Morgunblaðið - 09.08.2017, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 9. Á G Ú S T 2 0 1 7
Stofnað 1913 189. tölublað 105. árgangur
VEKJA ATHYGLI
BARNANNA Á
UNDRI LÍFSINS SAMHELDNIN Í FYRIRRÚMI
HERSCH LEIKUR
EKKI Á NEINUM
AULATÓNLEIKUM
SUMAR Á SELFOSSI 14 JAZZHÁTÍÐ 30LISTÞERAPÍA 12
Viðbrögð fulltrúa
» Borgarfulltrúar undrast fyr-
irhugaða gjaldtöku á pallinn.
» Fulltrúi Sjálfstæðisflokks vill
taka málið upp á fundi borgar-
ráðs á morgun.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Agnes Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Perlu norðursins, segir bæði
borgarstjóra og framkvæmda- og
eignasvið Reykjavíkurborgar hafa
vitað að til stæði að taka gjald fyrir
aðgang að útsýnispalli Perlunnar.
„Allt þetta ferli er unnið í sátt og
samlyndi við Reykjavíkurborg,“ seg-
ir hún og bætir við að pallurinn sé í
viðauka við leigusamninginn skil-
greindur sem sýningarsvæði og því
sé ljóst að alltaf hafi staðið til að
rukka inn á hann.
Morgunblaðið hafði samband við
borgarfulltrúa þriggja flokka og
sögðust þeir allir hafa heyrt fyrst af
fyrirhugaðri gjaldtöku í fjölmiðlum.
„Ég man ekki til þess að fyrirhug-
uð gjaldtaka hafi verið sérstaklega
kynnt,“ segir Halldór Auðar Svans-
son, borgarfulltrúi Pírata, og bætir
við að hann telji að ræða eigi málið á
fundi innan borgarinnar.
Þá segir Guðfinna Jóhanna Guð-
mundsdóttir, borgarfulltrúi Fram-
sóknar og flugvallarvina, það „ekki
ganga upp“ að tekið sé gjald fyrir
það að stíga á pall Perlunnar.
Borgarfulltrúar af fjöllum
Borgarfulltrúar heyrðu fyrst af fyrirhugaðri gjaldtöku í Perlunni í fjölmiðlum
Framkvæmdastjóri Perlu norðursins segir allt „unnið í sátt“ við borgina
MFulltrúar komu af fjöllum »6
Morgunblaðið/Golli
Bílar Aldrei fleiri skráðir til leigu.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Aldrei hafa skráðar bílaleigubifreiðar
verið fleiri hjá Samgöngustofu en
þær voru 26.293 hinn 1. ágúst síðast-
liðinn. Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, segist búast við
verðlækkun í haust, þegar bílaleig-
urnar endurnýi flota sinn og notaðar
bifreiðar komi inn á markað. „Það
hefur rofað til í bifreiðasölu til al-
mennings. Það má gera ráð fyrir að á
grundvelli framboðs og eftirspurnar
geti orðið einhver verðlækkun,“ segir
hann.
Özur Lárusson, framkvæmdastjóri
Bílgreinasambandsins, tekur ekki í
sama streng. „Ég held að menn hafi
ekki stórar áhyggjur af þessu hausti.
