Morgunblaðið - 16.08.2017, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2017
Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Appótek: www.appotek.is
Einkarekið apótek í 60 ár
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Uppsteypa á kjallara undir Marr-
iott Edition-hótelinu við Hörpu í
miðbæ Reykjavíkur er nú í fullum
gangi, en hótelið verður með yfir
250 herbergjum og er áformað að
opna það árið 2019.
Karl Þráinsson, fulltrúi eigenda
hússins, segir vinnuna ganga vel
og á áætlun. „Steypuvinnan er
komin á fullt skrið núna, en Ístak
fékk þann samning að steypa upp
mannvirkið,“ segir Karl í samtali
við Morgunblaðið.
„Þetta gengur allt saman mjög
vel og eru menn núna að vinna í
því að koma sér upp úr jörðinni,“
segir hann og bendir á að verið
sé að vinna í kjallara hússins.
„Hann ætti að klárast einhvern
tímann í byrjun desember og þá
er hægt að fara að einbeita sér
að fyrstu hótelhæðum hússins,“
segir hann.
Stefnt er að því að búið verði
að steypa allt hótelið á síðari
hluta næsta árs og á frágangi
utanhúss að vera lokið fyrir árs-
lok 2018.
Vel gengur að
steypa við Hörpu
Framkvæmdir við Marriott Edition í miðbænum
Morgunblaðið/Hanna
Steypa Framkvæmdir eru víða í Reykjavík, m.a. við Hörpu í miðborginni.
Kjallarinn klárast í byrjun desember
Innheimta þjónustugjalda hófst við
þjónustumiðstöðina í Skaftafelli um
helgina. Tekið er sólarhringsgjald
fyrir hverja bifreið sem ekur inn á
svæðið, óháð því hvort stoppið er
tíu mínútur eða margar klukku-
stundir. Gjald fyrir fólksbíla er 600
krónur en hærra fyrir stærri bíla
og rútur.
Kerfið notar nýjustu tækni og
kallar ekki á aukið mannahald.
„Það er tekin mynd af hverju bíl-
númeri sem fer í gegn,“ segir Val-
björn Steingrímsson, fjármálastjóri
Vatnajökulsþjóðgarðs. Hægt er að
greiða með farsímaforriti, í gegn-
um vefsíðu eða í greiðsluvél í þjón-
ustumiðstöðinni.
„Þeim sem ekki borga innan tólf
tíma er flett upp í bifreiðaskrá og
þá er sendur reikningur í heima-
banka,“ segir Valbjörn, sem segir
gjaldtökuna fara vel af stað. at-
hi@mbl.is
Gjaldtaka hafin við
þjónustumiðstöðina
í Skaftafelli
Ný rannsókn,
sem birt er í tíma-
ritinu Journal of
Studies on Alco-
hol and Drugs
(JSAD), dregur í
efa eldri niður-
stöður vísinda-
manna þess efnis
að hóflega
drukkið rauðvín
minnki hættuna á
hjartasjúkdómum, en því hefur ver-
ið haldið fram að í víninu sé að finna
þráavarnarefni sem gætu komið í
veg fyrir að fita festist í æðaveggi
og stífluðu æðarnar.
Er í JSAD greint frá því að lang-
lífir einstaklingar sem séu lausir við
hjartasjúkdóma séu einfaldlega lík-
legri til að fá sér rauðvínsglas en
þeir sem glími við hjartasjúkdóma
og megi sökum veikinda sinna ekki
innbyrða áfengi ofan í lyfjagjöf.
„Ég er nú ekki viss um að það sé
rétt að halda því fram að eitt rauð-
vínsglas á dag styrki hjartað,“ segir
Sveinn Guðmundsson, formaður
Hjartaheilla, og bætir við að áður-
nefndar niðurstöður komi honum
því ekki mjög á óvart. „Það er hins
vegar alveg ljóst að óhófleg áfengis-
drykkja er mjög skaðleg fyrir hjart-
að og almenna heilsu fólks,“ segir
hann og bendir á að heilablóðfall sé
t.a.m. ekki óalgengur fylgikvilli
óhóflegrar áfengisneyslu.
„Ég hef ekki haft trú á því að
áfengisdrykkja bæti heilsu fólks, en
það má vel gera það með hreyfingu
og bættu mataræði,“ segir hann.
Rauðvín ekki lengur
gott fyrir hjartað?
Vín Oft er skálað
fyrir heilsunni.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Tíu umsóknir bárust um embætti
prests í Lindaprestakalli í Kópavogi.
Það ber til tíðinda að allir umsækj-
endur eru konur. Séra Kristján
Björnsson, for-
maður Presta-
félags Íslands, og
varaformaðurinn
Guðrún Karls
Helgudóttir
minnast þess ekki
að þetta hafi áður
gerst í svona fjöl-
mennum um-
sækjendahópi.
„Þetta er bæði
stórmerkilegt og afar ánægjulegt.
Þetta segir okkur líka að við eigum
margar færar konur í röðum guð-
fræðinga og presta,“ segir séra
Kristján.
Hann segir að þetta sé líka
ánægjuleg staða vegna þess að
stjórn Prestafélags Íslands hafi
ítrekað þurft að minna á að jafna
þurfi stöðu karla og kvenna þegar
kemur að prestskosningum.
