Morgunblaðið - 16.08.2017, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 228. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. „Ætlaði aldrei að eignast börn“
2. Ragnhildur ráðin til WOW air
3. Með áverka eftir átök mæðgna
4. Staðan sem fullnægir konum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dúettinn Anna og Sölvi heldur í
tónleikaferðalag í dag og er fyrsti
viðkomustaður Grundarfjarðarkirkja.
Anna og Sölvi halda þar tónleika kl.
12 og aðra í Stykkishólmskirkju kl.
20. Á morgun koma þau fram í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði kl. 20 og
næstu tónleikastaðir eru svo Mý-
vatnskirkja, Akureyrarkikja, Berg á
Dalvík, Eskifjarðarkirkja, Djúpivogur,
Hafnarkirkja í Höfn og loks Hann-
esarholt í Reykjavík 26. ágúst.
Anna og Sölvi eru frændsystkinin
Anna Gréta Sigurðardóttir og Sölvi
Kolbeinsson og leika þau frumsamda
tónlist og útsetningar sem þau hafa
unnið að síðustu mánuði, melódískan
djass undir þjóðlagaáhrifum þar sem
spuni er í fyrirrúmi. Þau hafa bæði
hlotið titilinn „bjartasta vonin“ á Ís-
lensku tónlistarverðlaununum. Anna
leikur á píanó og Sölvi á saxófón.
Ljósmynd/Hans Vera
Anna og Sölvi halda
í tónleikaferðalag
Dúettinn
Marína & Mika-
el, skipaður
söngkonunni
Marínu Ósk og
gítarleik-
aranum Mikael Mána, heldur upp á
útgáfu fyrstu plötu sinnar, Beint
heim, með tvennum tónleikum. Þeir
fyrri fara fram á Græna hattinum á
Akureyri í kvöld kl. 21 og þeir seinni
viku síðar, miðvikudaginn 23. ágúst, í
Græna herberginu í Reykjavík.
„Efniviðurinn á plötunni er tónlist-
in sem við spilum mest í dag; djass
og sönglög. Hins vegar leita útsetn-
ingarnar á lögunum í tónlistina sem
við ólumst upp við,“ segir Marína Ósk
um plötuna.
Marína og Mikael
halda útgáfutónleika
Á fimmtudag og föstudag Norðan og norðaustan 8-15 m/s.
Rigning með köflum á Norður- og Austurlandi, hiti 7 til 11 stig.
Bjartviðri sunnan heiða og hiti 12 til 18 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt 5-10 m/s og þykknar upp með
vætu norðaustantil, en hægari vindur sunnan heiða og síðdegis-
skúrir. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Suðurlandi.
VEÐUR
Mikil óvissa virðist ríkja um
stöðu Hólmars Arnar Eyj-
ólfssonar, landsliðsmanns í
knattspyrnu, hjá ísraelska
félaginu Maccabi Haifa.
Hólmar gekk í raðir félags-
ins undir lok síðasta árs og
skrifaði undir samning til
ársins 2021 en nú þegar ný
leiktíð er að hefjast er nafn
hans hvergi að finna á leik-
mannalistanum á heima-
síðu Maccabi Haifa, sem
mun vilja selja kappann. »1
Hólmar ekki á
heimasíðu liðsins
„Ég er mjög sátt við árið.
