Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 2
2 23. febrúar 2018fréttir
Á þessum degi …
532 – Justinianus I, keisari Aust
rómverska keisaradæmisins, fyrirskipar
smíði nýrrar basilíku í Konstantínóbel,
nú Istambúl, fyrir ortódox kirkjuna.
Basilíkan er nú þekkt undir heitinu Hagia
Sofia (Kirkja heilagrar visku) og gjarna
nefnd Ægisif á íslensku.
1836 – Orrustan um Alamo, í San
Antonio í Texasfylki, hefst í kjölfar
þrettán daga umsáturs. Orrustan stóð til
6. mars og þar bárust á banaspjót Texas
búar, sem vildu sjálfstæði frá Mexíkó, og
Mexíkóar og höfðu þeir síðarnefndu betur.
Texasbúar og ævintýragjarnir Bandaríkja
menn létu til skarar skríða í apríl sama ár
og þá þurftu Mexíkóar að játa sig sigraða.
1887 – Öflugur jarðskjálfti ríður yfir
frönsku Rivíeruna og kostar um 2.000
manns lífið.
1898 – Franski rithöfundurinn Émile
Zola er sakfelldur fyrir opið bréf sem
birst hafði einum og hálfum mánuði
fyrr í dagblaðinu L'Aurore. Bréfið bar
yfirskriftina J'accuse (Ég ákæri) og í
því sakaði Zola ríkisstjórn landsins um
antisemitisma og að hafa fangelsað
Richard Dreyfus höfuðsmann saklausan.
Zola flúði til Englands og sat aldrei í prís
und vegna málsins.
1942 – Japanskir kafbátar láta stór
skótahríð dynja á strandlengju nærri Santa
Barbara í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
1974 – Byltingarsamtökin SLA
(Symbionese Liberation Army) krefst
fjögurra milljóna Bandaríkjadala í
lausnarfé fyrir Patty Hearst. Fyrir höfðu
samtökun krafist matargjafa til allra
þurfandi í Kaliforníu. Hearst hallaðist
síðar á sveif með mannræningjum sínum
og tók þátt í ýmsum óhæfuverkum. Hún
var handtekin 18. september 1975 og fékk
35 ára dóm. Þáverandi forseti Bandaríkj
anna, Jimmy Carter, sá aumur á henni og
henni var sleppt úr fangelsi árið 1979.
Ekki hrifinn af
holu-hjálmari
S
amgöngu- og skipulagsmál
verða í brennidepli í borgar-
stjórnarkosningunum í
Reykjavík í vor. Hjálmar
Sveinsson er borgarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar og formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykja-
víkur. Blaðamaður DV fékk hann
til að fara með sér í strætó upp í
Grafarvog.
„Ég tek reyndar ekki oft strætó,
ég hjóla mjög mikið og svo á ég
einkabíl. Það er mikill misskiln-
ingur að ég eða meirihlutinn í
borginni sé alfarið á móti því að
fólk keyri, það sem við viljum er
að gera almenningssamgöngur að
raunhæfum valkosti þannig að fólk
sé ekki nauðbeygt til að eiga bíl ef
það býr í Reykjavík. Í dag
eru það 72% sem nota
einkabíl til að kom-
ast á milli staða,
við viljum færa
það niður í 58%
og létta þannig á
umferðinni,“ segir Hjálmar á
strætóstoppistöðinni fyrir utan
Ráðhús Reykjavíkur. Við tökum
leið 6 upp í Spöngina í Grafarvogi
og þaðan til baka niður í bæ.
Fargjaldið er 460 krónur, blaða-
maður verður sér úti um smá-
forrit Strætó en Hjálmar borgar
með klinki. Hjálmar er umdeild-
ur meðal borgarbúa, hefur hann
meðal annars verið kallaður Holu-
Hjálmar, viðurnefni sem hann not-
aði sjálfur í prófkjörsslag Samfylk-
ingarinnar fyrr á þessu ári. Honum
er ekki skemmt þegar hann er
spurður um viðurnefnið. „Mér
finnst viðurnefni ekkert skemmti-
leg yfirleitt, en ég nýtti mér það
til að benda á að núna eru mestu
malbikunarframkvæmdir í sögu
borgarinnar og nú er verið að fylla
í allar holurnar.“
Leið 6 keyrir austur á
Miklubraut í átt frá
miðbænum. „Það
er ekki háanna-
tími núna, ég var
að keyra þessa
leið á föstu-
daginn milli
klukkan 16 og 17
í seigfljótandi
umferð. Þá var
fullum strætis-
vagni ekið á for-
gangsrein fram úr allri bílaröðinni,
það er einföld og ódýr ráðstöfun.“
Er það borgarlína, að strætó sé
þá alltaf á eigin akrein?
„Það má segja það, þá verða
þeir alltaf á eigin akrein, svona lest
á gúmmídekkjum. Stoppistöðv-
arnar á borgarlínu munu svo líta
út eins og lestarpallar, gott skjól
og þú gengur beint inn í vagninn,
búinn að borga með appi. Þá mun
allt ganga hratt fyrir sig. Þetta er
mikið notað í borgum í Evrópu og
Bandaríkjunum.“
Hvað gerist ef hætt verður við
borgarlínu?
