Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Síða 46
46 23. febrúar 2018 8 fangaverðir og fimm fangar lágu í valnum í kjölfar uppþots í ríkisfang-elsi Colorado í Canon City í Bandaríkjunum í október 1929. Forsprakki fanganna, Danny Daniels, hótaði að myrða fangaverðina ef honum og fjórum félögum hans yrði ekki sleppt lausum. Ekki var gengið að kröfum hans og hann stóð við orð sín og banaði einnig fjórum félögum sínum og framdi að lokum sjálfsvíg.Sakamál A ð morgni sunnudagsins 13. nóvember, 1938, bank- aði frú Rowland Barrett upp á hjá vinkonu sinni, Annie Wiseman, við Salisbury- stræti í Glenroy í Melbourne í Ástralíu. Hugðist frú Barrett, eins og oft áður, verða Wiseman og 17 ára frænku hennar, Phyllis, sam- ferða til messu. Barrett brá í brún Enginn kom til dyra og það fannst Barrett undarlegt. Vegna þess að Barrett og Wiseman voru góðar vinkonur hafði sú fyrrnefnda lykil að heimili Wiseman í fórum sín- um. Hún hleypti sjálfri sér inn og leist ekki á blikuna því heimilinu hafði verið umturnað. Wiseman og frænka hennar lágu liðin lík á gólfinu og höfðu báðar verið kyrktar. Líkið af Phyllis var í svefnher- bergi baka til. Náttkjóll henn- ar hafði verið dreginn upp og henni verið nauðgað. Líkið af Annie Wiseman var í hennar eig- in svefnherbergi og var höfuðið í blóðpolli. Hún var í náttfötum og náttslopp og lá rétt við rúmið. Hrottaskapur morðingjans hafði verið þvílíkur að smámynt sem hafði verið á gólfteppinu hafði þrykkst inn í úlnlið Annie. Segir sagan að þurft hafi hníf til að losa myntina. Mjólkurreikningur og sót Það kom til kasta rannsakanda að nafni Charles Taylor að skoða vettvang glæpsins. Upp úr krafs- inu hafði Taylor meðal annars reikning vegna mjólkur, smámynt og leifar af sóti. Lögreglan fór á stúfana, kíkti í mjólkurbúðir í nágrenninu og leitaði upplýsinga. Afraksturinn var nöfn fjölmargra viðskiptavina og fór lögreglan hús úr húsi. Það hljóp á snærið hjá lög- reglunni þegar kona ein kann- aðist við eigin rithönd á mjólk- urreikningnum. Sagði hún að til hennar hefði komið maður 7. nóvember og spurt hvort hún vildi láta hreinsa reykháfinn. Hún hafði afþakkað boðið en skrifað nöfn mögulegra viðskiptavina á reikninginn. Þessar upplýsingar leiddu lög- regluna til 38 ára sótara nokkurs, George Green. Hárin skiptu höfuðmáli Green sagðist enga vitneskju hafa um morðin og sagðist hafa látið kollega sína hafa mjólkurreikn- inginn með nöfnunum. Lögreglan lagði ekki trúnað á útskýringar Green. Þvert á móti taldi hún ljóst að Green væri sá seki, en skorti þó sannanir til að byggja á. Charles Taylor hófst nú handa enda ekki á þeim buxunum að láta sótarann sleppa. Hár sem fannst við hliðina á líkinu af Wiseman var borið saman við hár sem fannst á heim- ili Green. Einnig fundust, eftir ítarlega leit, þrjú hvít hár á heim- ili hans og fékkst síðar staðfest að þau voru af Wiseman. Réttað var yfir Green og þegar upp var staðið tók það réttinn aðeins sex klukku- stundir að úrskurða hann sekan. George Green var hengdur 17. apríl 1939. n Sótarinn seki n Örfá hár felldu morðingja Annie og Phyllis n Mjólkurreikningur kom lögreglu á sporið„Hrottaskapur morðingjans hafði verið þvílíkur að smámynt sem hafði verið á gólfteppinu hafði þrykkst inn í úlnlið Annie. Segir sagan að þurft hafi hníf til að losa myntina. Við heimili Annie Wiseman Lögreglan hafði ekki úr miklu að moða við rannsókn málsins. Charles Taylor rannsakandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.