Morgunblaðið - 09.08.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
Hraðþrif
á meðan þú bíður
Hraðþrif opin virka daga frá 8-18,
um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Verð frá 4.300,-
(fólksbíll)
Bíllinn er þrifinn létt
að innan á u.þ.b.
10 mínútum.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Erla Reynisdóttir var tvítugárið 1970 þegar hún hófstörf að Sólheimum íGrímsnesi og kynntist
stofnandanum, Sesselju H. Sig-
mundsdóttur, og um leið hug-
myndafræði austurríska heimspek-
ingsins Rudolfs Steiner.
Áherslurnar á Sólheimum voru að
mörgu leyti í anda þeirrar hug-
myndafræði, eða mannspekistefnu
eins og hún er kölluð. „Ég vann með
Sesselju í tvö ár, fór þá í sjúkraliða-
nám og síðan í kennaradeild Mynd-
lista- og handíðaskólans, þar sem ég
lærði vefnað og textíl,“ segir Erla.
Þegar þar var komið sögu mætti
ætla að hún hefði byrjað að vinna við
sitt fag eða farið í frekara listnám.
En Erla hafði annað í huga. Nefni-
lega að nýta listmenntun sína á
óhefðbundinn hátt, a.m.k. á þeirra
tíma mælikvarða. Hún var heilluð af
kenningum Steiners og las sér bæði
til um fræðin og Waldorf-skóla, sem
byggjast á uppeldis- og kennslu-
fræði hans. „Í grein um Waldorf-
kennslu rakst ég á nafnið Emerson
College á Suður-Englandi þar sem
kennd var listþerapía, lífræn ræktun
og hægt að velja alls konar náms-
greinar í anda fræðanna. Í mínum
huga var engin spurning, þangað
vildi ég fara.“
Námið vatt upp á sig
Sú ákvörðun olli straumhvörfum
í lífi Erlu. „Ég ætlaði bara að fara í
eins árs kennaranám en breytti um
kúrs og hóf þess í stað fjögurra ára
nám í því sem kallað er hrynlist og
síðan tveggja ára nám til að fá rétt-
indi sem þerapisti í hrynlist. Síðara
árið fólst í samstarfi við mannspeki-
lækna því í öllum Rudolf Steiner-
skólum tíðkast að læknar og þerap-
istar vinni náið saman. Ég vann við
einn slíkan, Mount Champhill-
skólann, og eitt leiddi af öðru. Þegar
spurðist út að ég væri vefnaðarkenn-
ari var ég beðin um að byggja upp
vefstofuna í skólanum og síðan boðið
starf sem hrynlistarþerapisti og jafn-
framt að kenna vefnað.“
Að gefnu tilefni útskýrir Erla
að hrynlist sé samspil tals, tónlistar
og hreyfinga. „Hrynjandinn streym-
ir í gegn. Með öðrum orðum lífið
sjálft. Hver tónn eða tónbil hefur
ákveðna hreyfingu og hvert hljóð í
talmálinu einnig. Forn-Grikkir not-
uðu orðið „eurhythmy“ yfir hrynj-
andann sem bindur saman talað mál,
tónlist og dans. Sumir segja að
Steiner hafi endurvakið hrynlistina
því hann gaf nemendum sínum leið-
Listþerapía í anda
mannspekistefnu
„Við leitumst við að tengja þau við jörðina, sálina og sig sjálf. Vekja athygli þeirra á
undri lífsins og fegurðinni og vísa þeim veginn út í lífið,“ segir Erla Reynisdóttir, sem
í rúma þrjá áratugi hefur starfað sem listþerapisti í Rudolf Steiner-skólum á Eng-
landi. Frá 1995 hefur hún haft til meðferðar börn með tilfinningaleg og félagsleg
vandamál, ADHD og einhverfu. Hrynlist, vefnaður og málun eru hennar fög.
List Silkimálverk og vefveggteppi eftir einhverfa drengi í Philpots Manor.
