Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 58
58 lífsstíll - bleikt 23. febrúar 2018
Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans í Reykjavík, deilir átta góðum húsráðum
sem allir ættu að þekkja.
Allt gróft mjöl á að geyma í lokuðum ílátum því annars getur kviknað líf í því. Einnig ágætt að frysta.
Það á alltaf að hafa opinn glugga einhvers staðar í íbúðinni svo ekki myndist raki inn í henni. Passa að lofta vel
út eftir baðferð eða sturtu. Einnig þarf að láta lofta undir rúllugardínur svo ekki myndist raki á gleri og hafa rifu
á glugga.
Allar borðtuskur og diskaþurrkur þarf að sjóða. Súr lykt af tuskum myndast af því að þær eru óhreinar.
Aldrei á að bera tekkolíu á lakkaðan við. Á lakkaðan við fer húsgagnaáburður sem borinn er á húsgögnin og
þurrkað vel yfir á eftir. Varist að hann fari ekki á gólfið því þá myndast mikil hálka.
Hrísgrjón á að sjóða á lágum hita og ekki í opnum potti. Setja á 1 hluta grjón á móti 2 hlutum af vatni ásamt
örlitlu salti. Þegar suðan kemur upp á að lækka og leyfa þeim að vera í 18 mínútur, ekki hræra í
þeim. Vatnið á ekki að gufa upp heldur eiga grjónin að draga það í sig. Þá brenna þau ekki við,
eru laus og ekki klesst.
Í tíðarfari eins og núna fara leðurskór illa. Strjúkið af þeim með rökum klút, gott er að setja
dagblöð inn í blauta skó á meðan þeir þorna. Bera síðan skóáburð á þá og bursta vel
yfir, að endingu á að setja vatnsvörn.
Nota skal edik og vatn til þess að þrífa spegla, en klúturinn verður að vera alveg
hreinn. Það má alls ekki hafa farið mýkingarefni í hann. 1 hluti edik og 8 hlutar vatn.
Hafið ávallt sápuhólfið og þvottavélina opna þegar ekki er verið að nota vélina.
Takið sápuhólfið út af og til og burstið og þvoið vel ásamt hurð og gúmmíhring
að innan. Þvoið suðuþvott allavega einu sinni í viku til þess að vélin sé hrein og
lyktarlaus að innan. Notið mýkingarefni sem sjaldnast og ekki í æfingagalla. Bómull
þolir þvott á 60–90°.
Heimagerður leir
fyrir yngstu börnin
Sunna Rós, bloggari á lady.
is, deilir ótrúlega einfaldri
uppskrift að heimagerðum
leir sem má borða og er því
einstaklega hentugur fyrir
yngstu börnin.
Uppskrift
n 6 sykurpúðar
n 3 msk. maíssterkja
n 2 tsk. kókosolía
n 1 tsk. matarlitur
Setjið öll hráefnin saman í skál,
nema matarlitinn. Hitið í örbylgju-
ofni í rúmlega 15 sekúndur. Bætið
matarlit við og hnoðið allt saman,
gott er að vera í hönskum. Ef deigið
er klístrað má bæta við örlítilli
maíssterkju.
Heimagerður leir Góður fyrir yngstu börnin.
K
atrín Rut Jóhannsdóttir er
27 ára þriggja barna móðir
úr Hafnarfirði. Foreldrar
hennar fóru hvort sína
leiðina þegar Katrín var einungis
átta ára gömul. Við tók erfiður
tími, heimilisaðstæður voru ekki
upp á það besta og þá glímdi faðir
hennar við áfengissýki sem hafði
djúpstæð áhrif á hans nánustu.
„Þá breyttist líf mitt mikið, pabbi
fór að drekka illa og ég upplifði
margt sem ekkert barn á að þurfa
að ganga í gegnum,“ segir Katrín í
samtali við DV. „Mamma var mik-
ið ein með okkur systkinin og stóð
hún sig vel í móðurhlutverkinu.
