Morgunblaðið - 09.08.2017, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.08.2017, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017 )553 1620 Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sínum upp á úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið höfð að leiðarljósi. Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Við bjóðum m.a. upp á: Súpur Grænmetisrétti Pastarétti Fiskrétti Kjötrétti Hamborgara Samlokur Barnamatseðil Eftirrétti Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Lífið er fullt af möguleikum, bæði spennandi og ógnvekjandi. Allir sem þú talar við auka við þekkingu þína og viturleika. 20. apríl - 20. maí  Naut Sérhvert augnablik dagsins þarf ekki að vera skipulagt. Gjafmildi þín fer fram úr því sem þú hefur efni á en þú færð þetta allt til baka. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ef þú hefur tekið gleðisnauðan veruleika fram yfir þrár hjartans til þessa færðu núna tækifæri til þess að breyta því. Nú er lag að koma hugmyndum þínum og til- lögum að. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Óvænt áform um ferðalög gætu kom- ið þér á óvart. Réttur sem þú hefur aldrei smakkað eða kringumstæður sem þú hefur aldrei lent í gefa þér nýjan kraft. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Reyndu að forðast rökræður um stjórn- mál og trúmál í dag. Fólk kann að meta hversu hratt þú hugsar og þegar þú beitir þér spararðu peninga fyrir þig og fyrirtækið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag er heppilegt að gera fjármála- samninga eða verja fé til skemmtana. Ef þú ert hreinn og beinn þarftu ekki að fara milli staða með kólgubakka yfir höfðinu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert í miklum ham þessa dagana og fátt fær staðist atorku þína. Með innsæið að vopni, og með því að reyna að vera næmur á tilfinningar annarra, öðlastu virðingu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fæstir njóta velgengni án hjálpar annarra. Hafðu því allt þitt á hreinu. En sjálf- sagt er að njóta meðbyrsins meðan hann er. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er nauðsynlegt að kynna sér vel smáa letrið áður en skrifað er undir. Gættu þess að fara varlega þannig að þú missir ekki alla þá velvild sem þú hefur aflað þér að undanförnu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú skalt taka þér tíma til að íhuga framtíðaráform þín. Tíminn mun leiða í ljós hvað stenst og hvað ekki. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sýndu varkárni í samskiptum við ókunnuga. Láttu ekkert trufla áætlun þína. Ef þú sendir út jákvæða strauma muntu að öll- um líkindum fá jákvæða strauma til baka. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft ekki að berjast af alefli til þess að halda í það sem þú hefur, það mun fylgja þér. Haltu þig við áætlanir þínar og fáðu alla þá í lið með þér sem þú mögulega getur. Góður vinur Vísnahorns, ÁrniBlöndal á Sauðárkróki, sendi mér línu á laugardag. Tilefnið var limra eftir Fíu á Sandi sem birst hafði deginum áður. „Sagan öll,“ skrifar Árni: „Fía kvartar: Ég sit hérna önug með ekka því enga hitti ég rekka söngglaða á bar því ég sit ekki þar. Þvílík heimska að hætta að drekka.