Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 30
Allt fyrir bílinn 23. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Orðsporið er
besta auglýsingin
Bílakóngurinn, Brekkustíg 40, njarðvík
Við höfum lítið sem ekkert auglýst en fólk hefur verið ánægt með þjónustuna og
vinnubrögðin og þess vegna fáum
við sífellt meiri viðskipti. við rétt svo
önnum því sem til okkar berst núna
en það kemur eflaust að því fljótlega
að ég þarf að stækka við mig,“ segir
sveinbjörn sveinbjörnsson sem rekur
bílaþjónustufyrirtækið Bílakónginn
í njarðvík og er annar af tveimur
starfsmönnum fyrirtækisins.
Bílakóngurinn þrífur bíla að innan
sem utan, framkvæmir lagfæringar
eftir yfirborðsskemmdir og tekur bíla
í mössun. „Þegar þú ert búinn að
þrífa bílinn þinn með kústum í nokkur
ár er lakkið orðið mjög matt. Möss-
unin nær gljáanum upp aftur,“ segir
sveinbjörn.
„Fyrir utan þetta þá eru oft
smárispur á bílunum og það sest
bremsuryk á þá. auk þess fer seltan
mjög illa með bílana á veturna.
Margir bílar árgerð 2016 eru mjög
illa farnir. Þetta er mikil vinna, það
þarf að vaka yfir þessu og sinna
þessu af alúð og áhuga. en ég hef
líka mjög gaman af vinnunni,“ seg-
ir sveinbjörn en Bílakóngurinn fær
mikið hrós frá viðskiptavinum fyrir
vönduð vinnubrögð.
„stundum hef ég þurft að rífa
innréttingarnar út úr bílnum til að
uppræta lykt því ef það hellist niður
og mjólkin eða kaffið komast inn í
járnið þá hverfur lyktin ekkert þó að
þú þrífir hann að innan.
svo erum við með nano Ceramic-
vörn fyrir bílinn sem dugar allt að 3
til 5 ár. Það þarf að panta með viku
fyrirvara mjög sterk efni með ábyrgð
allan tímann ef farið eftir skilmálum.“
Fyrir utan þessi hreinsunarverk-
efni og endurbætur sem gera bílinn
fallegan og aftur nýlegan í útliti þá
sinnir Bílakóngurinn bremsuviðgerð-
um og skiptum á tímareimum.
Þó að meirihluti viðskiptavina Bíla-
kóngsins séu af suðurnesjum þá er
hann með nokkra fasta viðskiptavini
í reykjavík sem gjarnan leita til hans
í tengslum við utanlandsferðir. „Ég
ek þeim á flugvöllinn og þegar þeir
koma heim aftur skila ég bílnum til
þeirra hreinum og fínum. Fyrir utan
að þrífa bílinn geri ég það sem gera
þarf miðað við aðstæður, stundum
fer ég með þá í smurningu eða í
skoðun,“ segir sveinbjörn.
Þjónusta við fyrirtæki
Bílakóngurinn sinnir reglulegri þjón-
ustu fyrir bílaumboðin Öskju og k.
steinarsson. „Ég tek nýja bíla og geri
klára fyrir viðskiptavinina og síðan
tek ég notaða bíla, massa þá og
þríf og geri þá fína fyrir endursölu.“
Bílakóngurinn vinnur einnig mikið fyrir
bílaleiguna Blue og þjónustar bílaflot-
ann hjá meirihlutanum af byggingar-
verktökum á suðurnesjum.
síðast en ekki síst er Bílakóngurinn
með þvottastöð á hjólum sem notuð
er til að þrífa plön fyrir framan versl-
anir og bílasölur.
Nánari upplýsingar veitir
Sveinbjörn í síma 771-1449.