Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 47
menning 47Helgarblað 15. desember 2017
Vinsælast í bíó
Helgina 8.–10. desember
1 Daddy's Home 2
2 Coco
3 Justice League
4 Wonder
5 Murder on the Orient Express
6 Thor: Ragnarok
7 I, Tonya
8 Jigsaw
9 A Bad Moms Christmas
10 Litla Vampíran - The Little Vampire
Vinsælast á Spotify
14. desember 2017
1 Ungir strákar - deep mix - Floni
2 Trappa - Floni
3 Ísköld - Floni
4 Leika - Floni
5 Alltof hratt - Floni
6 Já ég veit - Birnir og Herra Hnetusmjör
7 Rockstar - Post Malone og 21 Savage
8 Ástarsaga - Floni
9 Snjókorn falla - Laddi
10 Ef ég nenni - Helgi Björnsson
Metsölulisti Eymundsson
Vikuna 3.–9. desember
1 Sakramentið – Ólafur Jóhann
2 Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
3 Myrkrið veit -Arnaldur Indriðason
4 Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
5 Amma best - Gunnar Helgason
6 Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór
7 Mistur - Ragnar Jónasson
8 Fuglar - Hjörleifur H./Rán F.
9 Heima - Sólrún Diego
10 Sönglögin okkar - Ýmsir höfundar
Henry David Thoreau
Fæddur: 12. júlí 1817 í Concorde í
Massachusetts.
Foreldrar: John Thoreau blýantagerðar-
maður og Cynthia Dunbar
Starfaði sem barnaskólakennari, vann
ýmis störf fyrir Ralph Waldo Emerson og
starfaði síðar hjá fjölskyldufyrirtækinu
sem framleiddi blýanta.
Helstu verk: Borgaraleg óhlýðni (1849),
Vika á Concord- og Merrimack ánum
(1849), og Walden – eða lífið í skóginum
(1854).
Sakaskrá: Handtekinn og fangelsaður
í eina nótt í júlí 1846 vegna vangoldins
kosningaskatts – en skattinn neitaði
Thoreau að greiða vegna þrælahalds sem
ríkið lét viðgangast og landvinningastríð
þess í Mexíkó.
Látinn: 6. maí 1862 úr bronkítis, 44 ára
gamall.
Áhrif: Skrif hans hafa haft gríðarleg
áhrif á rithöfunda, náttúruverndarsinna
og mannréttindabaráttufólk á borð við
Ghandi og Martin Luther King.
Henry David Thoreau
dagsmessu, var þá sjálfur að koma
utan úr skóginum. Þetta þótti ekki
par gott,“ segir Elísabet.
Vegna áherslu sinnar á
gildi hverrar manneskju voru
Transcendentalistarnir andsnún-
ir þrælahaldi á svörtu fólki sem
var enn stundað í Bandaríkjun-
um á þessum tíma. Thoreau tók
meðal annars þátt í að hýsa og
hjálpa strokuþrælum að komast
yfir landamærin til Kanada. Hann
neitaði einnig að borga skatt sinn
til Bandaríkjastjórnar til að mót-
mæla landvinningastríði og því að
þrælahald skyldi látið viðgangast
– en hugmyndir sínar um skyldu
borgara til að óhlýðnast lögum
óréttláts ríkisvalds skráði hann í
ritgerðinni „Borgaraleg óhlýðni“
sem átti eftir að hafa mikil áhrif
á mótmælahreyfingar 20. aldar-
innar, meðal annars Mahatma
Ghandi og Martin Luther King.
Að lifa af ráðnum hug
Þegar Thoreau var 28 ára ákvað
hann að fá lánaða exi, reisa sér hús
á bakka Walden-vatns, sem var á
landi í eigu Emerson rétt fyrir utan
Concorde, og setjast þar að. Í einni
þekktustu setningu bókarinnar út-
skýrir hann tilganginn: „Ég flutti
út í skóg vegna þess að mig lang-
aði að lifa af ráðnum hug, til að
standa aðeins andspænis grund-
vallarstaðreyndum lífsins og til að
sjá hvort ég gæti ekki lært það sem
lífið hefði að kenna mér og komast
ekki að því á dauðastundinni að ég
hefði aldrei lifað.“
Elísabet segir þó að eflaust hafi
fleira drifið hann út í þessa til-
raun „Að einhverju leyti má segja
að það hafi verið efnahagslegar
ástæður. Hann var vissulega ekk-
ert á vonarvöl og gat vel verið
heima hjá móður sinni, en að ein-
hverju leyti vildi hann bara kom-
ast burt og búa sjálfur. Þetta seg-
ir hann þó aldrei. Fyrst og fremst
held ég að hann hafi viljað reyna
að lifa samkvæmt hugmyndum
sínum, þær áttu ekki bara að vera
í orði heldur einnig á borði. En svo
vildi hann líka fá meira næði til að
reyna fyrir sér af alvöru sem rithöf-
undur. Ég held að þetta komi allt
saman.“
Þess misskilnings hefur stund-
um gætt að Thoreau hafi búið
í mikilli einangrun í óbyggð-
um, en það rétta er að hann bjó í
göngufjarlægð frá Concorde og
heimsótti bæinn nær daglega.
