Morgunblaðið - 23.08.2017, Page 1

Morgunblaðið - 23.08.2017, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. Á G Ú S T 2 0 1 7 Stofnað 1913  201. tölublað  105. árgangur  LISTNÁMIÐ VAR LÁN Í ÓLÁNI RÓTBURSTUÐU FÆREYJAMEISTARA HRÆÐIST EKKI ERFIÐ VIÐFANGSEFNI STJARNAN Í MARKAHAM ÍÞRÓTTIR ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 30ÚR VIÐSKIPTUM Í LISTINA 12 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is „Það hefur hvergi gefist vel,“ segir Gylfi Arnbjörnsson um þá staðreynd að opinberir starfsmenn leiða launa- þróun á íslenskum vinnumarkaði. Þróunin á Íslandi er þvert á hið skandinavíska líkan á vinnumarkaði, sem miðast við að útflutningsgeirinn semji fyrst og með hliðsjón af sam- keppnisstöðu. Dæmi eru um að laun opinberra starfsmanna hafi hækkað um 34% frá mars 2014 til mars 2017. „Hagvöxtur og verðmætasköpun í samfélaginu ræðst af stöðu okkar í útflutningi og samkeppnisstöðu okk- ar á erlendum mörkuðum. Þess vegna verða aðstæður í þeim grein- um sem eru í samkeppni við útlönd að fá að móta svigrúmið,“ segir Gylfi. „Nú er mál að linni“ Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að ef launahækk- anir séu umfram framleiðniaukn- ingu hagkerfisins leiði það til verðbólgu. „Við erum nú við eða á toppi hagsveiflunnar og svigrúm launahækkana er ekki umfram það sem þegar hefur verið samið um,“ segir Halldór. Spurður um komandi kjarasamningsviðræður ríkisins við stéttarfélög í haust segir Halldór að „samningamenn hins opinbera þurfi að standa í lappirnar og nú sé mál að linni“. „Hefur hvergi gefist vel“  Slæm þróun að opinberir starfsmenn leiði launahækkanir  Öfug þróun við Skandinavíu  Launahækkanir umfram framleiðslu hagkerfisins valda verðbólgu MFráleit staða ... »4 Lausir kjarasamningar fram undan » 37 kjarasamningar lausir í haust » Þar af losna 29 kjarasamn- ingar 31. ágúst » M.a. við Skurðlæknafélag Ís- lands, Félag framhaldsskóla- kennara og Félag grunnskóla- kennara Mikil fjölgun hefur orðið á ferða- mönnum sem sækja í náttúrulaug- arnar í Reykjadal upp af Hvera- gerði. Nú koma árlega um 120 þúsund gestir í dalinn en voru átta þúsund árið 2010. Fjölgunin á þessu tímabili er fimmtánföld. Að mati Sigurðar Ósmann Jóns- sonar, skipulags- og byggingafull- trúa sveitarfélagsins Ölfuss, er svæðið komið að algjörum þolmörk- um. Brýnt sé að komið verði upp landvörslu á staðnum til þess að bregðast við þessari miklu og skyndilegu fjölgun ferðamanna. Undir það tekur Guðríður Helga- dóttir, forstöðukona Landbún- aðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi. Mikil uppbygging hefur verið á svæðinu frá árinu 2012, m.a. var ráð- ist í gerð göngustíga en Guðríður segir það ekki hafa dugað þar sem fólk noti þá ekki. Þá sé einnig mikið um sóðaskap. „Fólk skilur hér eftir blaut hand- klæði og sundföt og það lendir á okk- ur að þrífa það. Fólk er einnig að grilla í grasinu og skilja eftir drykkjarföng og annað slíkt,“ segir Sigurður Ósmann. »4 Fimmtán- falt fleiri gestir Morgunblaðið/RAX Reykjadalur Ferðamenn, einkum erlendir, eru þarna tíðir gestir.  Þörf fyrir land- vörslu í Reykjadal  Guðmundar- og Geirfinns- málið er form- lega komið til meðferðar hjá Hæstarétti enn á ný. Tilkynn- ing um það birtist á vef réttarins í gær- morgun. Ekkert liggur hins veg- ar fyrir um það hvenær endur- upptakan kemst á dagskrána að því er Þorsteinn M. Jónsson skrifstofustjóri tjáði Morgun- blaðinu. Málsgögn hafa ekki bor- ist og ekki er vitað hvenær þau berast. »6 Geirfinnsmálið kom- ið til Hæstaréttar  Boðuð lækkun á afurðaverði fyrir dilkakjöt í haust um allt að 35%, til viðbótar við tíundarlækkun í fyrra, er váboði fyrir bændur víða um landið. Váin er mikil á Ströndum þar sem sauðfjárbúskapur er und- irstaða og að fáu öðru er að hverfa. Torfi Halldórsson, bóndi á Broddadalsá í Strandasýslu, segir við blaðamann Morgunblaðsins að sauðfjárbændur, sem eru skuld- lausir og reki hóflega stór bú, geti þraukuð í nokkur ár þrátt fyrir að afurðaverðið lækki gríðarlega. „En í fyllingu tímans fara allir í þrot og fyrst ungt fólk, sem er að byrja í bú- skap og hefur steypt sér í miklar skuldir,“ segir Torfi að auki. Orsök vanda sauðfjárbænda ligg- ur m.a. í því að sala á dilkakjöti hef- ur dregist mikið saman á síðustu árum í eftirgjöf fyrir framleiðslu kjúklingaframleiðenda o.fl. »18 Boðuð lækkun á afurðaverði fyrir dilkakjöt er váboði fyrir bændur víðsvegar um land Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vandi Lagt hefur verið til að fækka sauðfé á landinu um 20%.  Annar dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Thomasi Møller Fredrik Olsen var í gær. Tuttugu vitni gáfu vitnisburði fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Þinghöld stóðu yfir frá morgni og fram á miðjan dag, en Thomas er ákærður fyrir að hafa myrt Birnu Brjáns- dóttur. Dómþingi var í gær frestað til 1. september og telur dómari að sá dagur verði sá síðasti í aðal- meðferðinni. Ragnar Jónsson, rannsóknarlög- reglumaður hjá tæknideild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði fyrir dómi í gær að hann teldi úti- lokað að Nikolaj Olsen, skipverji á Polar Nanoq, væri gerandi í mál- inu. Ákærði breytti framburði sín- um fyrir dómi á mánudag og sagði hann Nikolaj hafa verið einan með Birnu. »14 Rannsóknarlögreglumaður telur útilokað að Nikolaj sé viðriðinn bana Birnu Morgunblaðið/Eggert Þinghöld Nukaaraq Larsen, einn skipverja Polar Nanoq, bar vitni í málinu í gær. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur undanfarna daga heimsótt skóla og vinnustaði og mátað hljóm sinn í nýjum aðstæðum. Í gær fengu starfs- menn álvers Rio Tinto Alcan í Straumsvík að njóta fagurra tóna hljómsveitarinnar og í fyrra- dag lék hljómsveitin í Háskólanum í Reykjavík. Verkin sem leikin hafa verið eru m.a. Ungversk- ur dans eftir Brahms, Can-Can og titillag kvik- myndarinnar Pirates of the Caribbean. Sinfóníuhljómsveit Íslands á ferð og flugi Morgunblaðið/Eggert Léttir tónar ómuðu um álverið í Straumsvík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.