Mér hefur gengið von-
um framar með því að
komast inn á tvö risa-
mót: KPMG og Opna
breska. Það finnst
mér frábært en ég
set markið hátt og
enn eru nokkur
markmið sem ég á
eftir að ná. Mark-
mið allra á
mótaröðinni
er að komast
í Asíu-
sveifluna í
lok árs,“ segir
atvinnukylfing-
urinn Ólafía Þór-
unn Kristinsdóttir
meðal annars við
Morgunblaðið. »2
Hefur ekki náð öllum
markmiðum sínum
„Ég held að það megi segja að ykkur
Íslendingum hafi tekist að koma ykk-
ur á kortið með árangri í hinum ýmsu
íþróttagreinum. Til dæmis með ár-
angri karlalandsliðsins í knattspyrnu
í fyrra sem vakti gífurlega athygli. En
þjálfarinn var auðvitað Svíi,“ segir
margfaldur heims- og ólympíu-
meistari í alpagreinum, Pernille Wi-
berg, m.a. við Morgunblaðið. »3
Árangur í ýmsum
íþróttagreinum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Höfn í Hornafirði er byggðarlag sem á mikið
undir því að sjávarútvegurinn gangi vel. Greinin
er að því leytinu til lífæð samfélagsins og af því
sprettur nafn bókarinnar,“
segir Hjalti Þór Vignisson hjá
Skinney-Þinganesi hf. Á síð-
asta ári voru sjötíu ár frá því að
stofnað var til þess rekstrar
sem nú heitir Skinney-
Þinganes. Það er eitt af stærri
sjávarútvegsfyrirtækum lands-
ins, gerir út sjö skip og veitir
um 300 manns atvinnu til sjós
og lands.
Tugir ljósmynda úr fjöl-
þættri starfsemi fyrirtækisins, sem portúgalski
ljósmyndarinn Pepe Brix tók, eru í bókinni Líf-
æðin, sem Forlagið gefur út. Það var snemma á
síðasta ári sem ljósmyndarinn portúgalski birtist
austur á Hornafirði, en hann hefur lagt sig sér-
staklega eftir því að skrá og mynda þorskveiðar á
Norður-Atlantshafi. „Það var tilviljun að við
skyldum hitta þennan snilling,“ segir Hjalti Þór.
Heimild til framtíðar
„Brix var hjá okkur í um það bil mánuð og fór
fyrst á loðnu með einu skipa okkur, Ásgrími Hall-
dórssyni SF, og seinna í netatúra með minni bát-
unum. Þá fylgdist hann með vinnslunni og annarri
starfsemi og skyndilega var kominn stokkur um
2.000 mynda sem við sáum að væri fjársjóður. Af
því spratt sú hugmynd að minnast þess að 70 ár
væru liðin frá stofnun félagsins með útgáfu á bók,
sem væri skemmtileg, fróðleg og mikilvæg heim-
ild til framtíðar litið.“
Arnþóri Gunnarssyni sagnfræðingi, sem er frá
Höfn í Hornafirði, var falið að skrifa texta bókar-
innar – yfirlit á íslensku sem einnig er í enskri
þýðingu. Þar er reifað hvernig kaupin gerðust á
eyrinni og hvernig útgerðinni óx ásmegin. Starf-
semi frystihúss á vegum kaupfélagsins, hafnar-
bætur og tilkoma netaveiða hleyptu lífi í tusk-
urnar. Sjávarútvegurinn efldist svo enn frekar
þegar humarveiðar hófust í kringum 1960. Má í
bókinni meðal annars finna myndir úr humar-
vinnslunni, en ímynd Hafnar er mjög tengd humr-
inum. Í bænum eru meðal annars starfandi veit-
ingahús þar sem krabbafiskurinn sá er í öndvegi
hafður og þykir alveg herramannsmatur.
Sjávarútvegurinn sé sýnilegur
„Ferðaþjónustan hefur verið mjög vaxandi at-
vinnugrein á Hornafirði á undanförnum árum og í
atvinnulífinu hér um slóðir er hún orðin önnur
meginstoðin. Hin er sjávarútvegurinn, sem þarf
að vera sýnilegur, meðal annars ferðafólki sem vill
kynnast atvinnulífi og staðháttum. Okkur finnst
við því hafa slegið margar flugur í einu höggi með
útgáfu þessarar bókar, sem við erum ánægð
með,“ segir Hjalti Þór Vignisson.
Lífæðin í ljósmyndabók
Ljósmynd/Pepe Brix
Starfsemi Skinneyjar-Þinganess á Höfn í myndum Portúgalans Pepe Brix
Hjalti Þór
Vignisson