“ Og síðan bætir Árni við að gefnu tilefni: Ég finn til með Fíu á Sandi og forða ‘enni vil frá grandi; á Króknum er vín ef hún kemur til mín – nýsoðinn lútsterkur landi. Og þá verður gleði og glaumur – í gamlingjum hamingju straumur er söngvarnir hljóma um fjörðinn minn óma „Undir bláhimni“ blíðasti draumur. Helgi R. Einarsson segir frá því að á þriðjudagskvöld hafi konan boðið honum á tónleika. – „Feg- urðin ríkti bæði inni og síðan úti,“ segir Helgi og orti eftir tónleikana: Ég var á Sigurjónssafni, við hliðina’ á meistara Hrafni. Þar mávur einn fló síðan fór út á sjó, í frelsarans Jesú nafni. Og áfram heldur Helgi með spun- ann: Allt sem að viðkemur andanum áhuga vekur hjá landanum. Menn látum ei linna uns ljósið þeir finna. En hvar og hvernig í fjandanum? Á Boðnarmiði var spurt um höf- und þessarar stöku. Hún er í Vísna- safni Sigurðar J. Gíslasonar og er eftir Sigurbjörgu Friðfinnsdóttur frá Fjalli í Kolbeinsdal í Skagafirði. Tilefnið var að hún kom ull til tæt- ingar. Þegar bandið kom til baka var það óhreint mjög: Ekki veit ég um það hót úr hverju það er spunnið. Annaðhvort er í því sót ellegar það er brunnið. Gömul vísa í lokin: Nóttin er svo björt og blíð, blundar allt í dalnum. Eins og skuggi ég úti bíð undir hamrasalnum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Undir bláhimni með Fíu á Sandi „ÉG VIL SVÖR. EN FYRST ÞARF ÉG SPURNINGAR.“ HANN VILL FÁ HUNDRAÐ MILLJÓNIR AÐ LÁNI TIL AÐ ARFLEIÐA BÖRNIN SÍN AÐ.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hrjóta í takt. HVERNIG FARA LEÐURBLÖKUR AÐ ÞESSU? ÉG SKIL ÞETTA EKKI Æ! FARÐU Í BÆINN OG NÁÐU Í SKYNDIBITA NEFNDU ÞAÐ BARA! ÉG GERI HVAÐ SEM ÞARF! HRÓLFUR, MEÐ ÞINNI HJÁLP GETUM VIÐ FENGIÐ FRÁBÆRAN KVÖLDVERÐ! Mótsagnir geta verið skemmti-legar og getur hent flesta að tala þannig að það gengur ekki upp. Víkverji minnist þess að í mennta- skólaritgerð fyrir margt löngu leit- aði hann lengi að orðalagi til að lýsa einhverju, sem honum þótti heldur ómerkilegt. Að endingu sagði hann að það hefði verið „litleysan upp- máluð“ og þóttist nokkuð góður með sig. Þegar hann fékk ritgerðina tilbaka hafði verið krotað með rauðu yfir snilldina og til hliðar var spurt hvernig hægt væri að mála með litleysu. x x x Píanóleikarinn Herbie Hancockhélt tónleika á Íslandi fyrir skömmu. Milli laga rifjaði hann upp tónleika, sem hann hélt á Íslandi ár- ið 1986, og sagði að þá hefði verið mikið drukkið. Bætti hann við að ef hann drykki enn svona mikið væri hann dauður. x x x Þórarinn Eldjárn rifjaði í Tungu-takspistli hér í Morgunblaðinu að í Dægradvöl segi Benedikt Grön- dal frá því að „Björn Gunnlaugsson kennari á Bessastöðum, sem þéraði alla nema samkennara sína, hafi eitt sinn sagt við hund: „Já, ég held ég fari nú ekki að þéra yður.““. x x x Stundum gera menn sér mótsagn-ir að leik. Bandaríski rithöfund- urinn Mark Twain komst skemmti- lega að orði þegar hann sagði að hann gæti staðist allt nema freist- ingar. „Við verðum að trúa á frjáls- an vilja,“ sagði Isaac Bashevis Sin- ger nóbelsskáld. „Við eigum ekkert val.“ Breska skáldið George Bern- ard Shaw gat verið snjall í til- svörum: „Hegel hafði rétt fyrir sér þegar hann sagði að við lærðum af sögunni að maður gæti aldrei lært neitt af sögunni.“ x x x Svo er það hin fræga rakara-mótsögn: Rakari nokkur segist raka alla nema þá sem raka sig sjálfir. Hver rakar rakarann? Vík- verji er ekki enn kominn með svar- ið. vikverji@mbl.is Víkverji Því að laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum. (Róm. 6:23)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.