Morgunblaðið - 16.08.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2017
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
og aðrir fulltrúar í borgarráði
fengu á síðasta ári ítarlega kynn-
ingu á fornleifarannsókninni á bíla-
stæði Landssímahússins við Kirkju-
stræti þar sem áður var hluti elsta
kirkjugarðs í Reykjavík, Víkur-
garðs. Þeir voru þá upplýstir um að
þar hefðu fundist minjar frá því
fyrir kristnitöku sem að öllum lík-
indum væru trúarlegs eðlis.
Þetta segir borgarstjóri í svari
við fyrirspurn Morgunblaðsins um
hvort vitneskja um þessar elstu
minjar, sem fyrst kom fram opin-
berlega hér í blaðinu á laugar-
daginn, breyti einhverju um af-
stöðu hans til fyrirhugaðrar
hótelbyggingar á svæðinu.
Borgarstjóri hefur áður svarað
því til að hann telji rétt að halda
framkvæmdunum áfram og ljúka
hótelbyggingunni. Vitneskjan um
hinar heiðnu minjar hefur því ekki
breytt afstöðu hans. Frestur sem al-
mennir borgarar hafa til að gera
athugasemd við hótelbygginguna
rennur út 15. september. Dagur
segir í svarinu að hann hafi mikinn
áhuga á að „gera þessari sögu og
eftir atvikum einstökum gripum
góð skil og gera þá aðgengilega
borgarbúum, almenningi og gest-
um borgarinnar þegar rannsóknum
lýkur, á veglegan hátt.“ Borgar-
stjóri bendir á að nýjar rannsóknir
hafi verið að dýpka og bæta við
skilning og þekkingu á sögu og
landnámi Reykjavíkur sem gerð
eru skil í Landnámssýningunni í
Aðalstræti.
„Tillögur um það hvernig best
væri staðið að því að gera þessa
sögu aðgengilega er nú í undirbún-
ingi á vegum Borgarsögusafns,“
segir borgarstjóri. „Einnig hefur
þegar verið ákveðið að efna til sam-
keppni um Víkurgarðinn til að
draga fram þá merku sögu sem
staðurinn hefur að geyma. Sú til-
laga kom fram í bréfi Minjastofn-
unar vegna málsins. Samkeppnin er
í undirbúningi í samvinnu umhverf-
is- og skipulagssviðs og Borgar-
sögusafns auk þess sem vonast er
eftir góðu samstarfi við Minja-
stofnun um málið. Ég vonast til að
þessi máli skýrist frekar á næstu
vikum en það er mér metnaðarmál
að standa vel að verki og lyfta þess-
ari sögu.“
Borgarstjóri vissi
um minjarnar
Morgunblaðið/Hanna
Skipulag Hluti hins forna Víkurkirkjugarðs náði inn á bílastæði við Lands-
símahúsið. Þar hefjast framkvæmdir við hótelbyggingu síðar á þessu ári.
Boðar samkeppni um Víkurkirkju-
garð Hótelbyggingu haldið til streitu
Hljómsveitin Axel O & Co spilar í
bandaríska sendiráðinu við Laufás-
veg á Menningarnótt á laugardag,
frá klukkan 14 til 16. Auk tónlistar-
innar verða veitingar í boði og
spurningakeppni Delta-flugfélags-
ins, sem gefur flugferð í verðlaun.
Að sögn Axels Ómarssonar teng-
ist tónlistarflutningurinn því að
sendiráðið styrkir hljómsveitina til
farar á tónlistarhátíðina Texas
Sounds International Country
Music Awards í nóvember. Þar er
Axel O & Co. tilnefnd til verðlauna
og mun koma fram ásamt hljóm-
sveitum frá alls fimmtán löndum.
Sveitasöngvahátíðin Iceland
Country Music Festival verður hald-
in í fyrsta sinn í Hvíta húsinu á Sel-
fossi laugardaginn 9. september.
Þar mun Axel O & Co. koma fram.
Einnig syngur þar Arnar Ingi Ólafs-
son, en bæði hann og hljómsveitin
tóku þátt í sveitasöngvahátíðinni í
Sörvogi í Færeyjum í sumar. Þá
kemur Hallur Joensen, ókrýndur
kántríkóngur Færeyja og vel þekkt-
ur sveitasöngvari, fram á tónleik-
unum. Miðasala er hafin á tix.is.
gudni@mbl.is
Ljósmynd/Jens Kr. Vang
Axel O & Co. Sveitin spilar á Menningarnótt í bandaríska sendiráðinu, á
kántríhátíð á Selfossi 9. september og í haust á sveitatónlistarhátíð í Texas.