„Þá verður algjört kaos.“
„Borgin er vel rekin“
Hjálmar vísar því alfarið á bug að
það sé óráðsía í fjármálum borg-
arinnar. „Borgin er vel rekin.
Stór hluti af skuldum borgarinn-
ar er framreiknaðar lífeyrisskuld-
bindingar, ef það væri gert hjá rík-
inu þá teldust skuldir ríkisins vera
um þúsund milljarðar. Eiginlegar
skuldir borgarinnar eru um 35
milljarðar á sama tíma og veltan er
um 100 milljarðar á ári. Það teldist
gott hjá mörgum fyrirtækjum.“
Hvað með mann-
réttindaráð, lántökur og gæluver-
kefni?
„Ég myndi ekki kalla mann-
réttindi gæluverkefni, en þetta eru
bara smáaurar miðað við stóru
tölurnar. Það myndi engu breyta
um fjárhagsstöðu borgarinn-
ar hvort þetta yrði lagt niður eða
ekki. Langstærsti útgjaldaliður-
inn fer til skóla- og velferðarmála
eða tæplega 70%. Restin fer í fjár-
festingu í innviðum, íþróttaað-
stöðu og menningarmál. Það má
alltaf gagnrýna lántökur, en þetta
eru lán á hagstæðum kjörum sem
við þurfum til fjárfestinga í þágu
borgarbúa. Eitt dæmi um það
uppbygging Dalskóla í Úlfarsár-
hverfi, þar kemur líka menningar-
miðstöð, sundlaug, bókasafn og
auðvitað íþróttaaðstaða á svæðið.
Þetta eru nauðsynlegar fram-
kvæmdir sem kosta allt að 15 millj-
örðum.“
Leið 6 er á leiðinni yfir Gullin-
brú og inn í Grafarvog.
Hér er ekki blönduð byggð.
„Nei, þetta er tiltölulega hrein
íbúðabyggð og örugglega frábært
að búa hérna, en stefnan í dag er
að hafa hverfin blönduð. Það er til
þess að þjónusta haldist í hverfun-
um, fólk getur þá jafnvel sótt vinnu
í eigin hverfi og það eykur líkurn-
ar á að kaupmaðurinn á horninu
dafni. Það er langt síðan menn
komu auga á gallana við að skipta
borginni í hreina íbúðabyggð og
atvinnusvæði. Það er betra að hafa
þetta eins og í gömlu borgunum;
að hafa byggðina blandaða.“ n
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
n hjálmar Sveinsson í strætó með DV n kaos ef hætt verður við Borgarlínu„Ég myndi
ekki kalla
mannréttindi
gæluverkefni.
hlutir sem alþingismenn ættu að fá frítt
Þingmenn fá greiddan
aksturskostnað,
húsnæðiskostnað,
síma, tölvu, blóm og
flug. Í dag er greint frá
því að þingmenn fái
hótelgistingu og fæði
og jafnvel vínglas þegar
vel liggur á þeim frá
skattgreiðendum. DV
ákvað að taka saman
fimm hluti sem þingmenn
ættu að fá frítt.
Vikuleg pítsuveisla
Þingmenn ættu að fá vikulega
pítsuveislu frá Gömlu smiðjunni
í Lækjargötu og ársbirgðir af Ís
cola til að skola pítsunum niður.
fótanuddtæki Allir þingmenn ættu að
fá danska fótanuddtækið Clairol Foot Spa
sem er til sölu í Radíóbúðinni í Reykjavík á
aðeins 2.600 krónur.
Gjafakort í
miklagarð
Allir þingmenn
ættu að fá
gjafakort með
inneign að
allt að fimm
hundruð
þúsundum í
Miklagarði,
stærstu versl
un landsins.
Þar er Lögurinn á
kostakjörum og
fiskborðið er alltaf
vinsælt. Við bend
um þingmönnum
á að gleyma ekki
að kippa með sér
Frískamín.
Skór frá Sævari karli Fyrst þingmenn
fá borgað fyrir að keyra þá hljóta þeir að fá
borgað fyrir að ganga, það segir sig sjálft.
Þingmenn sem ganga meira en
15 þúsund kílómetra á ári yrðu
svo skyldaðir til að taka skó á
leigu.
frítt flug í fríinu Þingmenn
fá að vísu frítt flug innanlands
og líka erlendis ef þeir eru að
ferðast vegna þingstarfa. Það er
samt sem áður nauðsynlegt að fá
einnig frítt flug til að ferðast í frístundum.
Það væri því við hæfi að þingmenn fengju
gjafabréf aðra leið út í heim með Arnarflugi.
Lof & Last
- Jón Þór Ólafsson
Ég lofa Svandísi Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra þegar kemur
að nálgun hennar á heilbrigðis
málin og að ráða fyrrverandi
landlækni til að aðstoða sig
í þeirri vegferð að endur
reisa heilbrigðiskerfið. Ég
ber mikið traust til hennar.
Lastið fær Agnes M. Sigurðar
dóttir, biskup Íslands, fyrir skort á
auðmýkt við að viðurkenna
mistök þegar hún lætur
eitthvað frá sér sem hefði
betur verið sagt öðruvísi.