Morgunblaðið - 09.08.2017, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017
Atomic Blonde
Þegar breskur njósnari er myrtur í
Berlín rétt fyrir fall múrsins
ákveður leyniþjónustan MI6 að
senda á vettvang sinn besta starfs-
kraft, hina eitilhörðu Lorraine
Broughton (Charlize Theron).
Leikstjóri er David Leitch og meðal
leikara eru James McAvoy, John
Goodman og Jóhannes Haukur
Jóhannesson.
Rotten Tomatoes: 76%
Metacritic: 63/100
Annabelle: Creation
Nokkrum árum eftir að dóttir
brúðugerðarmannsins Samuels og
eiginkonu hans deyr í skelfilegu bíl-
slysi ákveða hjónin að breyta húsi
sínu í heimili fyrir munaðarlausar
stúlkur. Allt gengur vel til að byrja
með þar til stúlkurnar og nunnan
sem gætir þeirra uppgötva að það
er eitthvað illt á kreiki í bygging-
unni. Leikstjóri er David F. Sand-
berg, en í helstu hlutverkum eru
Lulu Wilson, Talitha Bateman og
Miranda Otto.
Rotten Tomatoes: 87%
Metacritic: 69/100
Out of Thin Air
Out of Thin Air er ný íslensk-bresk
heimildarmynd um Guðmundar- og
Geirfinnsmálið í leikstjórn Dylans
Howitt. Myndin byggir að hluta til
á gömlu myndefni frá áttunda ára-
tugnum, nýjum viðtölum og leikn-
um atriðum sem leikstýrt var af
Howitt og Óskari Jónassyni. Tónlist
gerði BAFTA-verðlaunahafinn
Ólafur Arnalds. Upptökustjóri er
Bergsteinn Björgúlfsson. Myndin
er framleidd í samstarfi Sagafilm
og Mosaic Films í London. Meðal
þeirra sem fram koma í myndinni
eru Erla Bolladóttir, Guðjón Skarp-
héðinsson, Gísli Guðjónsson, Ragn-
ar Aðalsteinsson, Páll Arnór Páls-
son, Kristín Anna Tryggvadóttir,
Hafþór Sævarsson, Arndís Sig-
urðardóttir, Ögmundur Jónasson
og Valtýr Sigurðsson.
Bíófrumsýningar
Njósnari, hrollvekjandi
dúkka og mannshvarf
Töffari Lorraine sem Charlize
Theron leikur er lýst sem blöndu af
Bond, Jason Bourne og John Wick.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Ætli það sé ekki framtaksleysi, þótt
það hljómi kannski niðurdrepandi.
Ég var bara ekki búinn að kýla á
það,“ segir Ólafur Jónsson um
ástæðu þess að hann hafi ekki gefið út
plötu fyrr en nú. Ólafur ætlar að
fagna útgáfu plötunnar Tími til kom-
inn með tónleikum á Jazzhátíð
Reykjavíkur á morgun, fimmtudag,
kl. 22.20 í Norðurljósum Hörpu.
„Ég hef verið að stússast í mörgu
og hef tekið þátt í mörgum verk-
efnum. Svo er ég að kenna mikið og
er í Stórsveit Reykjavíkur, ég spila
hér og þar. En í ljósi þess að ég var að
verða fimmtugur fannst mér vera
tími til kominn,“ segir Ólafur, sem
fagnar fimmtugsafmæli sínu þann 18.
ágúst og kveðst líklega einnig ætla að
halda upp á stórafmælið með veislu.
Á plötunni eru lög sem Ólafur hef-
ur samið á 20 ára tímabili og í tilkynn-
ingu segir að þar sé ólíkum tónlistar-
stefnum blandað saman á frumlegan
máta. „Á plötunni eru tvö lög sem ég
samdi fyrir 20 árum, eins og gengur
og gerist á maður þetta bara í skúff-
unni. Reyndar spiluðum við þessi
verk á sínum tíma, einmitt á Jazzhá-
tíð Reykjavíkur. Ég ákvað svo að at-
huga hvort mér líkaði enn við þau og
það kom í ljós. Svo eru þarna tvö lög
sem ég samdi í kringum árið 2000 en
restina samdi ég á síðustu tveimur ár-
um og það nýjasta í apríl á þessu ári,“
segir Ólafur.
