Morgunblaðið - 09.08.2017, Page 31
31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
Þurrkgrindur
Innan- og utandyra
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
60 cm x 3,6 lm, ber 10 kg
Verð kr. 4.980
80 cm x 6,7 lm, ber 20 kg
Verð kr. 9.180
2 stærðir
J.K. Rowling, hinn góðkunni höf-
undur Harry Potter-bókanna ást-
sælu, trónir nú aftur efst á lista
yfir ríkustu rithöfunda heims eft-
ir að hafa dottið af honum árið
2008. Frá þessu er sagt á vefsíðu
The Guardian. Listi Forbes gefur
til kynna að árstekjur Rowling til
31. maí hafi verið 95 milljónir
dala (9,9 milljarðar ísl. kr.) sem
jafngildir um 180 dölum (tæplega
19 þús. ísl. kr.) á mínútu. Rowling
á þetta stökk að þakka útgáfu á
handriti leikritsins Harry Potter
og bölvun barnsins í hennar nafni
og kvikmyndinni Fantastic Beasts
and Where to Find Them.
Auk þess er nú verið að gefa út
myndskreyttar útgáfur af öllum
sjö Harry Potter-bókunum í til-
efni 20 ára afmælis fyrstu bók-
arinnar. Rowling ýtir spennu-
bókahöfundinum James Patterson
úr fyrsta sæti, en hann hefur ver-
ið efstur á lista Forbes síðustu
þrjú árin og mældist nú með 87
milljónir dala í árstekjur. Líklegt
þykir þó að Rowling detti brátt
aftur úr fyrsta sæti nema hún
gefi út nýja metsölubók. Rowling
og Patterson eru bæði talsvert
ríkari en þriðji tekjuhæsti höf-
undurinn, Jeff Kinney, þekktur
fyrir Dagbók Kidda klaufa, en
hann mælist með um 21 milljón
dala.
Í fjórða og fimmta sæti eru
Dan Brown og Stephen King á
svipuðu róli með 20 og 15 millj-
ónir árlega. Fyrir utan Rowling
og tvo aðra breska rithöfunda
eru allir rithöfundarnir í tíu efstu
sætunum bandarískir og fimm
eru konur.
George R. R. Martin, höfundur
Söngs um ís og eld, bókanna sem
sjónvarpsröðin Krúnuleikar
byggist á, er dottinn út af listan-
um en þykir líklegur til að klífa
hann aftur þegar næsta bók í
bókaflokknum kemur út. Hann
hefur gefið til kynna að það gæti
orðið á næsta ári.
J.K. Rowling skýst
aftur á tekjutoppinn
AFP
Tekjuhæst J.K. Rowling er vinsæl.
Djassganga niður Laugaveg í
markar upphaf Jazzhátíðar
Reykjavíkur sem sett verður í 28.
sinn í dag. Í ár fer Samúel Jón
Samúelsson fyrir göngunni og líkt
og síðustu ár verður lagt af stað
frá plötuversluninni Lucky Re-
cords við Hlemm kl. 17, en und-
irbúningur fyrir hljóðfæraleikara
hefst kl. 16.30. Allir sem hljóðfæri
geta valdið eru hvattir til að mæta
og spila með. Hátíðin verður sett
á Classic-sviðinu á 2. hæð Hörpu
kl. 17.30.
Opnunartónleikar hátíðarinnar
hefjast kl. 19 í Norðurljósasal. Þar
flytja söngvarinn og básúnuleik-
arinn Valdimar Guðmundsson, Jó-
el Pálssonar á saxófón, Eyþór
Gunnarsson á píanó, Einar Schev-
ing á trommur og Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson á kontrabassa
glænýja tónlist Jóels við ljóð
nokkurra íslenskra skálda, þeirra
á meðal eru Gyrðir Elíasson, Þór-
arinn Eldjárn, Gerður Kristný.
Jóel, sem ekki hefur samið söng-
tónlist áður, lýsir nýju tónlistinni
sem melódískri og melankólískri
músík með skvettu af grúvi og
gleði.
Klukan 20 stígur ein af skær-
ustu stjörnum hollensku djass-
senunnar, saxófónleikarinn Tineke
Postma, á svið ásamt kvartetti
sínum. Þó að hún sé ung að árum
er hún margverðlaunuð og ber þar
hæst virtustu djassverðlaun Hol-
lands The Buma Boy Edgar Award
sem hún
hlaut 2015.
