Morgunblaðið - 09.08.2017, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
Linda Jörundsdóttir hárgreiðslumeistari á 50 ára afmæli í dag.Linda er fædd og uppalin á Ísafirði og rekur Hársnyrti-stofuna Lindu í Síðumúla 34 og einnig hárgreiðslustofu á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.
„Sú hárgreiðslustofa er fyrir fólkið á hjúkrunarheimilinu og þá
sem þangað koma. Þetta er stofa fyrir eldri borgara. Það er síðan
allur skalinn á hársnyrtistofunni í Síðumúlanum. Það er niður í smá-
börn og alveg upp í eldri borgara. Stofan er í stóru atvinnuhverfi og
margir skreppa úr vinnunni hingað, en svo kemur fólk auðvitað víða
að.“
Eiginmaður Lindu er Guðmundur Gísli Geirdal, sjómaður og
bæjarfulltrúi í Kópavogi. Sjálf hefur Linda tekið virkan þátt í sjálf-
stæðisfélaginu í Kópavogi og er heimsóknarvinur hjá Rauða krossi
Íslands.
Áhugamál Lindu eru fjölskyldan og alls kyns hannyrðir. „Ég hef
einnig mjög gaman af golfi og elska að fara í berjamó.“ Fjölskylda
Lindu er stór og er hún dugleg að prjóna á mannskapinn. Börn
Lindu og Guðmundar eru Helga Kristín sem á þrjú börn, Hjörtur
Atli á eitt barn, Axel Örn 22 ára, Bjarki Freyr 18 ára og Sandra Dís
13 ára. Svo á Linda eina stjúpdóttur. Hún heitir Heiða Dögg og hún
á tvö börn. „Það er því yfirleitt alltaf líf og fjör í kringum í mig.“
Linda tekur sér frí í dag og eyðir afmælisdeginum með fjölskyld-
unni. „Afmælisveislan verður svo haldin seinna í mánuðinum.“
Hárgreiðslumeistarinn Linda klippir unga sem aldna.
Dugleg að prjóna
á mannskapinn
Linda Jörundsdóttir er fimmtug í dag
H
rafnhildur Ósk
Skúladóttir fæddist
9. ágúst 1977 í
Reykjavík og bjó
þar fyrstu árin.
Hún flutti síðan í Kópavog og hóf
skólagöngu þar, í Snælandsskóla
þar sem hún var í 1. og 2. bekk.
Hún flutti svo í Breiðholtið og var
í Breiðholtsskóla frá 3. bekk og
lauk þar grunnskóla. Hún fór á
íþróttafræðibraut í FB og lauk
þar framhaldsskólanámi.
„Ég fluttist í millitíðinni til
Danmerkur og var þar í hálft ár
þar sem ég bjó hjá danskri fjöl-
skyldu, vann og spilaði handbolta.
Þar eignaðist ég bónus-fjölskyldu
sem ég er í miklu sambandi við
enn þann dag í dag og hafa þau
Hrafnhildur Skúladóttir, grunnskólakennari og þjálfari – 40 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Viktor, Viktoría Dís, Kristófer Daði, Alexandra Ósk og Hrafnhildur Ósk.
Landsleikjahæsta kona
Íslands í handknattleik
Systkinin Efri röð frá vinstri: Rebekka Rut, Daði Rafn, Hanna Lóa og
Hrafnhildur Ósk. Neðri röð frá vinstri: Dagný og Drífa.
Akureyri Emanúel Máni Friðriksson
fæddist 25. nóvember 2016. Hann vó
4.032 g og var 53 cm á lengd. For-
eldrar hans eru Aníta Ösp Waage
Guðjónsdóttir og Friðrik Högnason.
Nýir borgarar
Reykjavík Jökull Ingi Hauksson fædd-
ist 9. ágúst 2016 kl. 23.03 og á því
eins árs afmæli í dag. Hann vó 3.926 g
og var 51,5 cm langur. Foreldrar hans
eru Berglind Nanna Kristinsdóttir og
Haukur Ingi Ólafsson.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is