Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 53
KYNNING
Fullkominn gólfhiti
með litlum fyrirvara
Það færist sífellt í vöxt að gólfhiti sé valinn sem kyndingarkostur
í húsum og flest ný hús eru
með gólfhita. Einnig er al
gengt að skipt sé yfir í gólf
hita þegar húsnæði er gert
upp og jafnvel bara þegar
skipt er um gólfefni. Kostir
gólfhitakyndingar eru margir,
til dæmis sá að þá losna
húsnæðiseigendur við ofna
af veggjunum. Fyrirtækið
Gólfhitalagnir ehf. býður upp
á mjög vandaða og fljótvirka
þjónustu á þessu sviði og
er með fullkomna fræsivél
sem getur fræst raufar ofan
í öll steingólf. Á fræsivélinni
er öflug ryksuga svo ryk og
óhreinindi eru í lágmarki við
þessa vinnu. Eftir fræsingu
leggja Gólfhitalagnir síðan
rörin ofan í raufarnar og þá
er hægt að leggja gólfefnið á,
parket eða flísar.
„Við sérhæfum okkur í að
fræsa og leggja gólfhita
rörin í raufarnar, við tengjum
ekki gólfhitann heldur sér
pípulagnameistari hússins
um það,“ segir Guðni Vilberg
Baldursson hjá Gólfhitalögn
um. Hann stofnaði fyrirtækið
árið 2013 ásamt Brynjari
Kristjánssyni pípulagnameist
ara. Að sögn Guðna vinna
þeir mest í íbúðarhúsnæði en
fræsa þó líka og leggja rör í
gólf í verslunum og iðnaðar
húsnæði.
Verkefnin eru síðan mjög
mismunandi að umfangi: „Við
erum að fræsa og leggja í rör
í allt frá einu baðherbergi og
upp í heilu húsin,“ segir Guðni.
Aðspurður segir hann að
það hafi verið góður stíg
andi í verkefnum undanfarið
og ljóst er að gólfhiti færist
mjög í vöxt: „Það gefur okkur
líka ákveðna sérstöðu að við
erum ekki nema daginn að
fræsa og leggja rörin í allt
að 150 fermetra hús, nánast
ryklaust. Tíminn skiptir máli
þegar maður er með heimilið
undirlagt og það kemur sér
vel fyrir fólk hvað þetta tekur
stuttan tíma. Auk þess mæt
um við líka á staðinn með
litlum fyrirvara.“
Gólfhitalagnir bjóða því
upp á fljótlega þjónustu með
litlu raski en niðurstaðan er
frábær gólfhiti og ofnalausir
veggir. Á heimasíðu fyrirtæk
isins, golfhitalagnir.is, er hægt
að leggja inn tilboðsbeiðni
og er henni yfirleitt svarað
innan klukkustundar. Það
tilboð gildir svo lengi sem
gólf eru hrein og slétt þegar
verkið hefst. Því liggur allur
kostnaður fyrir áður en verkið
hefst.
Fyrirtækið er staðsett að
Krókhálsi 5-E, 110 Reykjavík.
Símanúmer er 571-3700, en
góðar upplýsingar er að hafa
á heimasíðunni,
golfhitalagnir.is.
Einnig er mikið úrval af
myndum og myndskeiðum á
Facebook-síðu Gólfhitalagna.
GólFHiTAlAGnir EHF.