Vill gera sitt besta
Hann kveðst hafa samið lögin af
hinum ýmsu tilefnum, en önnur ein-
faldlega af því að hann hafi viljað
semja tónlist og gera sitt besta. „Eitt
af fyrstu lögunum heitir „Nýtt líf“ og
ég samdi það eftir að dóttir mín fædd-
ist. Síðan er þarna lag sem heitir
„Minningar“, það samdi ég til minn-
ingar um afa minn sem lést skömmu
áður, og einnig lag sem heitir „Annar
dagur páska“ sem ég samdi núna í
apríl, það samdi ég þegar góðvinur
okkar lést á þeim degi.“
Með Ólafi spila á plötunni - og einn-
ig á tónleikunum - píanóleikarinn Ey-
þór Gunnarsson, bassaleikarinn Þor-
grímur Jónsson og trommuleikarinn
Scott McLemore. Á tónleikunum
munu þeir eingöngu spila lög af plötu
Ólafs. „Þetta er náttúrulega hluti af
Jazzhátíðinni og platan passar vel í þá
tímarifu sem við fáum. Þetta kvöld
verða einhverjir tvennir tónleikar á
undan. Þetta er heilmikil hátíð og það
er mikil tilhlökkun hjá mér að spila og
hlusta á aðra.“
Þetta eru einu tónleikarnir sem
Ólafur spilar á á hátíðinni þetta árið
og eftir þá verður Tími til kominn til
sölu á kostakjörum, að sögn Ólafs.
„Það er heiður að fá að koma fram
með þetta á Jazzhátíð og spila með
þessum flottu hljóðfæraleikurum.
Það er mikil tilhlökkun í okkur,“ segir
hann að lokum.
Morgunblaðið/Ófeigur
Stórafmæli „Í ljósi þess að ég var að verða fimmtugur fannst mér vera tími
til kominn,“ segir Ólafur Jónsson sem hefur gefið út fyrstu plötu sína.
Tími til kominn
hjá Ólafi Jónssyni
Ólafur fagnar fimmtugsafmælinu með fyrstu plötu sinni
Japanski leikarinn Haruko Naka-
jima er látinn, 88 ára að aldri.
Nakajima lék ófreskjuna Godzilla í
12 kvikmyndum um hana og einnig
í hinni sígildu kvikmynd Akira
Kurosawa, Sjö samúræjar, auk
fjölda japanskra stríðsmynda.
Nakajima hóf feril sinn í kvik-
myndum sem áhættuleikari í sam-
úræja- og stríðsmyndum og var í
hlutverki stigamanns í fyrrnefndri
kvikmynd Kurosawa. Árið 1954
birtist hann svo í búningi Godzilla
og var sá níðþungur, gerður úr
steypu þar sem skortur var á
gúmmíi í Japan á eftirstríðs-
árunum, að því er segir í frétt á vef
dagblaðsins The Guardian.
Búningurinn mun hafa vegið um
100 kg og sagði Nakajima í viðtali
við CBS-fréttastöðina árið 2014 að
hitinn inni í honum hefði farið upp í
um 60°C. Leikarinn reyndi að líkja
eftir hreyfingum bjarndýra og fíla í
hlutverki Godzilla og lék hann
skrímslið síðast í kvikmynd frá
árinu 1972, Godzilla vs. Gigan.
Erfiðisvinna Nakajima með styttu af
Godzilla. Búningurinn sem leikarinn þurfti
að vera í var skelfilega heitur og þungur.
Leikarinn sem lék
Godzilla látinn
AFP
Skútuvogur 1c 104 Reykjavík | Sími: 550 8500 | www.vv.is
FJARLÆGÐAMÆLIR
LD 220
Eiginleikar:
Drægni: 30m
Nákvæmni: +/- 3mm
Mælir: Lengd, fermetra og rúmmetra.
Gæðastaðall: Class 2
Aflgjafi: 2 x AAA
Veðurþol: IP54
Verð 7.998 kr.
SÝND KL. 8, 10
SÝND KL. 5, 8, 10.25
SÝND KL. 10.30SÝND KL. 5SÝND KL. 7.50
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
ÍSL. 2D KL. 4, 6