Morgunblaðið - 09.08.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
Jensen 8013 umgjörð
kr. 14.900,-
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Ný gleraugu?
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja@mbl.is
„Við vorum á kaffistofu við Fjalls-
árlón og rákum augun í bíl sem var
utan slóða, svona 250 metra frá 500
bíla stæði. Okkur þótti þetta mjög
sérstakt, og skildum ekki hvers
vegna bílstjórinn
ákvað þarna að
spara sér 250
metra,“ sagði
Ólafur B. Schram
leiðsögumaður í
samtali við Morg-
unblaðið.
Hinn 4. ágúst
síðastliðinn varð
Ólafur vitni að ut-
anvegaakstri á
Breiðarmerkursandi þar sem hann
var staddur ásamt fleirum. Er þetta
síður en svo í fyrsta skiptið sem fólk
er staðið að utanvegaakstri en slíkt
er með öllu óleyfilegt.
„Við fórum að bílnum og sáum þá
að þetta var bíll frá RED-bílaleig-
unni sem Kynnisferðir eiga. Bíllinn
var læstur svo við biðum þangað til
að fólk kom að honum. Um var að
ræða tvo bandaríska karlmenn.
Þeir settust inn í bílinn og keyrðu
yfir mosann og á bílaplanið. Þeir
skildu ekkert í því að við skyldum
vera að skipta okkur af þeim.“ Ólaf-
ur hringdi á þjóðgarðsverði sem
höfðu ekki tíma til að sinna málinu,
en bentu honum á að hafa samband
við lögregluna.
Hægt að búa til leiksvæði
„Á meðan við biðum eftir lögregl-
unni talaði ég við bílstjórann og
hann sagðist ekki hafa vitað að
hann mætti ekki keyra þarna. Ég
spurði hann þá hvaða bílaleigu
hann hefði skipt við og hvernig
hann hefði fengið bílinn. Hann laug
því þá að mér að bílaleigan hefði
ekki sagt sér að það mætti ekki
keyra á þessum slóðum. Það er
rangt því að sögn bílaleigunnar var
öllum upplýsingum komið til skila.
Ég hef enga ástæðu til þess að
rengja bílaleiguna, því oftar en ekki
fer fólk alls ekki eftir því sem því er
sagt. Það er því ekki við bílaleiguna
að sakast í þetta skiptið,“ sagði
Ólafur.
Ekki hlaust mikið tjón af utan-
vegaakstri mannanna tveggja þar
sem mosinn á þessu svæði er til-
tölulega þunnur. Engu að síður
geta brot af þessu tagi varðað sekt
allt frá 60 þúsundum og upp í 700
þúsund krónur, en það fer eftir því
hversu mikið tjón hlýst af.
„Ferðamenn geta ekki alltaf bor-
ið skynbragð á það hvað þeir
skemma og hvað ekki, en um leið og
farið er út fyrir merkta vegi er ver-
ið að brjóta lögin og yfirleitt er
refsað fyrir slíkt. Ég treysti mér til
þess að keyra þvers og kruss út um
allt land án þess að skemma nokkuð
en það er annað mál með einstak-
linga frá malbikaðri stórborg er-
lendis.“
Ólafur segist verða mikið var við
utanvegaakstur í starfi sínu sem
leiðsögumaður og honum þyki það
sárt í hvert skipti. „Það er einhver
tryllingur í fólki, að fara og spóla.
Það hefur kannski leigt sér fjórhjól
eða fjórhjóladrifna bíla og er búið
að vera of lengi á malbikinu.“
Spurður hvað sé hægt að gera til að
sporna við þessu vandamáli stendur
ekki á svari.
„Það er alveg spurning að gera
slóða, svona 200 metra fyrir neðan
þjóðveginn á Sprengisandi, marka
þar svæði og leyfa fólki bara að
keyra þar um. Hafa bara leiksvæði
fyrir það, og svo keyrir það aftur
upp á veg eins og góðborgarar eiga
að gera. Til þess að stoppa þetta
fyrir fullt og allt væri kannski ekki
svo vitlaust að setja upp viðvörun-
arskilti sem á stæði: „jarðsprengju-
tilraunasvæði“. Það held ég að ekki
nokkur maður færi út á.“
Ljósmynd/Ólafur B. Schram
Utanvegaakstur Þessa ljósmynd tók Ólafur B. Schram leiðsögumaður eftir að lögregla mætti á vettvang.
Óku utan vegar á
Breiðamerkursandi
Sögðust ekki hafa vitað að þeir væru að gera rangt
Ólafur B. Schram
Vonir standa til að hægt verði að
hefja útflutning og sölu á íslensku
grænmeti í Danmörku eftir um það
bil eitt ár ef áætlanir og undirbún-
ingsvinna gengur eftir. Gunnlaugur
Karlsson, framkvæmdastjóri Sölu-
félags garðyrkjumanna, staðfestir
þetta í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir mikinn áhuga á hefð-
bundnum ylræktartegundum, eink-
um gúrkum og tómötum frá Íslandi
meðal Dana sem koma að undirbún-
ingi að mögulegri sölu á íslensku
grænmeti í Danmörku og jafnvel
einnig í Þýskalandi.
Er hugmyndin fyrst og fremst sú
að grænmetið verði selt í IRMA-
verslununum sem tilheyra Coop-
samstæðunni, sem er með stóra hlut-
deild eða hátt í 40% af danska mark-
aðinum.