„Það verður spennandi að sjá hver
af þessum góðu umsækjendum verð-
ur fyrsta konan til að gegna presta-
embætti við Lindakirkju og þessa
stóru og ungu sókn í Kópavogi,“
segir séra Kristján.
Umsækjendur um Lindasókn eru:
Aldís Rut Gísladóttir guðfræðingur,
Anna Þóra Paulsdóttir guðfræðing-
ur, séra Ása Laufey Sæmundsdóttir,
séra Bára Friðriksdóttir, Bryndís
Svavarsdóttir guðfræðingur, Dís
Gylfadóttir guðfræðingur, séra Eva
Björk Valdimarsdóttir, Helga Kol-
beinsdóttir guðfræðingur, Sóley
Herborg Skúladóttir guðfræðingur
og Sólveig Árnadóttir guðfræðingur.
Þá bárust þrjár umsóknir um
embætti prests í Keflavíkurpresta-
kalli. Umsækjendur eru: Bryndís
Svavarsdóttir guðfræðingur, séra
Fritz Már Jörgensson Berndsen og
Herborg Skúladóttir guðfræðingur.
Matsnefndir hefja störf
Umsóknarfrestur um embættin
tvö rann út 9. ágúst. Biskup Íslands,
Agnes M. Sigurðardóttir, skipar í
embættin frá 1. október til fimm ára.
Umsóknir fara nú til umfjöllunar
matsnefndar um hæfni til prests-
embættis og að fenginni niðurstöðu
hennar fjallar kjörnefnd prestakalls-
ins um umsóknir þeirra sem mats-
nefnd telur hæfasta. Kjörnefnd kýs
að því búnu milli umsækjendanna og
skipar biskup þann umsækjanda
sem hlýtur löglega kosningu.
Samkvæmt upplýsingum séra
Kristjáns Björnssonar eru prestar
og guðfræðingar í Prestafélagi Ís-
lands í heild 161, þar af 96 karlar og
65 konur.
Skipting eftir kynjum 60/40
„Það gerir skiptinguna 60% karlar
og 40% konur, ef við tökum saman
starfandi presta og presta og guð-
fræðinga með fagaðild. Af starfandi
prestum í embættum héraðspresta,
presta og sóknarpresta hjá Þjóð-
kirkjunni er hlutfall kvenna 38%. Við
getum leyft okkur að túlka það sem
svo að það er batnandi hlutfall
kvenna í framtíðinni af því að hlut-
fallið hjá þeim sem eru með fagaðild
er jafnt 50/50 og í þeim hópi eru m.a.
guðfræðingar sem ekki hafa tekið
vígslu. Hlutfall kvenna er skást í röð-
um biskupa og prófasta (50%) en síst
á meðal sóknarpresta,“ segir séra
Kristján.
Eingöngu konur sóttu um Lindasókn
Tíu konur sóttu um prestsembættið en enginn karl „Stórmerkilegt og afar ánægjulegt“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lindakirkja Nýjasta kirkjan í Kópavogi er í Salahverfi.Kristján
Björnsson
Mikil umferð hefur verið um fjall-
vegi í sumar. Lengra ferðatímabil
og aukinn fjöldi ferðamanna hefur
aukið álag.
„Vegirnir eru í ágætu standi.
Það er nýbúið að hefla Öskjuleið
og Sprengisandur hefur verið hefl-
aður einu sinni. Ég býst við því að
hann verði heflaður aftur eftir viku
til tíu daga,“ segir Gunnar Bóas-
son, yfirverkstjóri hjá Vegagerð-
inni á Húsavík
Fjallvegir voru flestir opnaðir
um hálfum mánuði fyrr í ár en alla
jafna. Þrátt fyrir það og aukna
umferð er Gunnar ánægður með
ástand vega. „Það er svakaleg um-
ferð enn þá. Þetta hefur gengið
ótrúlega vel í sumar, miklu betur
en í fyrra enda höfum við fengið
svo mikla rekju.“
Sprengisandur er heflaður tvisv-
ar í ár og Öskjuleið fjórum sinnum,
einu sinni oftar en verið hefur.
„Þessir vegir hafa ekki fengið
viðhald í mörg ár. Umferðin hefur
áttfaldast síðan 2010 en fjárveit-
ingin er næstum sú sama,“ segir
Gunnar.
„Kjalvegur var orðinn mjög
slæmur fyrr í sumar. Hann var svo
heflaður og hefur haldið sér
þokkalega síðustu þrjár vikur.
Vissulega er vegurinn hrjúfur og
leiðinlegur að keyra en það eru
ekki komnar djúpar holur í hann,“
segir Páll Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Fannborgar, sem
rekur ferðaþjónustu í Kerling-
arfjöllum.
Páll kveðst vonast eftir því að
Vegagerðin hefli Kjalveg aftur í
sumar. „Það er umferð um hann
langt fram á haust en við sjáum
það líka greinilega að ef hann er
heflaður seint að sumri þá er hann
miklu betri næsta sumar.“
hdm@mbl.is
Aukin vegheflun
á fjallvegum í ár
Enn mikil umferð bíla um hálendið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sprengisandur Umferð um Fjórð-
ungskvísl við Nýjadal á dögunum.