Morgunblaðið - 09.08.2017, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Hanna
Þerapisti Erla heillaðist ung af hugmyndafræði Rudolfs Steiner og hefur kennt hrynlist, vefnað og málun í áratugi.
beiningar og tillögur til að styðja við
listræna útfærslu þeirra, til dæmis
um mismunandi líkamstjáningu sem
gera tóna, hljóð og tilfinningu sýni-
leg.“
Sérskóli fyrir börn með
ADHD og einhverfu
Þótt Erla segist alltaf hafa ver-
ið á leiðinni heim fór svo að hún
ílentist á Englandi. Hún kemur
samt hingað til lands á hverju ári og
vinnur þá stundum sem listþerapisti
á Sólheimum og Waldorf-skólanum
Sólstöfum. „Eftir sjö ár í Champhill-
skólanum fór ég til Ástralíu, þar
sem ég starfaði um eins árs skeið
sem þerapisti áður en ég sneri aftur
til Englands og réðst til starfa við
Philpots Manor-skólann í Sussex,
sem er Rudolf Steiner-skóli fyrir
börn með tilfinningaleg og félagsleg
vandamál, ADHD og einhverfu.“
Þar kennir Erla enn. Vefnaður,
málun og hrynlist eru hennar fög. Á
árunum 1996 til 2007 var hún sam-
hliða vefnaðarkennari í Emerson
College, þar sem hún nam fræðin
forðum daga. Aðeins 48 nemendur á
aldrinum sjö til átján ára eru í Phil-
pots Manor, sem er einkaskóli en
rekinn af ríkinu. Sum börnin eru í
dagskóla en önnur á heimavistinni.
Erla segir starfsmenn skólans;
kennara, þerapista, lækna og sér-
fræðinga, vinna saman sem teymi.
Hér má skjóta inn í að hollenskur
eiginmaður hennar er talþjálfari við
skólann. „Læknarnir sem starfa
með okkur hafa farið í gegnum
venjulegt læknanám en bætt við sig
sérnámi svo þeir geti starfað sem
mannspekilæknar. Sem slíkir horfa
þeir á manninn í heild, ekki bara
sem efnislíkama, heldur sál og
anda,“ segir hún. Og að sama eigi
við um alla sem starfi samkvæmt
sýn Steiners á manninn.
Listþerapía Erlu snýst vita-
skuld um það sama; manninn í heild
og að finna leiðina að miðju manns-
ins, eins og fræðin kenna. Hún segir
meðferðarformið gefa sérstaklega
góða raun þegar börn með ýmiss
konar raskanir eigi í hlut og hún hafi
séð umtalsverðar framfarir hjá nem-
endum sínum.
Jarðtenging, litir og öndun
„Skólinn er í útjaðri þorps með
ósnortna náttúru allt um kring. Líf-
ræn ræktun, umhirða hesta og
hestamennska eru ásamt list og
handíðum af ýmsu tagi grunnþættir
í náminu. Mikil áhersla er lögð á að
nemendur tengist jörðinni og að
minnka áreiti og skapa þeim öryggi.
Einhverf börn og börn með ADHD
eru mjög viðkvæm gagnvart hljóð-
um og hvers kyns áreiti. Þeim er
gríðarlega mikilvægt að hafa röð og
reglu; ákveðinn hrynjanda frá degi
til dags. Stundaskráin er í föstum
skorðum, námið einstaklingsmiðað
og tekur mið af námskrá í hefð-
bundnum Waldorf-skóla.“
Erla viðurkennir að fræði
Steiners séu býsna flókin og erfitt
að útskýra þau í fáum orðum. Sam-
spilið sé margbrotið. Sem dæmi
nefnir hún að það örvi ekki einungis
snertiskyn og fínhreyfingar barna
að vefa eða renna leir heldur einnig
tilfinningu þeirra fyrir mýkt og lit-
um.
„Litirnir tengjast alltaf öndun,
enda sagði Goethe að litir væru tján-
ing sálarinnar. Í Steiner-fræðunum
er talað um að sálin samanstandi af
þremur þáttum; hugsun, tilfinningu
og vilja. Hugsun og vilji séu and-
stæðir pólar, kalt og heitt. Hugsunin
köld og blá. Viljinn heitur og rauður.
Í miðjunni sé hið rytmíska kerfi þar
sem öndunin og hjartað eru og pól-
arnir mætast.“
Sumir eldri nemendanna
stunda jafnframt bóknám í öðrum
skólum og taka próf þaðan. „Börn í
Rudolf Steiner-skólum hefja ekki
bóknám fyrr en þau eru búin að
missa barnatennurnar og fullorð-
instennurnar farnar að láta á sér
kræla. Það er merki um að þau séu
tilbúin að læra meira hugrænt af því
að fyrstu ár ævinnar þurfi þau
orkuna til að byggja upp líkamann,“
segir Erla og bætir við að eitt af
leiðarstefum Steiner-fræðanna sé að
virkja ímyndunarafl barnanna og að
þau eigi að fá að vera börn eins lengi
og þau þurfi.
Með manninn með sér
Henni rennur til rifja hversu
færst hefur í aukanna að börn kunni
ekki að hoppa, skoppa og leika sér.
Ekki aðeins einhverf börn heldur
líka heilbrigð börn, sem loki sig af í
tölvuleikjum.
Þótt Philpots Manor-skólinn sé
sérsniðinn að þörfum barna sem
eiga við fjölþættan vanda að glíma
segir Erla að reynt sé að veita þeim
sambærilega menntun og heilbrigð
börn fái. Munurinn sé hins vegar
m.a. sá að hver nemandi þurfi öllum
stundum manninn með sér, kennara
og/eða þerapista. „Við leitumst við
að tengja þau við jörðina, sjálf sig og
sálina. Vekja athygli þeirra á undri
lífsins og fegurðinni, því hún er
þarna líka, og að vísa þeim veginn út
í lífið,“ segir Erla og kveðst ekki
geta hugsað sér meira gefandi starf.