Ég var alltaf í sambandi við pabba
þótt hann hafi farið miklar kross-
götur í lífinu,“ segir Katrín. Nýlega
greindist Katrín með sjálfsofnæm-
issjúkdóm sem hefur gert að verk-
um að hún hefur misst allt hárið.
Er sjúkdómurinn rakinn til mik-
illa áfalla sem Katrín hefur geng-
ið í gegnum.
Misnotaði áfengi
Faðir Katrínar var eins og áður
segir mikill drykkjumaður og
veikur af alkóhólisma. Sjúk-
dómurinn tók mikið á Katrínu
en hún bældi niður tilfinningar
sínar. Katrín misnotaði svo sjálf
áfengi en telur að það hafi hún
gert til að bæla niður hinar erf-
iðu tilfinningar frá æsku. Þá
notaði hún einnig áfengi til að
komast í gegnum daginn.
„Ég hef gengið í gegnum
margt á þessum tuttugu og sjö
árum sem ég hef lifað. Þessi
lífsreynsla hefur kennt mér að
vera sterk og standa með sjálfri
mér,“ segir Katrín.
Hélt hún myndi ekki lifa þetta af
Þann 21. apríl í fyrra fékk Katrín
skelfilegar fréttir. Faðir hennar var
látinn. Hann hafði framið sjálfsmorð.
Höggið var gríðarlegt. Sársaukinn
ólýsanlegur. Myrkrið helltist yfir.
„Þetta var mjög erfitt tímabil
og tók svo sannarlega á. Ég hélt
hreinlega að ég myndi ekki lifa
þetta af. En með góðum styrk
og stuðningi komst ég í gegnum
þennan dimma dal og var það
sérstaklega ein vinkona mín, að
nafni Ágústa, sem var mín stoð
og stytta í gegnum þennan erfiða
tíma.“
Katrín fór að taka eftir því í
haust að hár hennar byrjaði að
þynnast og gerðist það hratt. Áður
en hún vissi af höfðu skallablettir
myndast á höfði hennar.
„Mér leist ekkert á blikuna og
fór ég í ýmsar blóðprufur. Rann-
sóknir leiddu í ljós að ég er með
sjálfsofnæmi vegna áfallsins sem
ég fékk þegar pabbi minn svipti sig
lífi. Þessi veikindi hafa haft mikil
áhrif á mig, bæði andlega og líkam-
lega. Ég veit að ég mun ná mér með
tímanum. Ég er að byggja mig upp
hjá starfsendurhæfingu Hafnar-
fjarðar og líður ágætlega í dag.“
Ekki víst að hárið komi aftur
Sjálfsofnæmissjúkdómurinn sem
Katrín þjáist af lýsir sér á þann hátt
að hún er mikið næmari fyrir öll-
um veikindum. Þá er hún reglu-
lega mjög þreytt og orkulítil. Einnig
sefur hún illa og finnur fyrir miklu
máttleysi í höndum og fótum.
„Ég fékk líka skallabletti þegar
ég var yngri, fyrst þegar foreldrar
mínir skildu og svo kom þetta
aftur upp á unglingsárunum. Þá
voru þetta litlir blettir og hárið
kom fljótt aftur. Í þessu tilfelli telur
læknirinn líkur á að þetta geti lag-
ast, það er þó ekki víst. Það verð-
ur að koma í ljós með tímanum.“ n
Katrín missti hárið eftir að
pabbi hennar framdi sjálfsvíg
n Erfiðar aðstæður eftir skilnað n Stendur sterk eftir erfiða lífsreynslu n Bjart framundan
Með
foreldrum
sínum
Katrín var
náin báðum
foreldrum
sínum.
Katrín Rut Jóhannsdóttir
Hefur misst allt hárið.
Börn
Katrínar
Kári Steinn,
Kristófer
Snær og
Karítas Sól.
„Ég hélt
hreinlega
að ég myndi ekki
lifa þetta af
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is
Átta ómetanleg húsráð
Margrét Sigfúsdóttir