Morgunblaðið - 16.08.2017, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2017
djamma með Keith Richards?
„Ég er alveg til í það en ég held
að hann yrði fljótur að drekka mig
undir borðið. Maður þarf að komast
að leyndarmálinu hjá þeim, ég er
búinn að túra í tvö ár og alveg bú-
inn á því en þeir hafa verið á ferð-
inni í yfir 50 ár og eru enn frískir.“
Tónleikar fram að jólafríi
Það er stíft tónleikahald fram
undan hjá Kaleo, eins og verið hef-
ur sl. tvö og hálft ár. „Það er fyrst
núna sem við fáum að anda aðeins,
stuttar pásur á milli túra en annars
erum við bara að túra,“ segir Rub-
in. Næsta törn hefst 25. ágúst með
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Kaleo mun hita upp
fyrir Mick Jagger og félaga í hinni
goðsagnakenndu rokksveit Rolling
Stones á tónleikum sem haldnir
verða 16. september í Red Bull
Ring í Spielberg í Austurríki.
Kaleo hefur verið að gera garð-
inn frægan erlendis frá því að
hljómsveitin fluttist búferlum til
Bandaríkjanna snemma árs 2015,
hlotið lofsamlega dóma fyrir plötur
sínar og tónleika og verið önnum
kafin við tónleikahald víða um lönd.
En hvernig tókst Kaleo að landa
þessu giggi, að fá að hita upp fyrir
rokköldungana í Rolling Stones?
„Það er líklega samvinna milli
plötuútgefanda, bókunarskrifstofu
og umboðsskrifstofunnar,“ svarar
annar af tveimur gítarleikurum
Kaleo, Rubin Pollock. „Það hefur
kannski eitthvað með það að gera –
en þó örugglega ekki – að þegar
við sömdum við bókunarskrifstof-
una spurðu þeir okkur hvaða
hljómsveit við vildum helst hita upp
fyrir og við svöruðum Rolling Ston-
es. Svo hitti ég bókarann um dag-
inn í Chicago og hann sagði: „Jæja,
það tók tvö ár en ég er búinn að
redda þessu,“,“ segir Rubin og
hlær.
„Ótrúlega gaman“
– En hvernig leggst þetta í þig?
„Þetta er bara geðveikt, óraun-
verulegt í rauninni. Ég fór bara að
hlæja þegar ég heyrði af þessu,
fannst þetta eiginlega bara fyndið.
Þetta er ótrúlega gaman, að fá að
hita upp fyrir stærstu rokk-
hljómsveit allra tíma,“ svarar Rub-
in.
– Og þið fáið vonandi að hitta þá
félaga aðeins?
„Ég ætla að vona það. Það er
ekkert alltaf þannig, fer eftir því
hvernig menn eru stemmdir og
hvernig hljómsveitirnar eru en ég
hef heyrt að þeir séu frekar af-
slappaðir.“
– Þú ferð kannski ekki að
tónleikum í Anaheim í Kaliforníu
og mun Kaleo leika víða um Banda-
ríkin og Evrópu allt fram til 16.
desember þegar hljómsveitin held-
ur tónleika í Þessalóníku í Grikk-
landi.
Rubin er spurður hvort slíkar
ferðir reyni ekki á vinskapinn í
hljómsveitinni og segir hann þá
drengi vissulega þurfa að vera góða
hver við annan.
– Og það verður gott að komast í
jólamatinn til mömmu?
„Já, ertu ekki að grínast? Það er
ekki til betri tilfinning en að fara til
mömmu og fá hreinar nærbuxur og
jólamatinn,“ svarar Rubin kíminn.
Morgunblaðið/Hilmar Gunnarsson
Velgengni Kaleo í mars árið 2016 þegar hljómsveitin bjó og starfaði í Austin í Texas. Frá vinstri Davíð Antonsson, Jökull Júlíusson, Daníel Ægir Krist-
jánsson og Rubin Pollock. Blaðamaður sem heimsótti hljómsveitina færði hljómsveitinni páskaegg frá Íslandi og voru drengirnir hæstánægðir með þau.
Tók tvö ár að redda þessu
Íslenska rokkhljómsveitin Kaleo hitar upp fyrir Rolling Stones á tónleikum í Austurríki í
september „Óraunverulegt,“ segir gítarleikarinn Rubin Pollock um þessa vegsemd
AFP
Frískir Félagarnir í Rolling Stones hafa verið að frá árinu 1962.
Í Borgarbókasafninu í Grófinni hef-
ur verið opnuð sýning á myndljóðum
eftir skáldið Óskar Árna Óskarason.
Sýningin er haldin í tilefni af sér-
stakri hátíðarútgáfu ljóðasafnsins
Myndljóð.
Myndljóð Óskar Árna saman-
standa af titlum og táknum, nánar
tiltekið bókstöfum og greinar-
merkjum. Táknunum eða leturein-
ingunum er raðað á síðuna þannig að
úr verður mynd, mynd sem titillinn
lýsir – og lýsir ekki. Sum ljóðin eru
afar einföld eins og „Dagur fyrir
sápukúlur“, en þar stendur ein
mannvera – táknuð sem „i“ – á striki
og upp frá henni þyrlast sápukúlur –
táknaðar sem gráðumerki „°“ og eitt
„o“ (stór sápukúla). Önnur ljóðanna
eru flóknar smíðar sem illgerlegt er
að lýsa.
Ljóðin eru samin á Silver Reed
EZ 21-ritvél. Fyrstu ljóð Óskars
Árna í þessari röð verka birtust árið
1997 í 25. hefti tímaritsins Bjartur
og frú Emilía, „sérrit án orða“, en
síðan hefur bæst í safnið, meðal ann-
ars í ljóðabók skáldsins, Blýengl-
inum (2015). Sýningin er á fimmtu
hæð menningarhúss Borg-
arbókasafnsins í Grófinni og stendur
til septemberloka.
Morgunblaðið/Einar Falur
Skáldið Hátíðarútgáfa myndljóða Óskars Árna Óskarssonar er komið út og
af því tilefni er sýning á þeim í Borgarbókasafninu í Grófinni.
Myndljóð eftir Óskar
Árna sýnd í bókasafni
3 pöraf sokkum
fylgjakeyptu pari
af barnaskóm
20%
afsláttur
af skólatöskum
KRINGLU OG SMÁRALIND
skóladagar