Sölufélagið hefur stofnað í sam-
starfi við Dani fyrirtækið Pure Arc-
tic, sem opnað hefur vefsíðu vegna
verkefnisins og einbeitir sér að mögu-
leikum á að útvega hollustumatvæli
frá löndum á norðurslóðum.
Fjallað er líka um málið í nýjasta
tölublaði Bændablaðsins þar sem
fram kemur að viðræður um sölu á ís-
lensku grænmeti til Danmerkur hafa
staðið yfir í nokkra mánuði, búið sé að
senda út prufusendingar og að verðið
sem Danirnir væru tilbúnir til að
greiða fyrir grænmetið sé mjög gott.
Haft er eftir Gunnlaugi í blaðinu að
mikilvægt sé að vinna vel að vottun
vörunnar því á markaði eins og í Dan-
mörku sé nauðsynlegt að hafa réttu
vottanirnar til að tryggja gott verð
þar sem neytendur vilji í auknum
mæli vita hvernig varan er framleidd.
Hann segir við Morgunblaðið að
upphafið megi rekja til þess að menn
sem voru hér á landi sem ferðamenn
hafi lýst áhuga á að skoða möguleika
á útflutningi þegar þeir áttuðu sig á
gæðum íslenska grænmetisins og við
hvaða aðstæður það er ræktað, ekki
síst vegna hreinleika íslenska vatns-
ins. „Þetta þróaðist svo yfir í að það
voru sendar út prufur og menn voru
mjög hrifnir, vildu skoða þetta af
fullri alvöru og þá var sett í gang und-
irbúningsferli sem er í gangi í dag,“
segir hann.
„Það eru tækifæri í hágæða-
matvælaframleiðslu frá Íslandi og
það er ekki bara grænmetið sem um
er að ræða, heldur eru líka tækifæri
fyrir kjöt og fisk og fleira. Það eru
heilmikil tækifæri vegna aukinnar
eftirspurnar eftir hágæðamatvælum í
Evrópu og mjög spennandi að skoða
það enn frekar. En þetta gerist allt
saman í rólegheitum og er ekki unnið
með hávaða og látum.“
Horft er til þess að grænmetið yrði
flutt með flugi en einnig koma skipa-
flutningar til álita en Gunnlaugur
bendir á að hægt sé að flytja mat-
vörur með skipum á þremur sólar-
hringum til Kaupmannahafnar.
omfr@mbl.is
Undirbúa útflutn-
ing á grænmeti
Segir spennandi tækifæri í sölu á
gúrkum og tómötum í Danmörku
Morgunblaðið/Ásdís
Grænmeti Íslenskar gúrkur og tóm-
atar verða mögulega seldar í IRMA-
verslunarkeðjunni í Danmörku.
Gunnlaugur hefur trú á að vinna við undirbúninginn að
mögulegum útflutningi á grænmeti muni standa fram á
næsta ár. Þetta taki allt sinn tíma en ef ráðist yrði í mik-
inn útflutning gætu grænmetisbændur þurft að byggja
meira hér innanlands. Megináherslan sé þó lögð á að
anna vaxandi eftirspurn á innanlandsmarkaðinum. T.d. sé
veitingageirinn að taka mjög við sér að undanförnu og
vilji fá hágæða grænmeti.
„Þar voru menn allt of mikið að hugsa bara um verð og
minna um gæðin en með tilkomu nýrrar bylgju veitinga-
manna sem eru margir hverjir í heimsklassa þá horfa
menn orðið meira á gæðin líka vegna þess að þeir þekkja muninn. Svo eru
líka vinnustaðamötuneyti víða orðin mjög flott og bjóða upp á mjög góðan
mat, þar sem ráðið er fagfólk, bæði reyndir veitingamenn og fagkokkar.“
Meiri eftirspurn eftir gæðum
VEITINGASTAÐIR OG MÖTUNEYTI GERA AUKNAR KRÖFUR
Gunnlaugur
Karlsson
Breski tónlistarmaðurinn Eric Clap-
ton landaði 105 cm löngum laxi í
Vatnsdalsá í Austur-Húnavatns-
sýslu á föstudag. Viðureignin tók
fjörutíu mínútur og um tíma var
óljóst hvor myndi hafa betur enda
laxinn sprækur.
Sturla Birgisson, leiðsögumaður
Claptons í Vatnsdalsá, segir að um
gullfallegan nýgenginn og silfraðan
hæng hafi verið að ræða. Laxinn
veiddist í Hnausastreng en þar hafa
margir af stærstu höfðingjum
Vatnsdalsár komið á land.
Laxinn synti um 500 metra niður
ána. „Við hlupum á bakkanum niður
með ánni og það voru bara þrír eða
fjórir snúningar eftir á undirlínunni
á hjólinu. Við urðum að fara aftur út
í ána svo Clapton gæti dregið hann
hægt og rólega inn,“ segir Sturla.
Clapton veiddi í byrjun ágúst í
fyrra 108 cm lax í Vatnsdalsá en sá
lax tók ofar í ánni. Clapton þekkir
Vatnsdalsá vel en hann hefur komið
til Íslands að veiða frá árinu 2009.
guna@mbl.is
Clapton landaði stórlaxi
Ljósmynd/Úr einkasafni
Stórlax Eric Clapton með laxinn sem hann veiddi í Vatnsdalsá á föstudag.
Viðureignin
tók 40 mínútur