Með óbreyttu ástandi getur þetta
orðið vandamál, en núna er ennþá
vöntun á nýjum bílum inn á mark-
aðinn. Hluti af endurnýjuninni fer í
gegnum þessa bílaleigubíla,“ segir
hann og nefnir að verð hafi þegar
lækkað á árinu vegna styrkingar
krónunnar. Özur segir þó að ef fjölg-
un ferðamanna haldist óbreytt geti
önnur staða verið uppi. „Það hefur
verið gríðarleg aukning í túrisma og
hef þetta heldur áfram eins og þetta
hefur verið síðustu þrjú ár getur
þetta orðið vandamál fyrir okkur inn-
an tveggja til þriggja ára.“ »2
Skráðar bílaleigubifreiðar aldrei fleiri
Voru yfir 26 þúsund í byrjun ágúst Skiptar skoðanir um framboðið í haust
Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni hafnaði í 11. sæti
í spjótkasti á heimsmeistaramótinu í frjálsum
íþróttum í London í gær. Ásdís kastaði lengst
60,16 metra í úrslitum á Ólympíuleikvanginum
en kastaði 63,06 metra í undankeppninni. Þetta
var í fyrsta skipti í fjórtán ár sem Íslendingur
keppir í úrslitum á HM í frjálsum. Hilmar Örn
Jónsson keppir í dag í sleggjukasti og Aníta Hin-
riksdóttir á morgun í 800 metra hlaupi. » Íþróttir
Ásdís í 11. sæti í spjótkasti á HM í London
AFP
Keppti frammi fyrir 65 þúsund áhorfendum
Halldór Björnsson, sérfræðingur í
loftslagsmálum á Veðurstofu Ís-
lands, segir að ný spá vísindamanna
um að öfgar í veðurfari, einkum
miklar hitabylgjur, geti leitt til
dauða allt að 150 þúsund Evrópubúa
á ári um næstu aldamót, sé ekki gal-
in sviðsmynd miðað við þær for-
sendur sem gefnar eru um þróun
loftslagsbreytinga.
Veðurfarssveiflur, hitabylgjur,
kuldaköst, flóð og stormar, hafa á
undanförnum áratugum valdið fjöl-
mörgum dauðsföllum í Evrópu. Tal-
ið er að hitabylgjur einar hafi árlega
valdið dauða nærri 3.000 manna í
álfunni. Vísindamennirnir telja að
hitabylgjur muni stóraukast og
valda fimmtíufalt fleiri dauðsföllum
um næstu aldamót en nú. »18
Hitabylgjur munu
taka sinn toll
Kjaraviðræður ríkisins og aðild-
arfélaga BHM munu væntanlega fara
í fullan gang á næstu dögum eftir
sumarleyfin. Viðræðuáætlanir gera
ráð fyrir að samningar verði gerðir í
þessum mánuði að sögn Guðmundar
H. Guðmundssonar, varaformanns
samninganefndar ríkisins, en alls
óvíst er hvort það gengur eftir.
Gerðardómurinn frá í ágúst árið
2015 rennur út í lok mánaðarins.
Guðmundur segir að ekki sé komin
nein raunveruleg virkni í viðræð-
urnar en rætt hafi verið um viðræðu-
áætlanir. Ekki sé enn farið að meta
launakröfur eða takast á um kröfu-
gerð.
Það kann að flækja viðræðurnar að
BHM-félögin sem féllu undir úrskurð
gerðardóms hafa ekki falið BHM
samningsumboð heldur semja hvert
fyrir sig.
Fjöldi samninga losnar í haust
Ríkið hefur lýst yfir að það sé
skuldbundið til þess að halda sig inn-
an Salek-rammasamkomulagsins í
öllum kjaraviðræðum. Gengið var frá
nýjum samningi við Læknafélag Ís-
lands í lok maí og voru þeir vel við-
unandi að mati Guðmundar. ,,Salek-
ramminn beið ekki skipbrot við þessa
samninga,“ sagði hann.
Samningar skurðlækna losna í lok
ágúst og í haust renna út samningar
Flugvirkjafélagsins, Félags íslenskra
atvinnuflugmanna, framhaldsskóla-
kennara við ríkið og samningur Fé-
lags grunnskólakennara og sveitarfé-
laganna. omfr@mbl.is
BHM og ríki
hafa 3 vikur
til stefnu
Salek beið ekki
skipbrot vegna LÍ
Morgunblaðið/Golli
Kjaramál BHM-félagar á samstöðu-
fundi í kjaradeilunni árið 2015.