Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 60
60 lífsstíll - kynlíf 23. febrúar 2018 Lífið eftir sambandsslit Samtöl ykkar einlægrar við fólk með reynslu í aðdraganda þessara skrifa hafa verið athyglisverð. Það er að minnsta kosti víst að skoðanir á því hvað sé best að gera eftir sambandsslit eru margar og mismunandi: n „Ég þarf bara tíma til að finna mig sem einstakling. Finna að ég get verið ein en þurfi ekki endilega að vera hluti af heild í ástarsambandi. Þegar ég er komin í gott jafnvægi verð ég miklu skemmtilegri kærasta.“ – Kona 45 ára, 10 ár í fyrra sambandi, ein í 3 ár n „Ég vil bara ekki vera ein. Lífið er svo miklu skemmtilegra ef maður hefur einhvern til að deila með gleði og sorg.“ – Kona 48 ára, 23 ár í fyrra sambandi, 13 mánuði í núverandi sambandi n „Það er að minnsta kosti öruggt mál að ég er ekki á leiðinni í hefðbundið samband á næstunni.“ – Karlmaður 44 ára, 2 ár í síðasta sambandi, einn í 18 mánuði n „Eftir minn skilnað var ég alls ekki í stuði fyrir karlmenn eða rómantík. Ég beið í heila 9 mánuði eftir að fara í fyrsta sleikinn. Skömmu síðar svaf ég hjá manni og eftir það hefur allt gengið vel í þeim efnum. Ég hugsa að ég fari í samband aftur en er ekki að flýta mér.“ – Kona 46 ára, 14 ár í fyrra sambandi, ein í 4 ár n „Ég þoli ekki að vera einn. Það er engin rútína, engin hugguleg stund yfir kvöld- matnum, og ég kveiki varla á kertum. Mig langar í konu.“ – Karlmaður 42 ára, 8 ár í fyrra sambandi, einn í 5 mánuði n „Mig langar að gera þetta vel núna. Ég lærði svo margt og ætla ekki að gera sömu mistökin. Ég held að það sé góð hugmynd að vera einn í einhvern tíma, en konur eru bara svo ákveðnar. Kannski verð ég kominn í samband í næstu viku.“ – Karlmaður 55 ára, 28 ár í fyrra sambandi, einn í 7 mánuði Álagið gekk af ástinni dauðri n Kynlífsleysi í samböndum n Nýtt upphaf á miðjum aldri S kilnaður og sambandsslit er nokkuð sem flest okkar ganga í gegnum. Viðbrögð fólks eft­ ir að sambandi lýkur eru ólík. Sumir kasta sér baðandi öllum öng­ um beint ofan á kjötfjall kjötmark­ aðarins (afsakið orðalagið), á meðan aðrir þurfa einveru til að sleikja sárin og jafna sig. Ólöf ríður til að gleyma, á meðan Einar kýs einveru, Netflix og platónsk stefnumót með vinum. Reyndar sýnist mér hitt algengara, að karlar kjósi að elta óminnishegr­ ann með sem allra mestu kynlífi á meðan konur velji frekar ró­ lyndistíma í kjölfar sambandsslita. Hulda hefur nýlega rofið sjö ára skírlífistímabil sem hófst þegar hún var ennþá gift. Hún leyfði mér góðfúslega að birta spjall okkar, en kýs nafnleynd og við köllum hana Huldu. Hulda byrjar á að segja mér frá hjónabandinu sem gekk illa. „Veik­ indi, peningaleysi og þrjú ung börn voru of mikið álag og ástin dó. Kynlífið fór sömu leið. Eigin­ lega á undan ástinni. Við reynd­ um að púkka upp á kynlífið með rómantískum ferðum, en neist­ inn var horfinn. Eftir skilnað hafði ég lengi engan áhuga á að fara í annað samband. Þar með hafði ég ekki mikinn áhuga á kynlífi heldur, þar sem ég var stödd hræddist ég að verða ástfangin, ef einhver yrði sætur og góður við mig, svo ég gaf engan séns á mér.“ Hulda segir að kynþörfin hafi í sjálfu sér ekki minnkað á skír­ lífistímanum, hún hafði bara engan áhuga á kynlífi með eigin­ manninum. „Mér leið bara vel og átti mínar unaðsstundir í einrúmi. Ég notaði vissa krassandi bókar­ kafla, kvikmyndir og ljósmyndir til að hressa upp á ímyndunaraflið, en ég hef aldrei haft mikinn áhuga á klámi. Það er eitthvað fráhrind­ andi við það. Ég keypti mér held­ ur engin ástarleikföng, fannst ég aldrei þurfa þess.“ Eftir skilnaðinn varð tilhugs­ unin um samband aftur bærileg. „Þá fór ég að horfa meira í kring­ um mig og hugsa að það yrði nú næs að kúra hjá hinum eða þess­ um myndarlega manninum sem ég rakst á. En þá kom líka upp kvíði. Í fyrsta lagi útlitið; að ég væri alltof feit með minn hangandi mömmumaga og appelsínuhúð. En meiri áhyggjur hafði ég af því að vera léleg í rúminu. Það væri svo langt síðan ég hefði stund­ að skapandi og skemmtilegt kyn­ líf með öðrum einstaklingi að ég myndi bara hreinlega ekki vita hvað ég ætti að gera.“ Hulda segist hljóta að hafa tekið í það minnsta ómeðvitaða ákvörðun um að skella sér aftur á bak. „Líklega hef ég opnað fyrir eitthvað í kynveruárunni minni, því það mætti hress knapi á svæð­ ið og það hefur verið mjög gaman hjá okkur síðan. Samband er ekki á dagskrá og í raun hentar það mér mjög vel, eins og er.“ Það kom henni skemmtilega á óvart að það var nákvæmlega ekk­ ert mál að byrja aftur að stunda kynlíf með öðrum einstaklingi. „Að stunda kynlíf er bara eins og að læra að hjóla; ef maður hef­ ur náð tökum á því einu sinni, er tæknin ávallt til staðar. Og hvort sem það er ástmanninum já­ kvæða að þakka eða ekki, þá gæti mér ekki verið meira sama um lík­ amsvöxtinn. Ef fólki finnst gott að vera saman, kemur hann hrein­ lega málinu ekki við. Þannig að áhyggjurnar sem ég hafði reynd­ ust algjörlega óþarfar.“ Það er ánægjulegt að heyra Huldu tala um endurfæðingu sína sem kynveru. „Mér finnst sjálfstraustið meira en fyrir sjö árum og það held ég að sé sam­ bland af þroska, jákvæðri kynlífs­ upplifun og kæruleysi; að nenna ekki að pæla of mikið í hlutunum. Og þegar sjálfstraustið er í lagi, þá slakar maður betur á, nýtur þess að vera kynvera og maður fær auðveldar fullnægingu. Ég hef líka uppgötvað óvænta og ánægju­ lega hlið á sjálfri mér, og það er að mér þykir konur kynferðislega að­ laðandi líka, og fengið tækifæri til þess að sanna þá kenningu mína að þær eru betri kyssarar en karl­ menn,“ segir hún og hlær. „Þannig að ég sé fram á mjög hresst og fjöl­ breytt kynlíf næstu árin og hlakka bara til.“ n Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi hjá Áfalla- og s álfræðimiðstöðinni, Hamraborg 11. raggaeiriks@asm.is Ragnheiður Eiríksdóttir skrifar pílukast er fyrir alla! Síðumúla 35 (gengið inn að aftan) - Sími 568 3920 & 897 1715
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.