Morgunblaðið - 09.08.2017, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
Trésagarblöð, álsagarblöð, járn-
sagarblöð, demantssagarblöð.
Allar stærðir, allar gerðir.
Þjónusta við tréiðnaðinn í yfir 30 ár
HJÓLSAGARBLÖÐ
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur • Sími 564 1212 • asborg.is
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
STUTT
● Hagar lækkuðu um 7% í gær í kjölfar
afkomuviðvörunar. Gengið hefur lækk-
að um 34% frá opnun Costco í maí.
Samstæðan birti sína aðra afkomu-
viðvörun á einum mánuði eftir lok
markaða á föstudag. Þar kom fram að
sölusamdráttur í magni og krónum
hefði haldið áfram í júlí og væri með
svipuðum hætti og í júní. Stjórnendur
gera ráð fyrir því að EBITDA fyrir tíma-
bilið mars til ágúst verði um 20% lægri
en á fyrra ári.
Hagar lækkuðu um 7%
eftir afkomuviðvörun
Greiningardeild Arion banka túlkar
ummæli Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra í við-
tali við Bloom-
berg á þá vegu að
vænta megi frek-
ari vaxtalækkun-
ar. Í viðtalinu
boðaði Már slök-
un eða afnám
bindiskyldu á er-
lenda fjárfest-
ingu sökum þess
að vextir færu
lækkandi hér en
hækkandi í flestum öðrum ríkjum.
„Erfitt er að túlka það öðruvísi en að
frekari vaxtalækkanir séu í kortun-
um,“ segir í Markaðspunktum Arion
banka. Bindiskyldan kveður á um að
erlendir fjárfestar sem fjárfesta í
skuldabréfum þurfa að leggja 40%
upphæðarinnar inn á vaxtalausan
reikning í eitt ár, en geta fjárfest fyr-
ir 60%. Stýrivextir lækkuðu um 0,25
prósentustig í 4,5% í júní.
„Í nýrri hagspá greiningardeildar
er gert ráð fyrir tveimur 25 pró-
sentustiga vaxtalækkunum það sem
eftir lifir ársins sem myndi þýða að
vaxtamunur við útlönd verður sögu-
lega lítill. Engu að síður er ekki allt
sem bendir til þess að svigrúm sé til
vaxtalækkana og ber þar helst að
nefna hækkandi verðbólguálag á
markaði í kjölfar veikingar krónunn-
ar,“ segir í Markaðspunktum Arion
banka.
Ef stýrivextir lækka um hálft pró-
sentustig og horft er til væntinga
greiningaraðila um vaxtaþróun í
Bandaríkjunum og á evrusvæðinu er
útlit fyrir að vaxtamunur muni áfram
fara lækkandi á næstu mánuðum,
sérstaklega gagnvart Bandaríkjun-
um, að sögn greiningardeildarinnar.
„Gangi það eftir verður skammtíma-
vaxtamunur við Bandaríkin orðin
rúm 2% undir árslok 2018, sem er
mun minni munur en hefur áður sést.
Sem dæmi var vaxtamunurinn tæp
10% árið 2007 og tæp 6% þegar
bindiskyldunni var komið á fyrir
rúmu ári,“ segir í Markaðspunktum.
Lesa í ummæli Más að
vextir fari lækkandi
Arion banki reiknar með að slakað verði á bindiskyldunni
Már
Guðmundsson
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hagnaður Toyota á Íslandi, sem
einnig selur Lexus, jókst um 55% á
milli ára og nam 692 milljónum
króna á liðnu ári. Stjórn leggur til að
greiddar verði 200 milljónir króna í
arð til hluthafa. Þetta kemur fram í
ársreikningi.
Toyota á Íslandi er í eigu Bifreiða-
innflutnings sem aftur er í eigu að-
alstjórnenda Toyota; Úlfars Stein-
dórssonar og Kristjáns
Þorbergssonar og eiginkvenna
þeirra. Stjórnendurnir festu kaup á
60% í félaginu árið 2011 af Lands-
bankanum sem á þeim tíma hélt eftir
40%. Vorið 2013 eignuðust fjölskyld-
urnar félagið að fullu.
Velta félagsins jókst um 14% á
milli ára og nam 12,6 milljörðum
króna. Í fyrra var næststærsta árið í
sölu nýrra bíla frá upphafi og jókst
salan um 32% á milli ára. Alls seldust
um 20.400 bílar í fyrra.
Arðsemi eigin fjár hjá Toyota var
84% í fyrra. En eiginfjárhlutfallið
var 24% við árslok en var 15% við
upphaf árs. Arðsemi eigna var 17%.
Að meðaltali störfuðu 32 hjá félaginu
í fyrra.
Brimborg hefur sömuleiðis skilað
inn ársreikningi fyrir árið 2016, eins
og áður hefur komið fram. Fyrirtæk-
ið hagnaðist um 718 milljónir króna í
fyrra en um 327 milljónir króna árið
áður. Reksturinn byggist á sölu
fimm bílamerkja: Ford og Volvo,
Mazda, Citroën og Peugeot; Volvo-
atvinnutækja, bílaleigu og verkstæð-
um. Velta Brimborgar jókst um 38%
á milli ára og nam um 18 milljörðum
króna árið 2016.
Arðsemi eigin fjár nam 47% en fé-
lagið er nokkuð skuldsett. Eiginfjár-
hlutfallið við árslok var 22% en 14%
árið áður. Ef litið er til arðsemi af
eignum var ávöxtunin 9%. Hjá fyr-
irtækinu starfa um 300 manns.
Bílaumboðin Askja, BL og Hekla
hafa ekki skilað ársreikningi fyrir
árið 2016.
Hagnaður Toyota jókst um
55% í 692 milljónir króna
Stjórn leggur til að greiða hluthöfum 200 milljónir króna í arð vegna ársins
Bílasala Mikil arðsemi var af því eigin fé sem bundið var í Toyota á Íslandi,
sem selur einnig Lexus, á liðnu ári eða 84%. Á myndinni er Lexus LC.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Næststærsta árið
í bílasölu
» Toyota á Íslandi er í eigu
aðalstjórnenda fyrirtækisins;
Úlfars Steindórssonar og
Kristjáns Þorbergssonar og
eiginkvenna þeirra.
» Þau keyptu fyrirtækið af
Landsbankanum í tveimur
skrefum; árið 2011 og 2013.
» Úlfar er sömuleiðis stjórn-
arformaður Icelandair Group.
» Í fyrra var næststærsta ár-
ið í sölu nýrra bíla frá upphafi
og jókst salan um 32% á milli
ára.
» Velta Toyota á Íslandi jókst
um 14% á milli ára og nam
12,6 milljörðum króna.
9. ágúst 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.31 104.81 104.56
Sterlingspund 138.14 138.82 138.48
Kanadadalur 82.74 83.22 82.98
Dönsk króna 16.595 16.693 16.644
Norsk króna 13.177 13.255 13.216
Sænsk króna 12.847 12.923 12.885
Svissn. franki 107.49 108.09 107.79
Japanskt jen 0.9423 0.9479 0.9451
SDR 147.32 148.2 147.76
Evra 123.45 124.15 123.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.8738
Hrávöruverð
Gull 1261.45 ($/únsa)
Ál 1919.0 ($/tonn) LME
Hráolía 51.97 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á