Morgunblaðið - 16.08.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.08.2017, Blaðsíða 27
kvæmdastjórn hjá Skógræktar- félagi Eyfirðinga 1976 og gegndi því starfi til 2004. Þá var hann ráð- inn skipulagsfulltrúi Skógræktar ríkisins með aðsetur á Akureyri. Hann er nú að ljúka 50 ára starfs- ferli við skógrækt. Helstu verkefni hans hafa tengst uppbyggingu og rekstri útivistarskógar í Kjarna- skógi við Akureyri og uppbyggingu og rekstri gróðrarstöðvar í Kjarna frá 1976-2004. Hallgrímur hefur fyrir hönd Skógræktarinnar og Skipulags- stofnunar tekið saman og ritstýrt leiðbeiningariti um skógrækt í skipulagsáætlunum sveitarfélaga, auk annarra skrifa um skógrækt. Hann kenndi hönnun og ræktun úti- vistarskóga við umhverfisdeild Lbhí á Hvanneyri um árabil. Hallgrímur starfaði í skátahreyf- ingunni og var einn af stofnendum Hjálparsveitar skáta á Akureyri. Hann tók þátt í starfsemi Skauta- félags Akureyrar, keppti í hrað- hlaupi á skautum meðan sú íþrótt var stunduð þar og sat í stjórn Skautafélags Akureyrar þegar unn- ið var að uppbyggingu vélfrysts skautasvæðis á Akureyri. „Skautaíþróttin var mjög vinsæl hér áður fyrr. Við systkinin og aðrir krakkar í Innbænum vorum alltaf á skautum þegar færi gafst og fram fór skipulögð keppni í skautahlaup- um. Nú hefur slík keppni ekki farið fram frá því um 1980. Þessi íþrótta- grein er háð sérstökum náttúruskil- yrðum sem hafa líklega versnað hér á landi með örlítilli vetrarhlýnun. Hins vegar er íshokkí í uppgangi, hér á Akureyri og í Reykjavík. Um áhugamálin má svo geta þess að við fjölskyldan gerðum upp gam- alt hús á mínum æskuslóðum, Aðal- stræti 52. Húsið var allt endurgert í upphaflegri mynd og það tók um 20 ár en það sómir sér nú vel á upp- runalegum stað, við hlíð Nonnahúss. Þar búum við enn og ræktum kart- öflur eins og gert var í gamla daga.“ Fjölskylda Hallgrímur kvæntist 26.5. 1968 Kristínu Aðalsteinsdóttur, f. 8.5. 1946, prófessor emeritus við Háskól- ann á Akureyri. Kristín er dóttir Að- alsteins Gíslasonar kennara og Ás- laugar Jónsdóttur frá Svínadal við Jökulsárgljúfur. Börn Hallgríms og Kristínar eru: 1) Berglind Hallgrímsdóttir, f. 2.10. 1968, framkvæmdastjóri hjá Ný- sköpunarmiðstöð Íslands, búsett í Garðabæ og á hún eina dóttur, Mar- íu Kristveigu; 2) Aðalsteinn Hall- grímsson, f. 25.11. 1976, upplýsinga- tæknifræðingur sem starfar við eftirvinnslu kvikmynda, búsettur í Kaupmannahöfn en kona hans er Gunnur Ósk Friðriksdóttur þroska- þjálfi og eru barnabörnin Tryggvi Þór og Eyvindur Orri; 3) Tryggvi Hallgrímsson f. 26.5. 1979, félags- fræðingur á Jafnréttisstofu, búsett- ur á Akureyri en kona hans er Þóra Pétursdóttir fornleifafræðingur og eiga þau eina dóttur, Kötlu. Systkini Hallgríms eru: Edda Indriðadóttir, f. 24.10. 1936, fyrrv. skrifstofukona á Akureyri og Ís- landsmeistari í skautahlaupi kvenna; Þórhallur Indriðason, f. 24.12. 1938, d. 6.6. 1941, og Örn Indriðason, f. 24.6. 1943, húsasmíðameistari á Ak- ureyri og Íslandsmeistari í skauta- hlaupi karla. Foreldrar Hallgríms voru Indriði Jakobsson, f. 1.7. 