Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Qupperneq 58

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Qupperneq 58
58 Helgarblað 15. desember 2017 Á síðustu árum hefur það færst mjög í aukana að íslenskar fjölskyldur bjóði vinum og vandamönnum upp á veglega kalkúnamáltíð, ýmist um jól eða áramót. Sumum þykir eldunaraðferðin svolítið flókin enda er þetta stór fugl og fæstir í mikilli æfingu þegar að þessu kemur. Kristín Sverr- isdóttir, kalkúnabóndi á Reykj- um, segir þetta þó síður en svo vandasamt og að ýmsar aðferðir séu í boði. Til dæmis er hægt að grilla fuglinn eða steikja í ofni. Svo má leggja hann í kryddlög, baða í smjöri og sitthvað fleira. Að elda kalkún með fyllingu Þegar kalkúnn er steiktur er gott að byrja á því að snúa upp á vængina þannig að þeir vísi fram, því þá verður fuglinn stöðugri. Oft eru leggirnir bundnir saman fyrir steikingu, svo þeir standi ekki út í loftið þegar kalkúnninn er borinn fram. Bringan á fuglinum skal snúa upp þegar hann er steiktur. Erfitt er þó að ráðleggja steik- ingartíma þar sem reynslan hefur sýnt að mikill munur er á ofnum og oft munar tugum gráða á sömu tegundum ofna. Taka skal mið af því þegar fuglinn er steiktur og varast að steikja hann of lengi. Best er að elda kalkúninn í lokuðum ofnpotti eða á grind í ofnskúffu og breiða þá yfir hann álpappír. Sérfræðingarnir á Reykjum mæla eindregið með notkun kjöthita- mælis þegar kalkúnn er steiktur. Góð regla er að stinga mælinum í bringuna og ef vökvinn sem rennur úr er glær er fuglinn tilbúinn. Gæta skal þess að mælirinn snerti ekki bein. Kalkúnninn er tilbúinn þegar kjöthitastig nær 71 °C. Ef þurfa þyk- ir er tekið ofan af fuglinum og hann brúnaður við 200–250°C þegar 15–20 mín. eru eftir af áætluðum steikingartíma. Sumir telja réttara að brúna fuglinn áður en hann er steiktur til að loka honum og halda vökvanum í kjötinu. Nauðsynlegt er að ausa yfir fuglinn nokkrum sinnum þegar líða fer á steikingartímann. Ef fuglinn er fullsteiktur fyrir áætlað- an tíma skal taka hann úr ofninum og vefja stykki utan um steikarí- látið en ekki geyma fuglinn inni í ofninum. Góðar upplýsingar er að finna á vefnum kalkunn.is en þar eru einnig uppskriftir að sósum, fyllingum, kryddlegi og fjölbreyttu meðlæti. Svo er bara að leggjast í rannsóknarvinnu og markvissan undirbúning enda aðeins níu dagar til stefnu. Svona áttu að elda hinn fullkomna kalkún Einn fremsti kalkúnasérfræðingur landsins ráðleggur lesendum Eldunartími Líkt og með annað kjöt er steikingartími kalkúns oft miðaður við ákveðinn mínútufjölda á hvert kg og er miðað við 40–45 mín. á hvert kg við 150 °C fyrir meðalstóran fylltan kalkún. Á þessu eru þó nokkrar undantekningar: n Eftir því sem kalkúnninn er þyngri getur þurft styttri steikingartíma á hvert kg; 30 mín./kg. n Ef fuglinn hefur legið í pækli getur það líka skilað sér í styttri steikingartíma. n Ef kalkúnninn er yfir 7 kg að þyngd er hægt að miða við u.þ.b. 30 mín. á hvert kg. n Ef kalkúnninn er ferskur þarf hann styttri steikingartíma.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.