Morgunblaðið - 09.08.2017, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
GLERHANDRIÐ
Mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Útlit er fyrir fyrirtaks bæjarhátíð í
sveitarfélaginu Árborg, að sögn Guð-
jóns Bjarna Hálfdánarsonar skipu-
leggjanda, en hátíðin Sumar á Sel-
fossi hefst í dag og stendur til
sunnudags. Fer bæjarhátíðin fram í
23. skipti og hefur undanfarin ár ver-
ið skipulögð af knattspyrnufélaginu
Árborg. Guðjón, sem er fram-
kvæmdastjóri knattspyrnufélagsins
Árborgar, segir í samtali við
Morgunblaðið að undirbúningur hafi
gengið afar vel og hátíðin hafi aldrei
verið glæsilegri.
Vaxandi stemning í bænum
„Það eru allir búnir að koma úr
boðuðu undirbúningsfríi fyrir Sumar
á Selfossi. Nú er maður byrjaður að
finna fyrir stemningunni og hún er
mun betri í ár. Stemningin fer vax-
andi með hverju ári, sérstaklega ef
veðrið leikur við okkur eins og spáð
er,“ segir Guðjón um andrúmsloftið í
bæjarfélaginu fyrir hátíðinni í ár.
Skreytingarkeppni er á milli
hverfa og segir Guðjón hana vera
einn lið til þess að byggja upp áhuga
og stemningu meðal bæjarbúa. „Það
er oft með þessar skreyting-
arkeppnir að þær sameina fólk. Því
með ört stækkandi sveitarfélagi er
mikilvægt að hafa hátíðir þar sem
fólk hefur möguleika á að koma sam-
an. Þetta er einfaldlega liður í því þar
sem aukin samstaða bæði á hátíðinni
og annars staðar mun skila sér í
betra sveitarfélagi.“
Fast haldið í hefðir
Mikil hefði er fyrir sléttusöng há-
tíðarinnar í Sigtúnsgarði auk morg-
unverðar í boði fyrirtækja á svæðinu.
Þúsundir mæta árlega í morgunverð-
inn í Sigtúnsgarði. Verður hann á
laugardagsmorgun og sléttusöng-
urinn um kvöldið. Ásamt sléttu-
söngnum eru margir tónleikar á dag-
skrá.
Hljómsveitin Rökkva spilar í
Tryggvaskála í kvöld. Á morgun tek-
ur við svokallaður Suðurlandsskjálfti
þegar Aron Can, Alexander Jarl,
Birnir og Flóni stíga á svið. Björgvin
Halldórsson verður svo með stór-
tónleika á föstudag og þá kemur það í
hlut að Stuðlabandsins að ljúka tón-
listardagskránni á laugardags-
kvöldið.
Froðufjörið vinsæll viðburður
„Froðufjör er viðburður sem hefur
stækkað frá ári til árs og er einn af
stærstu viðburðum hátíðarinnar,“
segir Guðjón. Felst það í því að segl-
dúkar eru lagðir yfir brekku í Sig-
túnsgarði og sjá Brunavarnir Árnes-
sýslu um að blanda saman froðu, sem
er svo sprautað yfir brautina.
„Krakkarnir renna sér eftir braut-
inni og neðst safnast í stærðarinnar
froðulaug þar sem þau yngstu leika
sér. Þau renna sér ferð eftir ferð.
Þetta er alveg ótrúlega skemmti-
legur viðburður, sem hefur farið ört
stækkandi,“ segir Guðjón.
Miðað við fjölskylduvæna hátíð
Aðspurður hvort margir utan-
aðkomandi sæki hátíðina, segir Guð-
jón að íbúar í Árborg séu stærstur
hluti þeirra, sem sæki hátíðina. Þó
fari vaxandi að bæjarbúar bjóði vin-
um, sem búa annars staðar, að koma
og taka þátt í hátíðinni.
„Við sem stöndum að þessari hátíð
höfum haldið því þannig að þetta sé
fjölskyldu- og bæjarhátíð. Þá höfum
við látið orðspor hátíðarinnar berast
út með bæjarbúum og í rauninni er
eina markmið hátíðarinnar að búa til
ánægjulega samverustund fyrir fjöl-
skylduna. Auk þess að bæjarbúar
geti skemmt sér sem best á þessari
glæsilegu helgi,“ segir Guðjón um
markmið hátíðarinnar.
Hann segir að fjölskyldudagskrá
hefjist við Arion-banka á föstudaginn
en aðalfjörið verði á laugardaginn,
s.s. sirkussýningar, leiktæki, og
skemmtigarður. Þá hefst ÓB-mótið í
knattspyrnu á Selfossvelli á föstu-
daginn þar sem strákar í 5. flokki
keppa. Því er ljóst að mikið líf verður
í sveitarfélaginu um helgina.
Fjáröflunar- og stemningsverk-
efni knattspyrnufélagsins
Knattspyrnufélagið Árborg heldur
utan um hátíðina með dyggum stuðn-
ing fyrirtækja og sveitarfélagsins.
„Við erum ekki að keppast við það að
búa til sem mestan pening eða gróða
út úr þessu. Heldur erum við ein-
ungis að reyna að reka knattspyrnu-
félagið Árborg,“ segir Guðjón.
„Hátíðin verður eins glæsileg og
íbúar og fyrirtæki hér eru tilbúin að
gera hana. Við erum ótrúlega þakk-
lát fyrir stuðning fyrirtækja og bæj-
arbúa í tengslum við hátíðina. Fyrir-
tæki styrkja okkur meira en áður og
það er meiri stemning í bænum,
þannig það virðist vera að hátíðin sé
að skjóta föstum rótum í bæjarfélag-
inu Árborg. Það er ótrúlega gaman
að því,“ segir Guðjón að lokum.
Samheldni bæjarbúa í fyrirrúmi
Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi haldin í 23. skipti Fjöldi tónleika Þúsundir mæta í morgunverð
í Sigtúnsgarði Áhugi bæjarbúa vex með hverju ári Mikil áhersla lögð á fjölskylduvæna dagskrá
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson
Mannmergð Margir bæjarbúar Árborgar láta sjá sig í Sigtúnsgarði þegar bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fer fram
aðra helgina í ágúst ár hvert. Áhugi og stemning bæjarbúa fyrir hátíðinni fer vaxandi með hveju árinu sem líður.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Sigurvegarar Gatan Lóurimi var valin skemmtilegasta gatan árið 2015 í
skreytingarkeppninni, sem er á milli hverfa á hátíðinni Sumar á Selfossi.
Bæjarhátíðir sumarið 2017
Við hátíðarhöld Íslendingadags-
ins í Gimli í Winnipeg í Kanada á
mánudaginn var íslenska fjall-
konan leidd til hásætis af fylgd-
armanni. Konan skartbúin á sem
kunnugt er að vera táknmynd Ís-
lands, eyjunnar hvítu í norður-
höfum sem svo margir íbúar í
þessu fylki Kanada hafa tengsl
við. Í Gimli búa um 7.000 manns
og er talið að minnst fjórðungur
þeirra sé af íslenskum ættum.
Margir í þeim hópi eru mæltir á
íslensku og mátti víða málið
heyra á götum úti í Gimli á hátíð-
isdeginum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjallkonan leidd
til sætis í Gimli