1909, d. 4.11. 1993, vélstjóri sem sigldi með fisk til Bret- lands á stríðsárunum og síðar véla- viðgerðarmaður á bílaverkstæðinu Þórshamri, og k.h., Kristveig Hall- grímsdóttir, f. 20.6. 1911, d. 22.5. 1977, húsfreyja á Akureyri. Hallgrímur Indriðason Soffía Arnþórsdóttir ljósm. frá Auðbrekku Grímur Ólafsson b. á Neðri Bakka í Ólafsfirði Matthildur Grímsdóttir ljósm. í Glæsibæjarhreppi og á Akureyri Hallgrímur Helgason bátasmiður og beykir á Akureyri Kristveig Hallgrímsdóttir húsfr. á Akureyri Ingibjörg Árnadóttir húsfr. í Kaupangssveit Helgi Kolbeinsson b. á Króksstöðum í Kaupangssveit Sigurlaug Jónasdóttir frá Fagrabæ í Laufássókn Helgi Friðrik Eiríksson b. í Botni í Hrafnagilshreppi Þorgerður Helgadóttir húsfr. á Akureyri Jakob Jakobsson skipstj. á Akureyri Friðrika Friðriksdóttir húsfr. í Hrafnagilshreppi Jakob Jónasson sjóm. í Grýtubakkahreppi Úr frændgarði Hallgríms Þórs Indriðasonar Indriði Jakobsson vélstj. á Akureyri Skógfræðingurinn Hallgrímur hef- ur unnið að skógrækt í hálfa öld. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2017 Sverrir Ragnars fæddist á Ak-ureyri 16.8. 1906. Foreldrarhans voru hjónin Ragnar Ólafsson, kaupmaður og konsúll á Akureyri, og Guðrún Ólafsson, f. Johnsen, húsfreyja. Meðal systkina Sverris voru Egill Ragnars, útgerðarmaður á Siglufirði og auk þess á Þórshöfn; Kjartan Ragnars, lögmaður og sendifulltrúi, faðir Áslaugar Ragnars blaðamanns, móður Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa og borgarráðsmanns, Guðrún Ragnars, húsfreyja á Akur- eyri, móðir Sunnu Borg leikkonu, og Ólafur Ragnars, kaupmaður á Siglu- firði og í Reykjavík, faðir Gunnars Ragnars, fyrrv. forstjóra Slipp- stöðvarinnar á Akureyri og fyrrv. forseta bæjarstjórnar Akureyrar. Eiginkona Sverris var María Matthíasdóttir Ragnars, sem lést 1975. Dætur þeirra eru Ellen, f. 1933, og Ragna, f. 1935. Sverrir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926, cand. phil. frá HÍ 1927, las lögfræði við Háskóla Íslands í þrjá vetur en hvarf frá námi við andlát föður síns, tók við rekstri föður síns og var kaup- maður á Akureyri frá 1930-70. Sverr- ir var sparisjóðsstjóri við Sparisjóð Akureyrar 1957-86 er hann hætti fyr- ir aldurs sakir, þá nær áttræður. Hann var bæjarfulltrúi á Akur- eyri á árunum 1950-54, stjórnar- formaður í Möl & sandi hf. frá 1955- 96 og umboðsmaður fyrir Sameinaða gufuskipafélagið og Bergenska gufuskipafélagið um nokkurra ára skeið á fjórða áratugnum. Hann var formaður Vinnuveitendafélags Akureyrar um langt árabil og sat í stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og í stjórn Rafveitu Akur- eyrar. Sverrir var umdæmisstjóri Rotary á Íslandi 1961-62 og ræðis- maður Noregs og Frakklands um langt árabil. Sverrir var sæmdur riddarakrossi hinnar ísl. fálkaorðu og norsku Sankti Ólafsorðunni og hlaut einnig franska heiðursviðurkenningu. Sverrir lést 28.1. 