Hún hlaut
hollensku
tónlist-
arverðlaunin
fyrir hljóð-
ritun sína
Dawn of
Light sem
skartaði
bassaleik-
aranum
Esperönzu Spalding og lék einnig
á tveimur Grammy-verðlaunuðum
hljóðritunum: Mosaic Project
(2012) með Terri Lyne Carrington
og Beautiful Life (2015) með Di-
anne Reeves. Með Postman leika
Marc van Roon á píanó, Brice So-
niano á kontrabassa og Tristan
Renfrow á trommur.
Klukkan 21.20 býður Björn
Thoroddsen gestum Jazzhátíðar
upp á ferðalag í tímavél tónlistar-
innar. Ferðinni er heitið aftur til
ársins 1982 sem markar upphaf
útgáfuferils Björns og samstarfs-
ins við Mikael Berglund. Mikael
Berglund er einn af bestu bassa-
leikurum Svíþjóðar, en hann lék á
fyrstu plötu Björns sem heitir
Svif. Platan hefur verið ófáanleg
um tíma en verður endurútgefin
af þessu tilefni.
Klukkan 22.30 er komið að svo-
nefndri „Jamsession“ á Classic-
sviðinu, en fyrst til að troða þar
upp er Tineke Postma.
Ganga, ný sönglög, hollensk
stjarna og svifið á vit fortíðar
JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR SETT Í 28. SINN Í DAG
Morgunblaðið/Golli
Fjör Fjöldi hljóðfæraleikara tók þátt í setningu 27. Jazzhátíðar í Hörpu í fyrra.
Tineke Postma
„Ég ólst upp við að leika fjölda
standarda, rétt eins og aðrir af
minni kynslóð djassmanna. Við urð-
um að þekkja og ráða við fjölda
ólíkra laga en þegar ég leik slagara
þessa dagana set ég venjulega mark
mitt á hann. Oft tengist túlkunin
textabútum í laginu sem gefa mér
vísbendingar um nálgun og útsetn-
ingu. Mér finnst mikilvægt að
kunna texta þessara laga sem ég
leik.“
-Þegar litið er yfir feril þinn má
einmitt sjá að þú vinnur mikið með
orð og texta, svo ekki sé minnst á að
þú skrifar sjálfur. Til dæmis hef-
urðu sett lög við ljóð Walts Whit-
man.
„Ég hef samið mörg lög við ljóð
og aðra texta og fengið frábæra
söngvara til að flytja þau með mér.
Stundum hef ég líka samið textana
við lögin. Og það að þekkja og skilja
textana getur ráðið því hvernig
maður fraserar laglínuna.
Ég syng alltaf orðin í huga mér
þegar ég leik laglínur sem hafa ver-
ið sungnar.“
Hersch hefur gegnum árin leikið
með fjölda afburða djassmanna og
nægir að nefna Charlie Haden, Joe
Henderson og Stan Getz. Þegar
hann velur að leika lög annarra
djassleikara á tónleikum, er hann þá
að votta þeim virðingu sína?
„Þetta eru bara lög sem ég kann
að meta, lög sem ég tel að ég geti
gert á einhvern hátt að mínum,“
svarar hann. „Í þeim verður alltaf
að vera eittvað sem ég get tengt mig
við. Það er til ótölulegur fjöldi fínna
laga en það þýðir ekki að ég geti
tengt mig við þau nándar nærri öll.
Ég gæti líklega leikið þau öll ef
byssu væri beint að höfðinu á mér
en það þýðir ekki að ég myndi velja
þau sjálfur.“
Ellefta einleiksplatan
–Hér kemurðu fram með tríói
þínu en þú leikur líka mikið í dúóum
og ekki síður einn. Hentar þér vel
að flakka milli þessara forma?
