslampi
kr. 3.495,-
leiðiskross
kr. 3.700,-
Skrifborðslampi
kr. 11.900,-
Skrifborðslampi
kr. 3.495,-
Retro ljós m.peru
kr. 4.990,-
Allt til alls í baðherbergið
Sturtuklefarnir Slá endalauSt í gegn
Við seljum mikið af sturtuklef-um og baðinnréttingum á þessum tíma því margir eru
að innrétta hjá sér baðherbergin fyrir
jól,“ segir íris Jensen hjá versluninni
innréttingar og tæki, ármúla 31.
Verslunin býður upp á fjölbreytt
úrval af vönduðum hreinlætistækjum
og innréttingum fyrir baðherbergi.
Meðal þeirra eru sturtuklefar sem
slógu rækilega í gegn um leið og þeir
komu í verslunina og hafa síðan bara
haldið áfram að rjúka út. „Við höfum
aldrei tekið inn eins mikið af sturtu-
klefum og á þessu ári,“ segir íris.
Það er greinilega vinsælt að
endurnýja baðherbergi núna því
íris segir að mikil fjölgun hafi orðið
á vörugámum til verslunarinnar á
þessu ári. „endurnýjunin er mikil og
svo er verið að útbúa bílskúra og
ýmsar aðrar vistarverur sem hús-
næði til útleigu, það er verið að gera
kjallaraíbúðir íbúðarhæfar og setja
upp sturtur í þvottahúsum,“ segir íris
en þarna koma sturtuklefarnir alls
staðar sterkir inn. Þeir eru smekklegir
í útliti, sterklegir og afskapleg þægi-
legir í uppsetningu. auk þess hafa
þeir góða vatnseinangrun og gott er
að þrífa það.
„Þessi klefar eru orðnir mjög
þægilegir og það þarf ekki lengur að
„kítta í kaf“ ef svo má að orði komast.
Botninn er ekki lengur sléttur, það
er komin uppbrík á hann sem heldur
vatninu fyrir innan. Því eru klefarnir
vatnsheldir án þess að þurfa að nota
of mikið af kítti,“ segir íris.
Það er líka mjög auðvelt að þrífa
klefana: „Það er mjög góður hjóla-
búnaður í rennihurðinni sem virkar
þannig að það er hægt að taka
hurðina af og þrífa hana almennilega.
í ferðaþjónustunni þarf að borga fólki
laun fyrir þrif og það minnkar kostn-
að og dregur úr fyrirhöfninni þegar
auðvelt er að þrífa klefana. annað
sem fólk kann vel að meta er að alltaf
er hægt komast að vatnslásnum,
rörum og búnaði, ef eitthvað kemur
upp á, því botninn er á fótum með
svuntu framan á sem hægt er að
taka frá. Þannig er afar þægilegt að
hreinsa burtu hár og þess háttar og
iðnaðarmenn sem þurfa að komast
að vatnslási og leiðslum kunna vel að
meta þetta.“
Sturtuklefarnir eru til í stærðunum
70X70, 80X80 og 90X90. Hægt er
að skoða sturtuklefana uppsetta í
versluninni að ármúla 31.
Baðinnréttingar og salerni seljast
mikið í versluninni en innréttingarn-
ar þykja mjög smekklegar í útliti auk
þess sem þær veita töluvert mikið
geymslurými. „Það er hægt að geyma
meira á baðherberginu í þessum
djúpu skúffum og það kann til dæmis
barnafólk að meta,“ segir íris.
Heimasíða verslunarinnar Inn-
réttingar og tæki er á slóðinni http://
www.i-t.is/