Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Page 67

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Page 67
menning - sjónvarp 67Helgarblað 15. desember 2017 Alhliða veisluþjónusta Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 | Reykjanesbæ | Sími: 421 2630 | kokulist@kokulist.is Eingöngu fyrsta flokks hráefni Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir Gerðu daginn eftirminnilegan l li veisl j st Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Eingöngu fyrsta flokks hráefni Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir i fti i il Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming n Agnar horfir á um 300 myndir á ári n Kláraði Bókabílinn 9 ára nýtt og gott Mindhunter Mindhunter er sannsöguleg bandarísk spennuþáttaröð sem fjallar um alríkis- lögreglumenn og sálfræðing sem taka viðtöl við raðmorðingja í haldi í von um að leysa glæpi. Þættirn- ir, sem gerast árið 1977, eru framleiddir af David Fincher, leik- stjóra Fight Club og Zodiac, og leikkonunni Charlize Theron. Dark Dark er þýsk þáttaröð, sem lýst er sem „fjölskyldusögu af yfirnáttúrulegum toga.“ Þættirnir fjalla um fjórar fjölskyldur í þýsk- um bæ, þegar tvö börn hverfa sporlaust koma brotin sambönd og tvöfalt líferni upp á yfirborðið, auk yfirnáttúrulegs leyndar- máls sem rekja má til ársins 1986. Shot in the Dark Shot in the Dark eru bandarískir heimildarþættir þar sem fylgst er með tökumönnum í Los Angeles sem selja myndbrot til fréttastofa. Þetta er harð- ur heimur og það þarf oft að hafa mikið fyrir því að ná góðu skoti af einhverju fréttnæmu til að selja. Wormwood Um er að ræða leikna heimildarþætti þar sem rannsakað er dularfullt andlát vísindamannsins Frank Olson fyrir rúmlega 60 árum. Kafað er ofan í heim leyniþjónustunnar CIA þar sem blandað er saman sannleik og leiknum atriðum til að fletta hulunni ofan af leyndarmálum kalda stríðsins. Dave Chappelle: Equanimity Grínistinn óborganlegi Dave Chappelle er mættur aftur. Þættirnir hans sem sýndir voru snemma á öldinni vöktu mikla lukku en lítið heyrðist í Chappelle eftir það fyrr en á þessu ári þegar hann gaf út tvo þætti með nýju uppistandi, þriðji þátturinn, Equanimity, fer í sýningu á gamlársdag. (Fer í sýningu á gamlársdag) The Crown Önnur þáttaröð. Þættirnir um fyrstu ár Elísabetar II Bretadrottningar halda áfram. Að þessu sinni byrja þættirnir á deilunni um Súez-skurðinn en fara síðan að fjalla um samfélagsbreytingar sjöunda áratugar- ins, allt séð frá sjónarhóli hinnar ungu Bretadrottingar sem leikin er af Oliviu Colman. Það má búast við íburðarmiklum búningum og tilgerðarlegum en raunsæjum samræðum um hversu erfitt það er að vera þjóðhöfðingi. Manhunt Unabomber Átta þættir með stórleikurunum Sam Worthington og Paul Bettany um leit Alríkislögreglunnar að sprengjumann- inum Ted Kaczynski. Leitin að Kaczynski tók langan tíma, einblína þættirnir á leit lögreglumannsins sem notaði nýstárlegar aðferðir til að hafa hendur í hári sprengjumannsins og skyggst er inn í myrk- an huga Kaczynskis. SvonA færðu þér netflix Netflix nýtur vaxandi vinsælda um allan heim og er Ísland engin undantekning í þeim efnum. Sífellt fleiri heimili eru með aðgang að þessari vinsælu efnisveitu sem býður upp á fjölbreytt afþreyingar- efni á mjög hóflegu verði, í samanburði við það sem gengur og gerist hér á landi. En hvernig fær maður sér Netflix, hverjir eru kostirnir og gallarnir við það og hvað kostar það? Hér að neðan má nálgast nokkra fróðleiksmola um Netflix. n Þú þarft að hafa nettengda tölvu eða spjaldtölvu sem getur notað Netflix- smáforritið, nettengt snjallsjónvarp eða tæki á borð við Apple TV. n Þú þarft að vera með netáskrift sem heimilar mikið erlent niðurhal þar sem flest efni á Netflix er hýst í Hollandi. n Þegar þú hefur nálgast Netflix-forritið þá býrðu til aðgang og kaupir þér áskrift í gegnum netið með debet- eða kreditkorti. Kostir: Ódýrt, áskrift kostar á milli 1000 og 2000 krónur á mánuði, fyrsti mánuðurinn er frír. Þú getur horft á heilar þáttaraðir í röð án þess að þurfa að bíða eftir næsta þætti. Mikið úrval af þáttum og myndum. Netflix mælir svo með þáttum og myndum í takt við það sem þú hefur áhuga á. Það er alltaf hægt að horfa í gengum vefsíðu Netflix og nýrri tegundir af snjallsímum geta notað Netflix-smáforritið. gallar: Ekki nógu mikið af íslensku efni, efni með