Morgunblaðið - 09.08.2017, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
50%
AFSLÁTTUR
SMÁRALIND
DÖMUSKÓR
SKECHERS EMPIRE DÖMUSKÓR
MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
STÆRÐIR 36-41.
VERÐ ÁÐUR 13.995
VERÐ NÚ 6.997
Nýjar vörur
Buxnaleggings
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 5.900 • Str. S-XXL
Litir: Munstrað og svart
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endur-
byggingu Hafnarstrætis 17. Húsið verður hluti af
Reykjavík Consulate Hótel í Hafnarstræti 17-19
sem Icelandair Hótel munu reka.
Ekki er annað að sjá en að vel hafi til tekist með
undurbætur á húsinu, sem var orðið fremur hrör-
legt. Hér að ofan birtast ljósmyndir sem Karl G.
Smith tók af húsinu með rúmlega árs millibili.
Hafnarstræti 17 var byggt árið 1900. Það var
verslunin Nyhafn í Hafnarstræti 18 sem byggði
það sem geymsluhús á lóð sinni norðanvert við
Hafnarstræti. Samkvæmt fyrstu virðingu var
húsið járnklætt á þrjá vegu en með steingafli að
vestanverðu. Ditlev Thomsen yngri, sem var um-
svifamikill kaupmaður á sinni tíð, eignaðist húsið
árið 1902 og var þá efri hæðum hússins breytt í
íbúðir. Gluggar voru stækkaðir árið 1932. Þegar
húsið var virt árið 1946 hafði það verið endurbætt
að utan sem innan og þak endurnýjað eftir bruna
árið 1945.
Um árabil var veitingarekstur á 1. hæð hússins.
Áður undir nöfnunum Brytinn og Gullfoss og síð-
ar undir nafninu Kaffi Rót. Samkvæmt skipulags-
hugmyndum verður endurbætt húsið málað í
rauðum lit.
Thomsen Magazin bar höfuð og herðar yfir
önnur verslunarfyrirtæki landsins á fyrri hluta
síðustu aldar og var með aðsetur í fjölda húsa
austast við Hafnarstræti.
sisi@mbl.is
Hafnarstræti 17 í endurnýjun lífdaga
Ljósmyndir/Karl G. Smith
Þiggjendum fjárhagsaðstoðar
Reykjavíkurborgar hefur fækkað
um 15% á fyrstu sex mánuðum árs-
ins miðað við sama tímabil í fyrra.
Þetta kemur fram í tölum frá vel-
ferðarsviði borgarinnar. Í fyrra
greiddi borgin tæpa 2,5 milljarða
króna í fjárhagsaðstoð til 3.036 ein-
staklinga eða fjölskyldna, um hálf-
um milljarði minna en árið áður er
3.677 nutu fjárhagsaðstoðar borg-
arinnar.
Þessi þróun er í takt við önnur
sveitarfélög en á landinu öllu fengu
5.858 fjölskyldur fjárhagsaðstoð á
síðasta ári, ríflega fjórðungi færri
en árið 2013 þegar fjöldinn náði há-
marki eftir hrun. Rétt á fjárhags-
aðstoð eiga þeir sem hafa tekjur
undir tilteknum mörkum og ekki
eiga rétt á annars konar greiðslum
frá hinu opinbera, svo sem frá al-
mannatryggingum eða úr atvinnu-
leysissjóðum. Atvinnulausir geta því
sótt um fjárhagsaðstoð er rétti
þeirra til atvinnuleysisbóta lýkur
eftir 30 mánuði á bótum.
Fjárhagsaðstoð til einstaklings í
Reykjavík getur hæst numið tæp-
um 185.000 krónum fyrir einstak-
ling, en 277.000 krónum fyrir par.
alexander@mbl.is
Heimili semþiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélaga
8
7
6
5
4
3
2
1
0
.000
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016
4.280
5.029
5.994
6.910
7.715 7.736
8.042 7.749
6.996
5.858
Heimild: Hagstofa Íslands
Færri þurfa fjárhagsaðstoð
15% fækkun í Reykjavík 5.900
heimili fá fjárhagsaðstoð sveitarfélaga
Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannes-
son og Eliza Reid, fara í opinbera
heimsókn upp í Mosfellsbæ í dag,
miðvikudaginn 9. ágúst, og stendur
heimsóknin í einn dag. Heimsóknin
er í tilefni af þrjátíu ára afmæli
bæjarins sem fékk kaupstaðarrétt-
indi 9. ágúst 1987.
Dagskrá heimsóknarinnar hefst
við skógræktina við Hamrahlíð, en
þaðan verður haldið að Hrísbrú þar
sem kynnt verður fornleifaverkefni
sem þar hefur verið unnið að á liðn-
um árum. Forsetahjónin skoða síð-
an ýmsa staði í bæjarfélaginu, en
heimsókninni lýkur með hátíðar-
dagskrá í Hlégarði sem hefst
klukkan 16.30 og er opin öllum
Mosfellingum meðan húsrúm leyfir.
Forsetahjónin heim-
sækja Mosfellsbæ
Nokkuð óvenjulegt ástand er nú í
Hlíðarhvammi í Kópavogi, en þar hef-
ur vatn tekið upp á því að flæða undir
malbikið í götunni í miklum mæli með
tilheyrandi skemmdum og sigi á göt-
unni. Karl Eðvaldsson, deildarstjóri
gatnadeildar Kópavogsbæjar, segir
sína menn vel meðvitaða um ástandið
og að unnið sé að lausnum. Þá segir
hann götuna verða lagaða á næstu
vikum.
„Það er verið að reyna að finna út
úr því hvað það er nákvæmlega í frá-
veitunni sem veldur þessum skemmd-
um á götunni. Það stendur til að fara í
aðgerðir sem munu koma í veg fyrir
að vegurinn fari svona aftur og að
sjálfsögðu verður hann lagaður þegar
búið er að laga fráveituna,“ segir
hann, en stefnt er að því að klára
verkið fyrir haustið.
Þola illa miklar dembur
Karl segir tíðar hellidembur und-
anfarin ár hafa haft sitt að segja.
„Svona regnskúr eins og var sl.
sunnudag er mjög erfið fyrir fráveitu-
kerfin – þau hreinlega þola þetta ekki.
Við virðumst vera að fá mun kraft-
meiri rigningaskúrir nú en við feng-
um á árum áður. Þær eru kannski
stuttar en miklar,“ segir hann.
Ljósmynd/Elín Þórðardóttir
Kópavogur Gatan er orðin óslétt eftir að vatn flæddi undir malbikið.
Sig og skemmdir
í Hlíðarhvammi