Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 20
20 23. febrúar 2018fréttir Family Living - The True Story: Hópurinn sem er að slá í gegn á Facebook F lest okkar sem reka heim- ili vita út á hvað það gengur: seinnipartinn þegar allir koma heim úr vinnu, skóla og íþrótt- um er allt á hvolfi. Lærdómur, matseld, frágangur, þvottur, leiktími, bað- og hátta- tími ef ung börn eru á heimilinu og fleira hertekur tímann frá um klukkan 17–20. Eftir það leggjast for- eldrarnir oft örmagna í sófann, kveikja á Net- flix og reyna að horfa framhjá hrúgu af ósam- anbrotnum þvotti, leikföngum um allt stofugólf og ógreiddum reikningum. Mjög fá heimili eru tilbúin fyrir Instagram og myndatökur fyrir Hús og hýbýli á hverjum degi, þótt þau geti verið það á góðum degi. Það er gaman að skoða mynd- ir af fallegum og stíl- hreinum heimilum, en á sama tíma dæsir mað- ur oft og skilur ekkert í af hverju manns eigið heimili lítur ekki þannig út alla daga, eða jafnvel bara einn dag á ári. Hópurinn Family Living-The True Story-ICELAND á Facebook sýnir venjuleg íslensk heimili og eru meðlimir hvattir til að deila myndum og myndböndum af eðlilegu heimilisdrasli. „Hópurinn er gerður að sænskri fyrirmynd, en ég kynnist þessum sænska hópi, sem í eru yfir 70 þúsund meðlimir, fyrir nokkrum árum og fannst ekki vanþörf á því að hafa sambærilegan hóp hér á landi,“ segir Elín Oddný Sigurðar- dóttir sem stofnaði hópinn fyr- ir tveimur árum þegar hún stóð í flutningum og allt var á hvolfi. „Ég ákvað að kýla á það, setja inn myndir og stofna hópinn. Þetta er aðallega húmor og til að hafa gaman af. Venjuleg heimili eru stundum með drasli og það er „Varðandi þvott – henda í vél, taka út, hengja upp, brjóta saman, ganga frá, henda í vél, taka út. Hvers vegna í ósköpunum er ekki hannað fataherbergi við hliðina á þvottahúsinu, svo hægt sé að hengja beint upp eftir þurrk? Í staðinn þarf að burðast með þvottinn í hvert herbergi á fætur öðru og setja í skúffur og á herðatré. Og hvers vegna í ósköpunum er sturtan/baðið ekki þarna nálægt, svo hægt sé að sturta óhreinu fötunum beint í körfurnar og sækja hrein föt í fataherbergið? Ætli arkitektar sjái yfirleitt ekki um þvottinn?“ Kvöldmatur við kertaljós „Það var sko kvöldmatur við kertaljós á þessu heimili í kvöld!“ Auður Alfífa Ketilsdóttir. Matt McKenna er að græja kvöldmatinn. Takið eftir skápa- höldunum. Forsíðumynd? „Hvað segið þið, fæ ég ekki að hafa þessa á forsíðu Húsa og híbýla?“ spyr Nanna, eigandi þessarar notalegu og heimilis- legu stofu. Jólin, jólin alls staðar „Óður til liðinna jóla. Er ekki að tíma að henda þessu, finnst svo gasalega lekkert að hafa svona skraufþurrt og fölt greni. Er líka að velta fyrir mér hvort þetta virki ekki líka sem páskaskraut og svo sumarskraut. Hvað finnst ykkur?“ Sannar sögur án glansmyndar bara allt í lagi.“ Tilgangur hópsins er að sýna hvernig oft getur litið út inni á raunverulegum heimilum fólks, helst þegar allt er í drasli, til að sýna að ekki er allt jafn fullkomið og í heimi tímarita og sjónvarps- þátta. Í hópnum geta öll heimili tekið þátt þó með þeim skilyrðum að þar sé stundum drasl. „Við þurfum að vera reiðubúin að sýna þá hlið heimilisins sem sjaldan er til sýnis opinberlega. Þetta er alls ekkert draslarahópur heldur meira til að sýna þessar raunverulegu hliðar á öllum heim- ilum,“ segir Elín Oddný. Það er því alger óþarfi að vera eitthvað að pirra sig á draslinu heima, heldur ganga frekar í hóp- inn og sjá að næstum öll heimili eru eins og manns eigið og hafa húmor fyrir því að oft er allt á hvolfi. n Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Stofnandi grúppunnar Elín Oddný Sigurðardóttir stofnaði grúppuna þegar hún var sjálf að flytja og allt var á hvolfi hjá henni. Kötturinn með „Hönnunarlausn fyrir pappírsrusl. Bætið við ketti og allir eru sáttir.“ – Bára Halldórsdóttir. Jól alla daga „Get ég ekki bara breytt þessu í páskaskraut?“ spyr Katrín Eva Erlarsdóttir. Vel nýtt borðstofuborð „Ef ég finn borðstofuborðið í náinni framtíð held ég kannski matarboð,“ segir eigandi þessa borð- stofuborðs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.