Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Blaðsíða 34
Allt fyrir bílinn 23. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ Meira afl og minni eyðsla með tölvustýrðri vélarstillingu Það er merkileg staðreynd að hægt er að auka kraftinn í bílnum og spara eldsneyti með því að uppfæra gögn í tölvubúnaði. Vélar í nútímabílum nota tölvukerfi við stjórnun vélarinnar. Fjölmargir skynjarar nema aðstæður og mata vélartölvu bílsins með upplýsingum sem síðan eru notaðar til að stjórna hegðun vélarinnar. Þessir skynjarar mæla t.d. lofthita úti, lofthita í sog- grein vélarinnar, vatnshita vélarinn- ar, stöðu inngjafar, snúningshraða vélar og fjölda annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að beita vélinni sem best við viðkomandi aðstæður. Fyrirtækið Kraftkort, sem staðsett er að Súlunesi 10 í Garðabæ, hefur veitt fjölmörgum bílum aukið afl og dregið úr eldsneytisnotkun þeirra með þessari nútímalegu vélarstill- ingu. Guðmundur Rögnvaldsson, sem rekur fyrirtækið, útskýrir að- ferðina svo í stuttu máli: „Þetta snýst um það að við lesum bíltölvuna og erum í samstarfi við breskt fyrirtæki sem heitir Viezu Technologies og er einn stærsti að- ilinn á þessu sviði. Við sendum þeim skrána sem er á vélartölvunni í bíln- um. Þeir senda okkur nýja skrá með breyttum stillingum sem við keyrum inn á tölvuna. Forritunin sjálf á sér stað hjá þeim en ekki okkur.“ Öll forritin eru prófuð á dyno- bekkjum hjá Viezu til að sannreyna tölurnar sem gefnar eru upp fyrir hvern bíl. Eins og áður segir stuðlar endur- forritunin bæði að auknu afli og meiri sparneytni: „Ef við tökum dísilbíla, þá getum við fengið bæði svokallað Performance Map sem lýtur meira að aflaukningu ásamt því að minnka eldsneytisnotkun, og Eco Map, sem veldur minni afl aukningu en meiri eldsneytissparnaði og dregur úr mengun frá bílnum,“ segir Guðmundur. Einnig er hægt að endurforrita vélartölvur í bensínbílum en fyrir þá er eingöngu til Performance Map. Með auknu afli erfiðar vélin hins vegar minna og því minnkar eyðsla með sama aksturslagi. Guðmundur tók við starfsemi Kraftkorts í vor en að hans sögn hefur verið boðið upp á þessa þjón- ustu í nokkur ár. Sem nærri má geta hefur þjónustan þróast í gegnum árin: „Bílar eru auðvitað ekki eins og þeir voru fyrir nokkrum árum, það er alltaf að koma eitthvað nýtt og hægt að gera fleira.“ Hér með greininni fylgja nokkur dæmi um bíla sem hafa öðlast endurbætt líf, ef svo má segja, eftir tölvustýrða vélarstillingu hjá Kraft- korti. Sem fyrr segir er fyrirtækið staðsett að Súlunesi 10 í Garðabæ. Heimasíða er kraftkort.net og Facebook-síða www.facebook.com/ kraftkortgr.. Símanúmer er 857- 0210. Hægt er að panta þjónustu eða fá frekari upplýsingar með því að hringja eða senda skilaboð á Facebook-síðunni. Jafnframt er áhugavert að skoða heimasíðu Viezu Technologies, viezu.com. KRaFTKoRT: Þessi 2015 Skoda Superb 2,0 dísel fékk aflaukningu og fór úr 190 hestöflum í 230 hestöfl ásamt því að togið fór úr 400nm í 480nm. Einnig er hann að fara niður um allt að 10% í eyðslu. Þessi 2017 Land Rover Discovery Sport fékk aflaukningu og fór úr 150 hestöflum í 180 hestöfl og togið fór úr 380nm í 440nm. Einnig er eyðslan að fara niður um allt að 10%. Þessi 2013 MaN TGX 540 fékk aflaukningu ásamt því að adBlue var tekið út. Hann fór úr 540 hestöflum í 620 hestöfl og togið fór úr 2450nm í 2850nm. Einnig er eyðslan að fara niður um allt að 13%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.