Húsaþyrping Philpots Manor-skólinn er í nokkrum byggingum, t.h. er sú
elsta, en t.v. er rúmgott anddyri í skólanum fyrir yngstu börnin.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
RENAULTMASTER DCI 100 L2H2
nýskr. 02/2014, ekinn 45 Þ.km, dísel, 6 gíra.
Verð 2.699.000+vsk.
Raðnr. 255425
M.BENZ SPRINTER 519 CDI ARTIC
EDITION 19+1+1 nýskr. 02/2017, ekinn 2500
km, dísel, sjálfskiptur. Stórglæsileg rúta!
Verð 10.400.000+ vsk. Raðnr. 256609
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
VWCADDY
nýskr. 12/2013, ekinn 71 Þ.km, bensín, 5 gíra,
fullklæddurmjög snyrtilegur sendill.
Verð 1.590.000. Raðnr. 256374
M.BENZ SPRINTER 519VIP LUXURY
16+1+1 Árg. 2017, nýr, ókeyrður, dísel, sjálf-
skiptur. Glæsileg innrétting, klár í ferðalagið!
Verð 10.700.000+ vsk. Raðnr. 256399
M.BENZ SPRINTER 519 VIP LUXURY
16+1+1 nýskr. 01/2017, ekinn 6 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur. Glæsilega innréttaður, tilbúinn í hvaða
ferð sem er!Verð 10.950.000+vsk. Raðnr. 256584
Fjórða árið í röð á Hinsegin dögum
mun gleðin taka völd á Klambratúni
þegar Íþróttafélagið Styrmir býður
upp á leiki, keppni og grill. Kynvillt á
Klambratúni er yfirskrift viðburð-
arins sem hefst kl. 17 í dag, miðviku-
daginn 9. ágúst.Um er að ræða úti-
skemmtun með pokahlaupi, reiptogi,
blaki og boltum þar sem hinsegin
fólk og aðrir furðufuglar munu etja
kappi. Íþróttafélagið Styrmir er hin-
segin íþróttafélag þar sem allir eru
velkomnir, alltaf, og allar íþróttir líka.
Ekki er nóg með að Styrmir sé hin-
segin félag opið öllum heldur býður
félagið einnig upp á pylsur og með’í!
Af öðrum áhugaverðum viðburðum
á Hinsegin dögum má nefna að í há-
deginu í dag kl. 12 verður fjallað um
stöðu trans barna og ungmenna á Ís-
landi í Stúdentakjallaranum.
Hver er staða þeirra? Hvaða stuðn-
ingi þurfa þau á að halda og hvernig
er tekið á móti þeim í íslensku skóla-
kerfi? eru meðal spurninga sem leit-
ast verður við að svara. Nánari upp-
lýsingar um viðburði í dag og næstu
daga: www.hinsegindagar.is
Leikir, keppni og grill
á Hinsegin dögum
Morgunblaðið/Ómar
Gaman Gleðigangan á laugardaginn
verður hápunktur hátíðarhaldanna.
Kynvillt á
Klambratúni
Trúlega hafa
flestir sem
rækta sínar
eigin mat-
jurtir þegar
hafist
handa við
ágústverkin
í garðinum.
Í bókinni
Garðrækt í sátt við umhverfið eftir
Bella Linde og Lena Granefelt eru
nokkur heilræði. Í byrjun ágústmán-
aðar skal:
Skýla berjarunnum og ávaxtatrjám
með neti gegn flugum.
Byrja að uppskera jarðarber, stilk-
beðju, dill, steinselju, næpu, hnúðkál,
kartöflur, spergilkál og sykurertur.
Ganga frá uppskerunni fyrir
geymslu.
Klippa af kryddjurtum og þurrka
fyrir veturinn.
Í lok mánaðar er svo hægt að tína
villt ber og taka upp gulrætur.
Ágústverkin í garðinum
Svo uppsker
sem sáir
Uppskera Nú má byrja
að taka upp jarðarber.
Erla starfaði
í sjö ár í
The Mount
Champhill-
skólanum.
Camphill-
hreyfinginn
var stofnuð
í Aberdeen í
Skotlandi
1939 og
starfar í anda Rudolfs Stein-
ers. Einn af stofnendum
hreyfingarinnar var barna-
læknirinn dr. Karl Konig en
hann leit svo á að hver ein-
staklingur hefði að geyma
heilbrigðan innri mann sem
væri óháður líkamlegum og
sálrænum einkennum sjúk-
dómsgreiningar. Markmið
skóla, sem starfa í þessum
anda er að viðurkenna, styrkja
og kenna þessum innri manni.
Waldorf-kennslan er byggð
á hugmyndum dr. Rudolfs
Steiners. Uppeldisfræðin legg-
ur áherslu á þátt ímyndunar-
aflsins í kennslu ásamt hag-
nýtri, listrænni og vitrænni
þróun nemendanna.
Fyrstu árin miðast við hag-
nýtan og skapandi leik. Í
grunnskólanum er lögð
áhersla á að þróa listræna
tjáningu og félagslega eig-
inleika.
Framhaldsskólanámið snýst
um gagnrýna rökhugsun og
samúðarfullan skilning. Mark-
mið námsins er að móta
frjálsan heilsteyptan og fé-
lagslega hæfan einstakling.
Hagnýtt og
skapandi nám
CHAMPHILL-HREYFINGIN
OG RUDOLF STEINER
Rudolf Steiner