Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 28
Allt fyrir bílinn 23. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ Velkomnir í hellinn minn,“ segir Smári Hólm kankvís þegar hann tekur á móti blaðamanni og myndatökumanni í húsnæði sínu að Rauðhellu 1 í Hafnarfirði. Smári Hólm rekur þar lítið en afar kröftugt ryðvarna- verkstæði ásamt eiginkonu sinni og samstarfsfélaga, Sigríði Ragnarsdóttur. Inni á verkstæðinu eru tveir bílar hvor í sinni lyftunni sem Smári Hólm er að vinna við þennan daginn. Smári Hólm sinnir jöfnum hönd- um bílum fyrir bílaumboðin, bílaflota fyrir tækja og bílum einstaklinga. Hann segir nýja bíla vera ótrúlega fljóta að ryðga. Annar bíllinn sem búið er að lyfta upp þarna inni er nýr sýningarbíll frá umboði og ekki enn kominn á númer. Smári sýnir okkur merkilega marga ryðbletti undir þessum splunkunýja bíl. „Það er bara enginn bíll hannaður fyrir íslenska veðráttu og saltið á götunum fer strax að éta sig inn í þá. Auk þess fer ál sérstaklega illa og rætist mun hraðar en stál,“ segir Smári. Ég bið Smára Hólm um að lýsa ryðvarnarferlinu: „Ég tek bílana inn daginn áður og þurrka þá í miklum hita til að ná kjör- hitastigi áður en Prolan er borið á hann. Bíllinn verður að vera alveg skraufþurr og heitur. Áður en ég hef lokið við að þurrka hann lyfti ég honum upp, tek dekkin undan honum, tek allt plast utan af honum, tek pönnurnar undan hon- um. Svo þegar ég er búinn að hreinsa allt sem ég get tekið undan bílnum þá blæs ég hann með háþrýstilofti.“ Töfraefnið Prolan Smári Hólm notast eingöngu fyrir hið frábæra ryðvarnarefni Prolan en hann er umboðsaðili fyrir það á Íslandi: „Ryðið sem er komið til dæmis í bíl drekkur í sig Prolan-vörnina sem endist síðan von úr viti sem forvörn því hún liggur á bílnum og hrindir stöðugt frá honum vatni. Kemur í veg fyrir að súrefni og vatn komist að járninu. Þess vegna skiptir svo miklu máli að bíllinn sé þurr þegar borið er á hann.“ Meðfylgjandi myndir sýna dæmi um ótrúlega virkni Prolans á hluti sem virðast ónýtir og ekki annað í stöðunni en að kaupa nýja. En Prolan gerir kraftaverk á veðruðum og illa ryðguðum hlutum. Alltaf í bílunum „Ég fæddist með smurkönnu í annarri hendi og skiptilykilinn í hinni. Pabbi var mikill jeppakall, ég fór mikið með honum á fjöll og fékk að keyra fyrst sjö ára. Er búinn að vera á kafi í jeppamennsku alla mína ævi en hef tekið mér hlé frá henni síðustu árin, “ segir Smári. Verkstæðið hans hér að Rauð- hellu 1 er opið frá 8 til 17 virka daga. Panta þarf tíma símleiðis í síma 861- 7237 og getur biðtíminn verið nokkuð langur. Smári er eftirsóttur í brans- anum enda hefur hann afar gott orð á sér: „Ég kappkosta að vinna af mikilli fagmennsku. Ég er líka búinn að vera í bílageiranum alla mína ævi. Sjá nánar á Facebook-síðunni www.facebook.com/prolanrydvorn og vefsíðunni www.smariholm.com. HjÁ SMÁRA HólM Prolan stoppar ryð og endist lengi Fyrir og eftir notkun Prolan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.