„Kántrí“ í sendiráði
Bandaríska sendiráðið býður upp
á sveitatónlist á Menningarnótt
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess
að þau þekkja tal betur en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Nýju ReSound LiNX 3D eru
framúrskarandi heyrnartæki
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Umsóknum um atvinnuleysisbætur í
öðru landi hefur fækkað síðustu ár.
Þeir sem fá atvinnuleysisbætur á
Íslandi geta farið í atvinnuleit til Evr-
ópu og haldið atvinnuleysisbótum. Til
þess þurfa þeir að sækja um U2-vott-
orð. Það veitir rétt til atvinnuleysis-
bóta í allt að þrjá mánuði meðan leitað
er að vinnu í EES-ríki. Helsta skil-
yrðið er að umsækjandi hafi verið án
vinnu, þegið bætur í samfellt fjórar
vikur fyrir brottför og ekki hafnað at-
vinnutilboði.
Jóngeir H. Hlinason, deildarstjóri
hjá Vinnumálastofnun, segir vottorð-
ið áður hafa heitið E-303. Nafni þess
var breytt þegar tekin var upp ný
reglugerð á miðju ári 2012.
Samkvæmt tölfræði Vinnumála-
stofnunar hafa um 5.480 U2-vottorð
verið gefin út frá 2008 til og með 31.
júlí í ár. Til samanburðar voru um
1.700 slík vottorð gefin út árin 1994 til
2007. Fyrra árið miðast við upptöku
Íslands á EES-samningnum.
Mun færri hafa sótt um slík vottorð
frá útlöndum, þ.e. vottorð sem veita
þennan rétt á Íslandi. Þannig hafa
verið móttekin alls 1.370 E-303/U2
vottorð frá árinu 1994 til og með 31.
júlí. Handhafar slíkra vottorða halda
rétti til atvinnuleysisbóta í allt að þrjá
mánuði við atvinnuleit hér.
Leituðu til Norðurlanda
Jóngeir segir aðspurður að hátt
hlutfall Norðurlandaríkja í vottorðum
útgefnum frá Íslandi sé vísbending
um að þangað hafi Íslendingar leitað
eftir efnahagshrunið. Tölfræðin sýni
landið þar sem farið er í atvinnuleit,
en ekki þjóðerni umsækjenda.
Á sama hátt kann fjöldi U2-vott-
orða sem móttekin voru á Íslandi að
vera vísbending um fjölda þeirra Ís-
lendinga sem vildu halda erlendum
atvinnuleysisbótum sínum meðan
þeir leituðu að vinnu hér á landi.
Jafnframt er hægt að sækja um
svonefnt U1-vottorð hjá Vinnumála-
stofnun. Það hét áður E-301.
Með því er hægt að fá vottað að
umsækjandi hafi verið atvinnuleysis-
tryggður á Íslandi síðustu þrjú ár. Á
þann veg er unnt að flytja áunnin at-
vinnuleysistryggingaréttindi milli
Evrópulanda. Það nýtist þegar um-
sækjandi fær vinnu í Evrópu um
skamman tíma og verður atvinnulaus.
Þar geta einstaklingar hækkað bóta-
rétt sinn og þar með greiðslur.
Frá 1994 til og með 31. júlí hafa
16.590 U1-vottorð verið gefin út frá
Íslandi. Gefin voru út 7.419 vottorð til
Póllands, eða 44,7% af heildinni. Hlut-
ur Norðurlandaríkja var 41,6%.
Atvinnuleysisbætur og atvinnuleit á Íslandi og í Evrópu 1994-2017
Heimild:
Vinnumálastofnun
Útgefin E 301/U1-
vottorð frá Íslandi
Útgefin E-303/U2-
vottorð frá Íslandi
Móttekin E-303/U2-
vottorð til Íslands
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
3.318
441
925
436
266
125
3446 48
Meðaltal
1994-2006
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 jan.-júlí
2017
Danmörk
845
Svíþjóð
155
Pólland
13
Önnur lönd
246
Pólland
2.625
Pólland
7.419
62%
37%
7.172
1.370
16.590
45%
Önnur lönd
1.867Þýskaland
1.096
Önnur lönd
1.446 Danmörk
1.276
Danmörk
3.193
Noregur
1.281
Svíþjóð
2.155
Svíþjóð
529
Noregur
875
Noregur
111
Þúsundir sóttu um rétt
til atvinnuleysisbóta ytra
Flestir umsækjenda fóru til Norðurlandanna og Póllands