íslensku tali eða íslenskum texta. Sumt efni er ekki til á íslenska Net- flix. Hugsanlegur aukakostnaður, þú þarft nettengingu og snjallsjónvarp eða tölvu. f yrir fólk í kringum fertugt og eldra var viðureignin milli skautadrottninganna Nancy Kerrigan og Tonyu Harding í Lillehammer árið 1994 ógleym- anleg eftir að Kerrigan var slegin í hné með kylfu. Fyrir marga var þetta fyrsta raunverulega fjöl- miðlafárið en hið næsta tók við nokkrum mánuðum síðar þegar OJ Simpson var eltur af lögreglu í bifreið sinni. Sagan af Kerrigan og Harding var sápuópera og í raun skrítið að mynd eins og I, Tonya hafi ekki verið gerð fyrr. átti aldrei séns I, Tonya er, eins og titillinn gef- ur til kynna, ævisaga Tonyu Harding og Nancy Kerrigan birt- ist í raun ekki á skjánum nema í mýflugumynd. Ekki er það skrít- ið í ljósi þess að Harding er marg- falt áhugaverðari persóna og með mikla harmsögu að baki. Líkt og Harding ólst Kerrigan upp við þröngan kost en lék hlutverk íspr- insessunnar vel og einbeitti sér að fallegum línum. Harding var hins vegar óhefluð rokkstjarna sem féll aldrei í kramið hjá skautasamfé- laginu eða dómurum. Hæfileikar hennar eru hins vegar óumdeildir og ef ekki hefði verið fyrir ytri að- stæður hefði hún sennilega farið í sögubækurnar sem ein allra besta skautakona heims. Myndin fjallar um alvarlega at- burði, heimilisofbeldi og glæpi, en hún er borin fram sem létt- meti. Handritið er að miklu leyti byggt á alvöru viðtölum við fjöl- skyldu Harding og aðila máls og myndin er því að hluta til sett upp eins og grín-heimildarmynd (mockumentary). Við fylgjum Harding frá því hún stígur fyrst á svellið fjögurra ára gömul og fylgj- um henni í gegnum uppvaxtarárin. Stærstur hluti myndarinnar fjall- ar vitaskuld um árásina á Kerrig- an í Detroit fyrir Ólympíuleikana og í lokin sjáum við hvað varð um Harding eftir hana. Harding var manneskja sem átti aldrei séns. Hún ólst upp hjá ofbeldisfullri og niðurríf- andi móður sem hafði þó mik- inn metnað fyrir Harding sem íþróttamanni. Ung lenti Harding í öðru ofbeldissambandi með eiginmanni sínum, Jeff Gillooly, sem hrinti af stað atburðarásinni þekktu ásamt félaga sínum, Shawn Eckardt, og tveimur sam- starfsmönnum hans. Umhverf- ið mótaði Harding og þess vegna varð hún jafn groddaleg og óhefl- uð og raun bar vitni. Frábærar mæðgur Sagan hefur dæmt Tonyu Harding hart og sumir halda að hún hafi persónulega veist að Nancy Kerrigan. Þessi kvikmynd er hins vegar nokkuð raunsönn lýsing á atburðunum og samúðin er öll hennar megin. Allt frá blautu barnsbeini var Harding lamin, niðurlægð, sögð heimsk og einskis nýt. Hvítt rusl sem ætti ekki heima á svellinu og því fékk hún ekki þær einkunnir sem hún átti skilið. Engu að síður var hún staðföst og afrek- aði miklu á stuttum ferli. Ástralska leikkonan Margot Robbie leikur hana meistaralega, bæði sem ung- ling og sem fimmtuga konu. Þrátt fyrir þessa frammistöðu nær Allis- on Janney (þekktust úr þáttunum The West Wing) að stela senunni sem móðir hennar LaVona. Álit áhorfandans á þeirri persónu hr- ingsnýst alla myndina. Karlmennirnir í myndinni eru hver öðrum misheppnaðri. Það er fyrst og fremst heimska, sam- skiptaörðugleikar, hégómi og stórmennskubrjálæði sem verður þeim að falli. Eftir á að hyggja skil- ur maður varla hvernig slíkir aul- ar náðu að búa til stærsta hneyksli íþróttasögunnar. Fyrir utan sterkt handrit og frammistöðu leikara þá verða kvikmyndatökumennirnir að fá sérstakt hrós. Skautaatriðin sjálf eru ákaflega glæsileg og árásin sjálf er mynduð í einni töku. niðurstaða Þeir sem hafa kynnt sér sögu Tonyu Harding vita að sagan hef- ur dæmt hana allt of hart. I, Tonya er því bæði réttlát og upplýsandi. Hinn kæruleysislegi og létt- lyndi stíll hentar myndinni ágæt- lega en þó hefur maður á tilfinn- ingunni að sumar persónurnar séu hálfgerð karíkatúr af sjálfum sér. Helsti styrkleiki myndarinn- ar er samband mæðgnanna og frammistaða Robbie og Jann- ey í þeim hlutverkum. Þær hljóta báðar að koma sterklega til greina þegar óskarsakademían velur bestu leikkonurnar á nýju ári. n i, tonya: æran endurheimt Kristinn Haukur guðnason kristinn@dv.is Kvikmyndir I, Tonya Ævisaga, drama, íþróttir aðalhlutverk: Margot Robbie leikstjóri: Craig Gillespie lengd: 119 mínútur i, Tonya Margot Robbie á skilið að fá styttu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.