Hildur segir þetta þó ekki draga úr
gildi tilraunarinnar: „Honum hef-
ur verið legið á hálsi fyrir að hafa
skroppið í mat heim til mömmu
sinnar. En hann var ekki í ein-
hvers konar þolprófi og var ekki að
reyna að sýna fram á að það væri
hægt að lifa á vinnu handar sinnar,
eða annað slíkt. Hann var fyrst og
fremst að leita að tilgangi lífsins,“
útskýrir hún.
Það gerir heldur ekki lítið úr
þeim erfiðleikum sem Thoreau
þurfti að takast á við. Hann hefði
aldrei getað tekist á við náttúruna
og komið sér vel fyrir nema af því
að hann hafði reynslu úr verklegri
vinnu og staðgóða þekkingu á um-
hverfinu.
„Skógurinn og náttúran var
þessu fólki ekki eins framandi og
til dæmis menntamönnum í stór-
borgum nútímans,“ segir Elísabet.
„Það eru margir sem hafa reynt að
feta í fótspor Thoreau og flutt út í
skóg, en sumir þeirra hafa bara
orðið úti því þeir hafa ekki kunnað
til verka. Þegar Thoreau fékk lán-
aða exi og fór út í skóginn þá vissi
hann hvað hann væri að gera.“
Maðurinn sem hluti
náttúrunnar
Einn meginþráðurinn í Walden
er gagnrýni Thoreau á samfélag
manna, það hugsunarleysi, hjarð-
hegðun og efnishyggju sem ein-
kennir líf fólks, hvernig það tel-
ur sig nauðsynlega þurfa að strita
dag eftir dag í andlausri vinnu og
kaupa hluti sem það þarf ekki á að
halda í raun og veru.
Það eru þó ekki síður innblásn-
ar náttúrulýsingarnar sem gera
Walden að því snilldarverki sem
bókin er. „Náttúrulýsingar hans
eru mjög nákvæmar og – innan
gæsalappa – vísindalegar,“ seg-
ir Elísabet, en Thoreau var sjálf-
menntaður í náttúrufræðinni.
„Að öðrum þræði eru þetta mjög
mystískar lýsingar, eiginlega trúar-
legar. Hann lýsir því þegar hann
situr í dyragættinni um morgun
og svo líður bara dagurinn – það er
einhver hugleiðsla eða trans sem
hann lýsir þarna og lýsir mun oft-
ar í dagbókum sínum.“ Víða á Vest-
urlöndum var náttúran að öðl-
ast slíkan sess, en Elísabet bendir
á að Jónas Hallgrímsson, sem var
fæddur tíu árum á undan Thor-
eau, hafi einmitt verið menntaður
náttúrufræðingur og á vissan hátt
séð guðdóminn í náttúrunni.
Náttúrusýn Thoreau var að ein-
hverju leyti í andstöðu við hina
hefðbundnu vestrænu, kristnu
hugmynd að manneskjan væri
ólík og æðri umhverfi sínu, kór-
óna sköpunarverksins sem er að-
skilin náttúrunni og getur svo not-
fært sér hana að vild. Thoreau sér
hliðstæður í náttúrufyrirbærum
og eigin sálarlífi – manneskjan er
hluti af náttúrunni, og hin æðri lög
sem búa í náttúrunni búa einnig
innra með okkur sjálfum.
„Henry skrifar aldrei það sem
við myndum kalla heimspeki-
legan texta þar sem hann setur út
kenningar sínar um náttúruna, en
það sem hefur haft áhrif á eftir-
menn hans, komandi kynslóðir og
kannski sérstaklega í dag, er þessi
áhersla á að maðurinn sé hluti
náttúrunnar og hann skilji sjálf-
an sig betur ef hann skynji þetta.
Þetta hefur til dæmis haft áhrif á
nútímanáttúruverndarsinna frá
því upp úr miðri síðustu öld, með
Rachel Carson sem skrifaði Raddir
vorsins þagna og þeim sem á eftir
henni komu.“
Gagnrýninn á tæknina
Í bókinni horfir Thoreau til frum-
byggja Ameríku og dáist að þeim
sem lifa í tengslum í við náttúr-
una, án þess þó að snúast gegn
siðmenningunni: „Hann byggði
sér þennan primitíva kofa úti í
skógi en var alltaf með Hómer á
náttborðinu, og las hann á grísku,“
segir Elísabet.
