Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 46
46 23. febrúar 2018
8 fangaverðir og fimm fangar lágu í valnum í kjölfar uppþots í ríkisfang-elsi Colorado í Canon City í Bandaríkjunum í október 1929. Forsprakki fanganna, Danny Daniels, hótaði að myrða fangaverðina ef honum og
fjórum félögum hans yrði ekki sleppt lausum. Ekki var gengið að kröfum hans
og hann stóð við orð sín og banaði einnig fjórum félögum sínum og framdi að
lokum sjálfsvíg.Sakamál
A
ð morgni sunnudagsins
13. nóvember, 1938, bank-
aði frú Rowland Barrett
upp á hjá vinkonu sinni,
Annie Wiseman, við Salisbury-
stræti í Glenroy í Melbourne í
Ástralíu. Hugðist frú Barrett, eins
og oft áður, verða Wiseman og 17
ára frænku hennar, Phyllis, sam-
ferða til messu.
Barrett brá í brún
Enginn kom til dyra og það fannst
Barrett undarlegt. Vegna þess að
Barrett og Wiseman voru góðar
vinkonur hafði sú fyrrnefnda lykil
að heimili Wiseman í fórum sín-
um. Hún hleypti sjálfri sér inn og
leist ekki á blikuna því heimilinu
hafði verið umturnað.
Wiseman og frænka hennar
lágu liðin lík á gólfinu og höfðu
báðar verið kyrktar.
Líkið af Phyllis var í svefnher-
bergi baka til. Náttkjóll henn-
ar hafði verið dreginn upp og
henni verið nauðgað. Líkið af
Annie Wiseman var í hennar eig-
in svefnherbergi og var höfuðið
í blóðpolli. Hún var í náttfötum
og náttslopp og lá rétt við rúmið.
Hrottaskapur morðingjans hafði
verið þvílíkur að smámynt sem
hafði verið á gólfteppinu hafði
þrykkst inn í úlnlið Annie. Segir
sagan að þurft hafi hníf til að losa
myntina.
Mjólkurreikningur og sót
Það kom til kasta rannsakanda
að nafni Charles Taylor að skoða
vettvang glæpsins. Upp úr krafs-
inu hafði Taylor meðal annars
reikning vegna mjólkur, smámynt
og leifar af sóti.
Lögreglan fór á stúfana, kíkti
í mjólkurbúðir í nágrenninu og
leitaði upplýsinga. Afraksturinn
var nöfn fjölmargra viðskiptavina
og fór lögreglan hús úr húsi.
Það hljóp á snærið hjá lög-
reglunni þegar kona ein kann-
aðist við eigin rithönd á mjólk-
urreikningnum. Sagði hún að
til hennar hefði komið maður
7. nóvember og spurt hvort hún
vildi láta hreinsa reykháfinn. Hún
hafði afþakkað boðið en skrifað
nöfn mögulegra viðskiptavina á
reikninginn.
Þessar upplýsingar leiddu lög-
regluna til 38 ára sótara nokkurs,
George Green.
Hárin skiptu höfuðmáli
Green sagðist enga vitneskju hafa
um morðin og sagðist hafa látið
kollega sína hafa mjólkurreikn-
inginn með nöfnunum. Lögreglan
lagði ekki trúnað á útskýringar
Green. Þvert á móti taldi hún ljóst
að Green væri sá seki, en skorti þó
sannanir til að byggja á.
Charles Taylor hófst nú handa
enda ekki á þeim buxunum að
láta sótarann sleppa.
Hár sem fannst við hliðina
á líkinu af Wiseman var borið
saman við hár sem fannst á heim-
ili Green. Einnig fundust, eftir
ítarlega leit, þrjú hvít hár á heim-
ili hans og fékkst síðar staðfest að
þau voru af Wiseman. Réttað var
yfir Green og þegar upp var staðið
tók það réttinn aðeins sex klukku-
stundir að úrskurða hann sekan.
George Green var hengdur 17.
apríl 1939. n
Sótarinn seki
n Örfá hár felldu morðingja Annie og Phyllis n Mjólkurreikningur kom lögreglu á sporið„Hrottaskapur morðingjans
hafði verið þvílíkur að smámynt
sem hafði verið á gólfteppinu hafði
þrykkst inn í úlnlið Annie. Segir sagan
að þurft hafi hníf til að losa myntina.
Við heimili Annie Wiseman
Lögreglan hafði ekki úr miklu að
moða við rannsókn málsins.
Charles Taylor rannsakandi.