Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Side 72
Helgarblað 15. desember 2017
66. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Kal í hjarta
Hannesar?
Hannes hnýtir
í Jón Kalman
n Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson stjórnmálafræðingur
skrifaði á Facebook-síðu sína
frá Ríó þar sem hann er góð-
kunnugur. Sagðist hann hafa
tekið upp á því að lesa bækur
Jóns Kalmans Stefánsson-
ar að ráðum vinar síns, Björns
Bjarnasonar, fyrrverandi ráð-
herra. Hannes neitar því ekki
að Jón Kalman sé vandvirkt
og gott skáld en segir
jafnframt að hann
hafi skemmt fyr-
ir sér með illa
ígrunduðum
athugasemdum
um þjóðmál. End-
ar hann færsluna
svo: „Góð skáld
þurfa ekki að
vera miklir
spekingar.“
Kærði DV til
siðanefndar
n Tæplega sextugur leigusali
sem gekk í gildru DV í október
þegar hann bauð ungri konu í
örvæntingarfullri leit að hús-
næði lægra leiguverð gegn því
að hann fengi að stunda með
henni kynlíf er loks búinn að
leigja út húsið sitt.
Konan sem var til umfjöllun-
ar í DV var á hrakhólum og
neyðarkallinu svaraði maður
sem átti fallegt hús í Hafnar-
firði. Fljótlega bauð mað-
urinn konunni lægra leigu-
verð gegn kynlífi. Þá hefur DV
undir höndum upptökur af
ósiðsamlegu tilboði manns-
ins. Samkvæmt heimildum
DV hefur maðurinn nú leigt
út hús sitt og mun íslensk fjöl-
skylda setjast þar að.
Maðurinn var verulega ósáttur
við umfjöllunina og kærði
DV til siðanefndar. Siðanefnd
kvað upp úrskurð nú fyrir
skömmu og vann DV málið.
20%
14.-17.
desember
Auðvelt að versla á byko.is
SKREYTUM SAMAN
20%
AFSLÁTTUR
ÖNNUR
RAFMAGNS-
VERKFÆRI
14.-17. desember
Sjáðu
verðið!
Ö
ll v
er
ð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g/
eð
a m
yn
da
br
en
gl.
Ve
rð
gi
ld
a t
il o
g m
eð
17
. d
es
em
be
r 2
01
7 e
ða
á
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t.
Gerðu
frábær
kaup!
smáraftæki
Leikföng
og spil
Pottar og
pönnur
Matar-, kaffi og
hnífaparasett
LASERLJÓS
8 mismunandi
myndir með tímastilli
5.595kr.
51880638
Almennt verð: 7.495kr.
Tilboð!
Sjáðu
myndband
á
byko.is
SKRÚFVÉL
IXO V & IXOLino
3,6V, fullorðins og barna.
6.745kr.
748640055
Almennt verð: 8.995kr.Ein fyrir
barnið
25%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
Í athyglisverðu myndbandi með vélmenninu Sophiu
A
thygli vakti þegar leikar-
inn Tómas Lemarquis birt-
ist í myndböndum með vél-
menni árið 2016. Einhverra
hluta vegna hafa þessi myndbönd
nú aftur komist í deigluna og miklar
umræður spunnist um þau á Youtu-
be og víðar. Tómas ræddi við DV
um tilurð myndbandanna og hvaða
skoðun hann hefur á vélmennum.
Myndböndin nefnast Sophia
Awakens og sýnir Tómas sem skap-
ara vélmennisins Sophiu. Þau eiga
samtal um heima og geima og
virðist fara vel á með þeim. Hann
segir að myndböndin séu kynn-
ing frá framleiðanda vélmennis-
ins, Hanson Robotics, en ákveðið
hafi verið að setja þetta upp í formi
stuttmyndar. „Ég kom ekkert að
hönnun eða þróun vélmennisins,
þetta var allt saman leikrit.“ Í mynd-
bandinu virðist Sophia hafa talvert
meiri getu en í öðrum myndbönd-
um sem sést hafa og á það sér eðli-
legar skýringar. „Leikkona las og
tjáði svipbrigði sem Sophia hermdi
eftir henni. Þetta var fyrirfram
ákveðið. Með myndbandinu von-
uðust framleiðendurnir til að geta
sýnt hvað vélmennið myndi geta í
framtíðinni.“
Fyrir skemmstu fékk
Sophia, sem var smíðuð í
Hong Kong, ríkisborgara-
rétt í Sádi-Arabíu. Gervi-
greind hennar er svo mik-
il að hún getur haldið uppi
samræðum við fólk. „Fólk
var farið að segja að hún
hefði meiri réttindi en aðrar konur
þar í landi og ég hef einhverra hluta
vegna blandast inn í þær umræð-
ur. Ég er enginn stuðningsmað-
ur kvennakúgunar í Sádi-Arabíu.“
Tómas segist ekki hafa trú á því að
hægt sé að búa til alvöru persónu
úr vél. „Ég er samt pínu hræddur
við allt svona. Ég er mjög hlynntur
því að vélmenni séu notuð til að
aðstoða eldra fólk og fleira í þeim
dúr. En mjög á móti því að þau séu
notuð í hernaði.“ Hann lék nýver-
ið í Hollywood myndinni Blade
Runner 2049 þar sem vélmenni
komu einnig við sögu. „Einhverra
hluta vegna sogast ég inn í
svona hlutverk.“
Í Sophia Awakens tala
Tómas og Sophia saman
um tortímingu mannkyns
en á nokkuð léttvægan
hátt. Hvers vegna var
það? „Framleiðendur
vélmennisins komust í
klemmu vegna eldri myndbanda
þar sem Sophia gantaðist með
þessa hluti. Fólk er mjög hrætt við
að sjálfsmeðvituð vélmenni snúist
gegn okkur. Þess vegna ræddum
við um tortímingu heimsins.“ n
kristinn@dv.is
Tómas talar um tortímingu mannkyns við vélmenni