Hann fjallar einnig um og gagn-
rýnir tækninýjungar sem voru
farnar að hafa áhrif á líf og tilveru
íbúa í Concorde á þeim tíma sem
bókin er skrifuð – lestin og ritsím-
inn. Umkvartanir hans gætu að
vissu leyti hljómað eins og hjákát-
leg íhaldssemi og tæknihræðsla,
en hann virðist fyrst og fremst van-
trúaður á þá hugmynd að tækn-
in sé óhjákvæmilega gagnleg –
kannski þurfi maðurinn fyrst að
átta sig á því hvað hann þarf sjálf-
ur í raun og veru áður en hann get-
ur skilið hvort tæknin sé gagnleg.
„Okkur liggur mikið á að koma
upp ritsíma frá Maine til Texas,
en verið gæti að Maine og Texas
hefðu ekkert mikilvægt að segja
hvort öðru,“ veltir hann fyrir sér.
„Ef þú tækir út orðin lest og
sími og settir inn tölva og snjall-
sími þá væri þetta óskaplega líkt
mörgu því sem er skrifað nútil-
dags, allt þetta tal um að fólk líti
ekki upp úr símanum, gangi fyrir
bíla af því að það er í símanum og
svo framvegis, þetta yfirflæðandi
upplýsingaflóð og hvernig við lát-
um þessa tækni stjórna lífi okkur.
Mér finnst hann vera að tala um
akkúrat þetta sama. Ég held að það
sé einmitt út af svona hliðstæðum
sem hann er svona áhrifamikill nú
til dags,“ segir Elísabet.
Næstum sundurorða
vegna stiklarans
Walden skiptist upp í 18 kafla og
fylgja þeir eftir árstíðunum fjór-
um – árunum tveimur er þannig
þjappað í eitt. Bókin er fallega
skrifuð en getur verið nokkuð erf-
ið aflestrar, setningar Thoreau eru
oft langar, háfleygar og uppfull-
ar af vísunum auk þess sem nöfn
hinna amerísku dýra og planta
eru íslenskum lesenda oft ókunn.
Hildur segir að þótt þýðingin
hafi verið mörg ár í vinnslu hafi
það ekki verið sérstaklega flókið
eða erfitt að skilja textann. Hún
segist sjálf hafa verið eins og snjó-
plógur framan á lest í þýðingar-
starfinu. „Ég göslaðist áfram og
frumþýddi, lét Elísabetu svo fá
einn og einn kafla, og hún fór yfir
og snurfusaði, fann réttu orðin
og vísanir. Hún var mjög trú text-
anum, án hennar hefði ég örugg-
lega bara bullað eitthvað. Hún
lagði líka mikla áherslu á að við
fyndum rétt dýra- og plöntunöfn
á íslensku – þau voru til þó að
fæst þessara dýra séu til á Íslandi.
Þetta gæðir bókina vissri fegurð,
held ég. Það var aðeins einu sinni
sem að það lá við að okkur yrði
sundurorða, það var út af „stiklar-
anum“ – það er fluga sem gengur á
vatni. Ég hafði heyrt þetta orð fyr-
ir mörgum árum en hún vildi setja
eitthvað annað nafn á þessa flugu
– þá sló ég í borðið.“
Walden er að vissu leyti
óvenjuleg bók, persónuleg frá-
sögn sem er stundum heim-
spekileg og stundum náttúruvís-
indaleg, æviminning og ljóðræn
sjálfshjálparbók.
„Thoreau dreymdi um að verða
ljóðskáld, og reyndi að yrkja, en
hafði greinilega ekki þær tilteknu
gáfur sem þarf til að verða stórt
ljóðskáld. Ég held hins vegar að
hann hafi fæðst með ákveðna
næmni til að heyra og skynja nátt-
úruna – gáfur hans voru sérstakar.
Hann þurfti að koma þessari
kennd í prósaljóð um náttúruna,“
segir Hildur.
„Hann reynir ekki að skálda
þennan prósatexta sinn, en hann
reynir að draga ályktanir sem eru
hálf-heimspekilegar og hálf-kími-
legar. Gallinn á honum er náttúr-
lega sá að hann er svolítill hroka-
gikkur og er stundum að hæðast
að öðru fólki. Ég get jafnvel orðið
svolítið reið út í hann – hann er
ekkert mjög kurteis. Þetta eru
stundum svolitlir sleggjudómar,
en hann afsakar sig samt í byrj-
un bókarinnar, segir, svona er ég
bara. Hann tekur sér þetta frelsi
að gera vitleysur.“ n
„Ég held hins vegar
að hann hafi fæðst
með ákveðna næmni til
að heyra og skynja nátt-
úruna. Gáfur hans voru
sérstakar.
Þýðendurnir Elísabet Gunnarsdóttir
og Hildur Hákonardóttir eru báðar gamlir
aðdáendur H.D. Thoreau og nú hafa þær
íslenskað stórvirki hans, Walden.