2001. Merkir Íslendingar Sverrir Ragnars 90 ára Ásta Guðlaug Jónsdóttir 85 ára Eggert Guðjónsson Guðrún G. Guðlaugsdóttir Sigrún Tryggvadóttir Xilan Liu 80 ára Catherine D. Eyjólfsson Hildur S. Þorsteinsdóttir Sigríður Theódórsdóttir Örn Reykdal Ingólfsson 75 ára Bergljót I. Þórarinsdóttir Hafsteinn P. Sörensen Hrönn Káradóttir Lárus Gunnlaugsson Sigurþór Jakobsson 70 ára Einar Sigurþórsson Eiríkur Sigurðsson Hallgrímur Þór Indriðason Jórunn J. Þórðardóttir Magnús Jónsson Magnús Óskarsson Sigríður Jónsdóttir 60 ára Brynja Sif Stefnisdóttir Ebba Þóra Hvannberg Egill Sigurðsson Elísabet Hrönn Pálmadóttir Hermann Jónas Ívarsson Ingveldur D. Halldórsdóttir Sigrún Sigurjónsdóttir Sigurborg Guðmundsdóttir Sigurþór Gíslason Vilhjálmur Sveinsson Viparat Charoenthanom 50 ára Abdel Hamid Oulad Idriss Árni Sævar Gylfason Birna Margrét Júlíusdóttir Borghildur Jóna Árnadóttir Edda Sólveig Úlfarsdóttir Einar Pálmi Sigmundsson Guðrún K. Svavarsdóttir Jóhanna María Jónsdóttir Jónas Freyr Harðarson Jónas Þórðarson Jón Harry Njarðarson Lena Cecilia Nyberg Margrét Karlsdóttir Sigríður M. Þorfinnsdóttir Steinþór Kári Kárason Svava I. Sveinbjörnsdóttir Sæunn Björg Hreinsdóttir Valur Sveinsson 40 ára Fernando Ramel Openia Finnur Pálmi Magnússon Guðrún Karlsdóttir Ingiberg Steinar Bjarnason Ingi Þór Þorvaldsson Jaroslaw Jacek Lacek Karvel Þorsteinsson Margrét H. Jóhannsdóttir María Gísladóttir Sigrún Björk Einarsdóttir Thelma D. Ragnarsdóttir 30 ára Anna Rut Kristjánsdóttir Ásta Ýrr Kristjánsdóttir Berglind Ýr Jónasdóttir Daníel Þór Hannesson Heiðar Geir Júlíusson Ívar Pálsson Joanna Kedzierska Jóhanna Júlía Scheving Jóhann Ólafur Högnason Kári Páll Önnuson Lilja Dröfn Bjarnadóttir María Bára Jóhannsdóttir Snævar Örn Ólafsson Toni Streckrodt Valdimar Veturliðason Til hamingju með daginn 30 ára Valdimar ólst upp á Surtsstöðum í Jökulsár- hlíð, býr á Egilsstöðum, er smiður og búfræðingur. Maki: Sóley Valdimars- dóttir, f. 1984, umhverfis- skipulagsfræðingur á teiknistofu á Egilsstöðum. Dætur: Heiður Vaka, og Rúna Björt, f. 2017. Foreldrar: Veturliði Rúnar Kristjánsson, f. 1957, og Ragnheiður Haraldsdóttir, f. 1954. Þau eru bændur á Surtsstöðum.. Valdimar Veturliðason 30 ára Jóhann ólst upp í Bolungarvík, býr þar, lauk stúdentsprófi frá MÍ og er flutningabílstjóri hjá Eim- skip. Systkini: Jón Högnason, f. 1985; Steinunn Diljá Högnadóttir, f. 1989, og Guðbjörg Ebba Högna- dóttir, f. 1992. Foreldrar: Högni Jóns- son, f. 1964, og Sunna Reyr, f. 1963. Þau eru bændur í Neðri-Ósi í Bolungarvík. Jóhann Ólafur Högnason 30 ára Jóhanna ólst upp á Höfn í Hornafirði, býr í Kópavogi, lauk sveinsprófi í hárgreiðslu og starfar við leikskóla. Maki: Björgvin Þorvalds- son, f. 1986, sölustjóri hjá Símanum. Börn: Emma Dís, f. 2012, og Daníel Þór, f. 2014. Foreldrar: Þórdís Ims- land, f. 1964, húsfreyja, og Sívar Árni Scheving, f. 1965, með eigin atvinnu- rekstur. Þau búa á Höfn. Jóhanna J. Scheving Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu u KASSAR u ÖSKJUR u ARKIR u POKAR u FILMUR u VETLINGAR u HANSKAR u SKÓR u STÍGVÉL u HNÍFAR u BRÝNI u BAKKAR u EINNOTA VÖRUR u HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.