Ef leitað er að orðinu aldamótabörnin
(e. millennials) er líklegt að orðið
„leti“ sé eitt af þremur efstu orð-
unum. Þegar talað er um aldamóta-
börn er átt við þá einstaklinga sem
fæddir eru á árunum 1980-1990 og
voru því börn síðasta áratuginn fyrir
aldamótin 2000. Borið hefur á að litið
sé á þessa kynslóð sem letingja. Þeim
fari auðveldlega að leiðast og kjósi að
skipta reglulega um umhverfi og starf
í stað þess að helga sig einhverju einu
starfi. En rannsóknir hafa hins vegar
sýnt fram á að þetta viðhorf gagnvart
aldamótabörnunum er byggt á mikl-
um misskilningi. Niðurstöður flestra
rannsókna sem gerðar hafa verið á
þessu viðfangsefni benda til þess að
aldamótabörnin séu alveg jafn vinnu-
söm og foreldrar þeirra, afar og ömm-
ur, voru á þeirra aldri. Þetta kemur
fram á vef BBC. Þá bendir ekkert til að
aldamótabörnin séu gjarnari á að
skipta um starf en forfeður þeirra en
það þarf ekki að vera neikvætt. Það
gefur þessum einstaklingum aukna
starfsgetu og þjálfun. Bent hefur ver-
ið á að þessi kynslóð fólks sé var-
kárari í langtímafjárfestingum og er
það tengt við fjármálahrunið árið
2008. Sú hugmynd að aldamótabörn
séu löt ýtir þeim áfram, þau kjósa
bara frekar að fara aðra leið til þess
að ná árangri.
Orðstír Y-kynslóðarinnar
AFP
Fólk Þeir sem slitu barnsskónum fyrir aldamót eru kallaðir aldamótakynslóðin.
Aldamótabörnin eru duglegri
en talið hefur verið
Salsa Iceland býður byrjendum í ókeyp-
is prufutíma í salsa kl. 19.30-20.30 í
kvöld, miðvikudaginn 9. ágúst, í Odds-
son, JL húsinu við Hringbraut. Eftir
kennslustundina dunar svo dansinn til
kl. 23.30. Allir dansáhugamenn eru
hvattir til að líta við, þó ekki væri til
annars en að spjalla og kannski horfa á
aðra taka sín fyrstu spor og vera þá
með næst. Fæstir hafa dansfélaga og
því ættu einsamlir ekki að veigra sér við að bregða fyrir sig betri fætinum.
Salsa Iceland lofar rómuðu og afslöppuðu andrúmslofti og að taka vel á móti
byrjendum, sem og vitaskuld vönum dönsurum.
Í salsasamfélaginu er hefð fyrir því að allir dansi við alla og séu ófeimnir að
bjóða upp í dans.
Endilega . . .
. . . lærið að dansa salsa
Listamaður ágústmánaðar á bóka-
safni Garðabæjar er Rúna K.
Tetzchner.
Rúna starfar við listir og fræði. Hún
er með BA-próf í íslensku og MA-nám í
norrænni trú frá Háskóla Íslands.
Rúna á að baki sjö ára nám í Mynd-
listaskólanum í Reykjavík. Henni er
margt til lista lagt og hefur sýnt verk
sín á Íslandi en oftar erlendis, einkum
í Danmörku. Hún er rithöfundur og
hefur sent frá sér ljóðabækur, barna-
bækur og fræðibækur.
Rúna er safnvörður í Króki í Garða-
hverfi í Garðabæ og skrifstofustjóri
Sögufélagsins
Á sýningu Rúnu má sjá glitrandi
tússlitamyndir og þaralistaverk.
Myndirnar eru unnar á pappír með
vatnstússlitum þar sem glitrandi duft-
litir eru bræddir á pappír með hita-
tæki. Á sýningunni eru skreytingar
Rúnu á rekavið þar sem unnið er með
gjafir hafsins. Myndir Rúnu eru á
mörkum fantasíu sem kenna má við
töfraraunsæi og fela í sér jákvæð
skilaboð. Þær má nota til íhugunar og
skapandi ímyndunar.
Listamaður ágústmánaðar
Glitrandi tússlitamyndir og
þaralistaverk Rúnu K. Tetzchner
Mynd/Bókasafn Garðabæjar
List Myndum Rúnu á Bókasafni Garðabæjar er lýst sem umbreytingarorku og
andlegum tengslum á mörkum fantasíu sem kenna má við töfraraunsæi.