Morgunblaðið - 16.08.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2017
Morgunblaðið greindi frá því ígær að þrátt fyrir að fang-
elsið á Hólmsheiði hefði verið tekið
í notkun hefði biðlisti eftir afplánun
lengst.
Um síðustu áramót hefðu 550beðið afplánunar en nú biðu
560. Þá hefðu 34 fangelsisdómar
fyrnst í fyrra og það sem af er þessu
ári hefðu 17 fangelsisdómar fyrnst.
Skýringarnar á þessu eru ýmsar.Meðal þeirra er sú staðreynd
að þegar Hólmsheiðarfangelsið var
tekið í notkun var tveimur minni
fangelsum lokað. Ef til vill hefði átt
að bíða með að loka þeim þar til
mesti kúfurinn hefði verið unninn
niður.
Þá þurfti í sumar að loka einufangahúsi á Litla-Hrauni
vegna nauðsynlegra endurbóta sem
setið höfðu á hakanum.
Enn fremur, og það kom les-endum sennilega mest á óvart,
hefur fangelsið á Hólmsheiði aldrei
verið nálægt því fullnýtt, þar sem
fáeina fangaverði vantar til að
hægt sé að ná út úr því fullri nýt-
ingu. Fangelsið tekur 56 fanga en
þar hafa mest verið 40 í einu.
Þetta er augljóslega óviðunandiástand. Það er óviðunandi fyr-
ir þá sem brotið hefur verið gegn að
brotamenn sæti ekki afplánun þar
sem dómar fyrnist.
Og það er líka óviðunandi fyrirdæmda menn að þurfa að bíða
lengi eftir afplánun með þeim aug-
ljósu og verulegu óþægindum sem
slíkri bið fylgja.
Óviðunandi ástand
STAKSTEINAR
„Ég horfði yfir hópinn sem gekk fyr-
ir aftan mig í Gleðigöngunni. Mér
fannst ég aldrei hafa séð eins fall-
egan hóp. Ég var svo stolt. Ég vissi
að í hópnum var HIV-jákvætt fólk
sem aldrei hafði komið opinberlega
fram með það áður og ég vissi að í
hópnum var HIV-neikvætt fólk sem
sýndi okkur skilyrðislausan stuðn-
ing með því að ganga þarna með
okkur. Bara það að vera með í Gleði-
göngunni í ár var stór sigur fyrir alla
HIV-jákvæða á Íslandi, já og reynd-
ar toppurinn á hetjulegri baráttu
fólks sem aldrei gafst upp,“ segir
Sigrún Grendal Magnúsdóttir, for-
maður stjórnar samtakanna HIV Ís-
land.
Miklar framfarir í meðhöndlun
„Við viljum vekja athygli á mikl-
um framförum í lyfjameðferð og það
er þannig í dag að HIV-jákvæðir
sem taka lyf smita ekki. Lyfin halda
veirunni niðri þannig að hún er
ómælanleg og þar af leiðandi ósmit-
andi. Baráttumál okkar er að upp-
lýsa fólk og kveða niður fordóma og
misskilning. HIV-jákvæðir geta lifað
eðlilegu lífi í alla staði,“ segir Sigrún,
sem vill benda áhugasömum á að
hafa samband við samtökin HIV Ís-
land í gegnum heimasíðu félagsins,
www.hiv-island.is. ernayr@mbl.is
Jákvæðir
gengu
glaðir
HIV Ísland tók
þátt í Gleðigöngunni
Jákvæðni HIV Ísland tók þátt í ár.
Náðu lengra með
Tækniþróunarsjóði
Rannís og Samtök iðnaðarins boða til kynningarfundar með
Tækniþróunarsjóði fimmtudaginn 17. ágúst nk. kl. 8.30-10.00.
Skráning á www.si.is
Næsti
umsóknarfrestur
í sjóðinn er til
15. september
Sigurður Björnsson, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði
Rannís, og Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís, fara yfir:
· Styrkjaflokka Tækniþróunarsjóðs
· Skattfrádrátt vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
· Reglugerð um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga
Fundarstjóri er Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður stefnumótunar
og nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins.
www.tths.is
Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 á 1. hæð í Kviku.
Dagskrá
Veður víða um heim 15.8., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 15 léttskýjað
Akureyri 13 léttskýjað
Nuuk 7 þoka
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 15 skýjað
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 19 heiðskírt
Lúxemborg 21 léttskýjað
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 18 skýjað
Glasgow 17 rigning
London 22 rigning
París 23 þrumuveður
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 26 skýjað
Berlín 27 heiðskírt
Vín 29 heiðskírt
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 33 heiðskírt
Róm 31 heiðskírt
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 21 þoka
Montreal 20 alskýjað
New York 23 þoka
Chicago 25 léttskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:24 21:41
ÍSAFJÖRÐUR 5:15 21:59
SIGLUFJÖRÐUR 4:58 21:43
DJÚPIVOGUR 4:50 21:14
Atvinna