„Árum saman hef ég líklega leikið
álíka mikið einn og í samleik með
einum félaga og með tríóinu. Þetta
er allt mikilvægt. Í næsta mánuði
kemur út ellefta einleiksplata mín
og einhver sagði mér að fyrir utan
Keith Jarrett hefði enginn djasspí-
anisti gefið út jafn margar einleiks-
plötur. Það er form sem ég hef
þroskast inn í og ég finn mig sífellt
betur í. Það er önnur ábyrgð að
höndla að vera einn á sviðinu; öll at-
hyglin er á manni einum og allt
verður að vera fullkomið. En ég er
alltaf afslappaður þegar ég spila.“
Endurminningar á bók
Jazzhátíð Reykjavíkur fer nú
fram í Gay Pride-vikunni og fyrr á
laugardaginn, klukkan 17, verður
Hersch með listamannaspjall í
Hörpu. Hann hyggst meðal annars
ræða um reynslu sína sem samkyn-
hneigður djassleikari.
„Ég hef árum saman verið
aðgerðasinni og nú er að koma út
minningabók þar sem ég fjalla auk
tónlistarinnar um líf mitt og heilsu-
far, og baráttuna sem ég hef staðið
í. Ég hef gert mikið af því að safna
fé og reyna að auka þekkingu og
skilning fólks með tónlistarflutn-
ingi, og ég er alltaf opinskár og virk-
ur aðgerðasinni þótt það felist ekki í
því að vera marserandi í skrúðgöng-
um. Vonandi hef ég getað verið öðr-
um gott fordæmi.“
-Var aðkallandi að rita minning-
arnar og segja þessa sögu alla?
„Já. Einhvern veginn þvældist ég
inn í það að skrifa þessa bók en það
er gaman hvað hún er þegar farin að
vekja mikla athygli þótt hún sé ekki
komin út! Þetta er saga og hún
fjallar um tónlist, félagslegar að-
stæður, um heilsu mína, samkyn-
hneigð – þetta eru líklega engar
hefðbundnar djassminningar.“
-Þú varst fyrsta djassstjarnan
sem kom út úr skápnum, hvers
vegna telur þú að aðrir hafi ekki
tekið það skref?
„Hmm… þetta var alltaf „undir-
kúltúr“ í menningarlífinu og fólk
óttaðist afleiðingarnar og við-
brögðin ef það yrði opinbert. Tón-
listarmenn, og Duke Ellington og
aðrir í hljómsveit hans, vissu til að
mynda að Billy Strayhorn væri
samkynhneigður en umheimurinn
vissi það ekki. Strayhorn rak þess
vegna til að mynda ekki eigin hljóm-
sveit, þótt hann hefði alveg getað
það, og kaus að lifa lífi sínu í skugga
Ellingtons.“
Hersch segir að ótalmargir hafi
komið að máli við sig gegnum árin
og leitað ráða, meðal annars aðrir
tónlistarmenn sem hafi viljað koma
út úr skápnum og fólk sem hafi ver-
ið greint með HIV-smit, verið hrætt
og viljað vita hvaða áhrif sjúkdóm-
urinn hefði haft á hann.
„Ég hef það greinilega gott núna,
sjúkdómurinn hefur alls ekki sömu
áhrif og hann hafði,“ segir hann.
„Á áttunda áratugnum þegar ég
kom úr skápnum voru engar sam-
kynhneigðar fyrirmyndir en nú höf-
um við fjölda þeira. Það er samkyn-
hneigt fólk á þingi, í Hollywood, í
sjónvarpinu. Svo margt hefur
breyst á stuttum tíma.“
Að lokum spyr ég Hersch hvort
hann sé mikið á tónleikaferðalögum.
„Nei, þetta kemur í bylgjum. Í
nóvember fer ég í langa tónleikaferð
um Evrópu en þangað til er ég ekk-
ert svo upptekinn. Það fer eftir árs-
tíma og því hvað umboðsmaðurinn
biður mig að gera.
Ég kenni svolítið, en miklu minna
en áður, og hef góðan tíma til að
semja. Ég lifi býsna góðu lífi! Og er
á þeim stað í lífinu að ég leik ekki á
neinum aulatónleikum, aðeins á
stöðum og tónleikum sem skipta
sjálfa mig og gestina máli. Ætli það
sé ekki hægt að segja að ég njóti
velgengi í lífinu þegar ég get valið
og hafnað – geti sagt nei! – og það er
góð tilfinning,“ segir hann og hlær.
Tríó Kontrabassaleikarinn John Hébert, píanistinn Fred Hersch og trommu-
leikarinn Eric McPherson leika í Hörpu á laugardaginn kemur.